mánudagur, september 25, 2006

Ég nenni ekki......



Já hún Sigga hún er bara búin að læra trilljón ný orð í leikskólanum - allt í einu segir hún; ég nenni ekki út, ég nenni ekki bað, ógeðslega gott, ógeðslega vont, ógeðslega ljótt, láttu mig vera, ekki stríða, allir saman......... Það er alveg frábært að fylgjast með litla unganum sem núna er svo ánægð með leikskólann að hún varla hefur tíma til að kveðja foreldrana á morgnanna. Þegar hún er sótt þarf oft að bíða því hún er bara ekki alveg búin að púsla auk þess sem hún þarf að sýna margt. Í dag blasti við fögur sjón - Sigga var að leika við vinkonu sína úti, þær hlupu um allt svæðið og hlógu saman - þetta hefur hún ekki gert hingað til. Er ekki gaman að fá að upplifa þetta allt með henni Siggu Báru sjarmörínu línu?
Bless í bú

miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Þetta er allt að koma



Já hún Sigga er öll að koma til. Stúlkan er búin að vera lasin meira eða minna síðan á laugardag með hita, hálsbólgu og almennt kvef eins og það gerist best. Í dag var því farið í leikskólann í fyrsta sinn í þessar viku og hélt mamman að við færum 8 skref afturábak í aðlöguninni. En viti menn - það þurfti ekki að hafa áhyggjur af þessum degi. Þegar Sigga Bára var sótt í leikskólann í dag fékk mamman gleðifréttir - STÚLKAN SVAF Í HVÍLDINNI, BORÐAÐI VEL OG NÁÐI AÐ LEIKA SÉR!! Getur maður beðið um annað. Við foreldrarnir vitum vel hvað býr í þessari duglegu stúlku og hlökkum mikið til þegar kennarar hennar fara að sjá þá hlið á henni. Annars þá verð ég að taka hattin ofan fyrir kennurum Siggu Báru - þær hafa verið svo góðar og þolinmóðar við okkur, þá ekki síður foreldrana en Siggu Báru. Við segjum bara takk, takk, takk fyrir allt.
Hér eru myndir af fallegasta sjúklingi kjúklingi landsins og barasta heimsins
Bless í bú

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Vikan búin og næsta að hefjast




Já vikan sem er að líða gekk vel hjá Sigríði Báru - að frátöldum þeim klukkutímum sem hún grét í leikskólanum. Já hún hefur ekki alveg brosað hringinn allan daginn þessa dagana - það er gaman að leika sér með krökkunum, gaman að borða með krökkunum, gaman að labba í skólann á morgnanna en EKKI AÐ FÁ SÉR LÚR. Okkur skilst að þrátt fyrir allar heimsins aðferðir til að fá unga til að taka lúrinn hafa engar þær haft áhrif á Siggu Báru - hún grætur og grætur og grætur þessi engill en hættir um leið og farið er út að leika. Sigga Bára er sem sagt mjög þrjósk - það vitum við foreldrarnir líka og það er einmitt þannig sem við viljum hafa hana Siggu Báru - þrjóska og með skap - það verður bara enn meiri sigur þegar maður hefur unnið hana á sitt band.
Sigga Bára tók sig til allt í einu á föstudaginn eftir skóla, skellti sér á fjórar fætur og lyfti annarri upp og kallaði "sjái sjái latibær" Svo dró hún okkur gömlu á gólfið og allir farnir í Latabæjar stuð eins og henni einni er lagið!!!

En ljósið sefur núna ljúfum svefni enda búin að hafa nóg að gera í dag. Farið var í Grafarholtið til móðursystranna og farið í góða göngu um holt og hæðir. Það finnast ber í Reykjavíkinni góðu en hvar segjum við ekki :-D
Bless í bú
gydao@simnet.is

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Bíddu - hef ég ekki verið hér áður???




Fyrsti leikskóla dagurinn var nú eiginlega þannig að það var eins og Sigga Bára hafi verið þarna áður. Sú stutta gekk inn eins og hún ætti skólann, ekkert sjálfsagðara en að hengja upp úlpuna og töskuna á nýja kisu snagann og tölta sér inn á ganginn. Á móti okkur tók Sigrún skólastjóri og þær Sigga Bára skoðuðu fiskabúrið sem hefur fjársjóð á botninum!!!!! Svo hittum við hana Láru sem er svo indæl og þær Sigga fengu sér síðar labbitúr og leiddust hönd í hönd. Svona til að gera langa sögu stutta þá fór Sigga Bára að gráta þegar móðirin þurfti að fara með hana heim!!!! Svona var þetta nú - svo héldum við upp á daginn með því að fara í bakaríið og fara með skúffuköku til ömmu og afa - Sigga Bára var orðin stór stelpa.
Takk fyrir kveðjurnar kæru vinir - það er svo gaman að lesa orðsendingarnar frá ykkur!!!
Bless í bú - á morgun verður snæddur morgunmatur með öllum krökkunum ............

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Það verður leikskóli á morgun



Já núna fer að styttast óðum í að litla daman labbi sér yfir götuna og byrji á leikskólanum. Á morgun er fyrsti aðlögunar dagurinn og mikil spenna búin að magnast hér á heimilinu bæði hjá Siggu Báru og foreldrunum. Við erum viss um að þetta gangi vel þar sem Sigga Bára hefur fengið að fara nokkrum sinnum út að leika þegar leikskólinn er með útiveru á morgnanna. Sigga Bára hefur meira að segja ekki alltaf viljað fara heim með þeirri gömlu heldur viljað fara beint inn að leika!!!!!
Annars hefur ágúst mánuður einkennst af miklum heimsóknum út á land. Við eyddum nokkrum dögum í sumarbústað með Bínu, Olgu og stórfjölskyldum sem var hreint út sagt frábært auk þess sem við fórum í heimsókn til ömmu, afa og Sigga Val þar sem þau voru í bústað. Auðvitað var svo farið á tónleika með Stuðmönnum um verslunarmannahelgina. Sigga Bára sofnaði að vísu yfir honum Valgeiri en ..............
Jæja látum þetta nægja í bili
Bless í bú!!!!!

mánudagur, júlí 31, 2006

Stórafmæli haldið hjá Söru og Sigrúnu TAKK



Foreldrar Siggu vita mæta vel að þau hafa ekki verið dugleg að skrifa upp á síðkastið. Ástæður eru margvíslegar og margar - aðallega þær að við höfum verið mikið iðin við að fara í stutt ferðalög, hitta vini og njóta síðustu daga Siggu Báru og mömmu í barnsburðarleyfinu.
Sigga Bára og fjölskylda fóru í frábæra veislu um helgina til Söru og mömmu hennar. Þar mættust allar stelpurnar úr hópi 12 og héldu upp á afmælin sín eins og þeim einum er lagið. Mæting kl. 15 og farið heim 21 - sannkölluð partýljón!!!! Þetta var hreint út sagt frábær veisla og allir, þá aðallega afmælisbörnin, voru í svo góðu skapi að það hálfa hefði verið nóg. Þær voru duglegar að leika saman úti, meira en venjulega, mikið búnar að þroskast og svo er ein hætt að nota bleyju!!!!! Já svona eru þetta flottar stelpur. Við viljum bara nota tækifærið og þakka öllum vinum okkar fyrir þennan frábæra dag saman og vonandi hittumst við fljótt aftur.
Núna eru bara 10 dagar þar til Sigga Bára byrjar á leikskólanum - hún segist bara hlakka til og kveður mömmu stundum á daginn, þykist labba út um dyrnar og segir " Bess mama e farin leiskolan" - púff og sjúkk
Bless í bú

mánudagur, júlí 10, 2006

Eitt ár liðið






Það er í eitt ár liðið frá því við fengum sólargeislann í lífi okkar. Lítill ungi sem saug fingurna, strauk vinstra eyrað sitt og grét. Mikið var lagt á hana Siggu Báru þennan dag fyrir ári síðan, meira en okkur getur grunað. Hún grét allan þennan dag en leyfði okkur að halda á sér, hún gat gleymt sér við að maula mat í stutta stund en áður en við vissum af kom gráturinn aftur og benti hún á hurðina – út vildi hún. En það hefur mikið vatn runnið til sjávar og gráturinn hefur breyst. Í dag grætur Sigga ef hún fær ekki sínu fram eða grætur vegna þess að við erum ekki hjá henni. Það er stór munur á þeim gráti í Kína. Elsku litla Sigga hefur vaxið og dafnað. Hún hefur glatt hjörtu margra en þó mest foreldra sinna. Takk fyrir þetta fyrsta ár kæra dóttir – fyrst við gátum þennan dag í fyrra getum við allt saman ;-)

sunnudagur, júlí 09, 2006

Fyrsta/Frysta útilegan



Sigga Bára hefur farið í sína fyrstu útilegu. Það var löngu ákveðið að fjölskyldan ætlaði sér að fara á útilegu Íslenskrar Ættleiðingar sama hvernig veðurspá yrði. Þetta var frábær ferð, fórum samferða Matthildi og fjölskyldu og hittum fullt af skemmtilegu fólki . Við tjölduðum við skólann á Reykhólum og þar var öll aðstaða til fyrirmyndar stórt leiksvæði fyrir ungana að hlaupa á, gæsluvöllur fyrir neðan húsið, leikfimissalur sem var fullnýttur allan tímann og frábær aðstaða inn í skólanum(stærðar matsalur, eldhús, sjónvarpskrókur og salernisaðstaða). Veðrið var ágætt og þó..... há sumar og ábyggilega rúmlega 4 stiga hiti og talsverð rigning allan tímann, það var nátturulega "bara skítkalt" alla vega fyrstu nóttina. Talið var að hátt í 150 manns voru á svæðinu þegar leikar stóðu sem hæst og rífandi stemming. Þegar fjölskyldan hafði verið á Reykhólum frá föstudegi fram á laugardagskvöld var ákveðið að kveðja þennan fallega stað. Það hafði verið svo kallt fyrstu nóttina að við hreinlega lögðum ekki í aðra nótt með prinsessuna í tjaldið. En mikið var gaman og viljum við þakka öllum fyrir frábæra skemmtun og samveru.

sunnudagur, júlí 02, 2006

Orðin fullorðin eins og Fríllinn


Já núna er Sigga Bára búin að ná því að vera tveggja ára og okkur foreldrunum finnst eins og við höfum séð hana breytast á einum sólarhring ( svona næstum). Við skelltum okkur eftir afmælið í smá ferðalag til Stínu, Kalla og Valentínu en þau eiga hreint yndislegan bústað í Grímsnesinu. Þar var tekið höfðinglega á móti okkur svo vægt sé til orða tekið og fólk sem þekkir okkur veit að ef okkur líður vel einhverstaðar förum við seint þaðan og upplifðu gestgjafar okkar það - komum ekki í bæinn aftur fyrr en um miðnætti!!!!! Við vorum úti í náttúrunni, skelltum okkur í laugina, borðuðum góðan - frekar bestan mat framreiddan af fagfólki og nutum félagskaparins. Takk fyrir okkur vinir ;-)

En daginn eftir var okkur svo boðið aftur í gill - í þetta sinnið til Sunnu, Sölku, Dóru og Styrmis!!! Þar svignuðu borðin undan kræsingum sem Dóra (ég meina þetta Dóra !!) hafði útbúið en litla fallega Sunna hafði verið skírð á laugardeginum og slegið því saman við afmælið hennar. Þarna mættu allar kínasystur fyrir utan Stínu mína sem var upptekin í bústaði foreldra sinna. Mikið er gaman að sjá þessa litlu unga okkar og breytingarnar sem hafa orðið á þeim. Hver annari fallegri, hver annari sjálfstæðari, hver annari blíðari og hver annari yndislegri. Já mikið erum við öll rík. Takk fyrir heimboðið fjölskylda - það er alltaf svo gott að koma til ykkar. Annars hafa undanfarnir dagar einkennst af tíðum sundferðum okkar, við höfum örugglega öll verið selir í fyrra lífi því dagurinn er ekki fullkomnaður nema við séum aðeins búin að kíkja í laugina. Sigga er mikið núna að leika sér í tjaldinu sem hún fékk í afmælisgjöf og hafa frændsystkini hennar verið dugleg að koma og leika með henni í því.
Næst á dagskrá er útilega Íslenskrar Ættleiðingar - veðrið getur ekki versnað þannig að maður segir bara eins og Lúðvík í Samfylkingunni talaði um gengi flokksins - "Ef maður er kominn á botninn er bara ein leið upp"

Bless í bú

laugardagur, júní 24, 2006

Hún Sigga Bára Min á afmæli í dag




Elsku hjartans dóttir okkar á afmæli í dag og er orðin tveggja ára!!!!! Foreldrarnir eru núna að bíða eftir því að gestirnir banki á dyrnar - stoltir og ánægðir. Hún Sigga Bára fattar alveg að hún á afmæli - búin að opna nokkra pakkana og fengið s.s. vörubíl (frá Þórhildi feminista), útilegustól, garðáhöld og ekki má gleyma stóra sandkassanum sem afi og amma gáfu prinsessunni af tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn hjartans dóttir okkar!!!!!!!

fimmtudagur, júní 22, 2006

Komin heim





Fjölskyldan er komin heim úr sumarfríinu. Við skelltum okkur til Ítalíu í tvær vikur og dvöldumst þar ásamt Palla og fjölskyldu á yndislegum stað í Toscana héraði. Hitinn var góður og naut Sigga þess að vera léttklædd, skoða maurana, eðlurnar og svo auðvitað að borða kirsuber - þau voru í miklu uppáhaldi. Við létum ekki staðar numið þar og heimsóttum vinkonu okkar hana Ágústu, Floris manninn hennar og yndislegu dóttur þeirra hana Katrínu Ágústu. Þau búa semsagt í Amsterdam og fengum við frábæra leiðsögn um borgina, fórum á markaði en toppurinn í ferðinni fyrir hana Siggu var dagur sem farið var í fallegan garð þar sem hún fékk að fara á hestbak - ekki bara einu sinni - nebb - hún fékk að fara tvisvar eftir að hafa sannfært pabba sinn um það. Hún vissi að hún var eins og Lína eða LUWE eins og hún ber það fram af miklum krafti. Sigga hefur engu gleymt frá síðustu flugferðum var eins og ljós - eða réttara svaf eins og ljós í öllum þeim flugum sem við fórum í. Þetta var sem sagt draumur í dós enda ekki annað hægt með svona líka frábæra ferðafélaga þau Palla, Höllu, Védísi og Steinunni Völu - takk fyrir okkur!!!!
Jæja látum þetta duga í bili
Bless í bú
gydao@simnet.is

fimmtudagur, júní 01, 2006

Eitt ár liðið frá því við fengum myndirnar!!!




Hugsa sér að það sé liðið eitt ár síðan við Kalli fengum upplýsingamyndirnar frá Kína af henni Siggu Báru okkar. Við erum að tala um 365 daga sem hafa liðið ótrúlega hratt en einhvernveginn samt svo langt síðan því okkur finnst hún Sigga hafa verið með okkur alveg frá upphafi. Við erum þakklát fyrir að lífið hafi verið svona gjafmilt og leitt okkur öll saman . Hér eru myndirnar frá því fyrir akkúrat einu ári síðan og svo dömunni í dag. Þú ert best Sigga Min!!!

mánudagur, maí 29, 2006

Sauðburður yfirstaðin og Björn bóndi kominn í borgina



Sigga er búin að vera mjög dugleg frá síðustu skýrslu hér á síðunni. Hún fór nefnilega í sveitina og fékk að fylgjast með nýfæddum lömbum - gaf þeim meira að segja nebbaknús sem ekki allir fá frá frökeninni. Það var tekið á móti okkur á Hvammi í Landsveit eins og höfðingjum hjá Pálma og fjölskyldu - þúsund þakkir fyrir okkur kæra fjölskylda.
Nú síðan liðu dagarnir og kosningar voru á næsta leiti. Hann Hemmi frændi hennar Siggu var í framboði fyrir Vinstri græna og tókst honum að snúa öllum í fjölskyldunni sér í hag og vann flokkurinn mikin sigur - til hamingju Hemmi frændi :-) Við tölum svo ekki um nýmyndaða borgarstjórn þar sem það á ekki heima hér á síðu fallegrar stúlku.
Svo verður að minnast á heimsókn í nýja húsið hennar Elvu Gests en það var svo gaman að heimsækja hana og Heiðrúnu vinkonu sem er að bíða eftir að lítill ungi komi í heiminn ;-) Spennandi Heidi eða hvað!!!!
Nú pabbi hennar Siggu Báru er að útskrifast á laugardaginn og erum við að hefjast handa við að undirbúa móttöku hér á bæ - Sigga Bára er búin að vera svo dugleg að vinna í garðinum og er hann bara orðinn flottur hjá henni. Mamma er ánægð með skottu.
Jæja höfum þetta ekki lengra í bili og takk fyrir allar kveðjur kæru vinir!!!!!!
Bless í bú

mánudagur, maí 15, 2006

Núna er það bara hjóla, hjóla og hjóla



Já hún Sigga Bára fékk að upplifa um helgina að sitja aftaná hjólinu hennar mömmu og var það gleði, gleði, gleði, gleði alla tíð................ Hún er annars að þroskast mikið eða bara góð að herma efitr því um leið og þau gömlu segja "jæja það eru að koma fréttir" rýkur hún af stað skríður upp í sófa á besta staðinn og liggur þar og flatmagar og segir "frétttir"!!!!!
Í dag var farinn maraþon hjólreiðahringur með þeim mæðgum Kristínu og Matthildi sem endaði þannig að dæturnar ákölluðu kerrurnar sínar og þegar heim var komið og kerrurnar komnar í augsýn komu tár á hvarma og þær hlógu uppgefnum hlátri - jú hviss og bang sofnaðar á nóinu.
Jæja höfum það ekki lengra í bili
Bless í bú

föstudagur, maí 12, 2006

Cherry blossom eða hérumbil





Við mæðgur fórum í morgun snemma út að labba - það var svo fallegt veður - en kalt. Við mælum með því að fá sér göngutúr í Grasagarðinn þar sem tré eru farin að blómgast og mannlífið með. Kellurnar tvær tóku með sér nesti og settust inn í tjaldið stóra í Húsdýragarðinum lásu Moggann og spjölluðu. Núna er litla daman sofandi og mamma að fara að mannna sig upp í að vekja hana, því það er sama hve blíðlega við foreldrarnir vekjum hana þá er mín alltaf stúrin svona fyrsta stundarfjórðunginn eða svo!!!!
Bless í bú

mánudagur, maí 08, 2006

Pikknikk



Í dag fór Sigga eldsnemma í mjólkumjaltirnar í Húsdýragarðinn með pabba sínum. Kom svo alsæl heim og uppgefinn. Eftir lúrinn var haldið aftur af stað í dalinn en þar hittust nokkrar Kínasystur úr hópi 12 og höfðu með sér nesti - jú pikknikk var það. Mikið er gaman að vera með þessum frábæru stelpum og upplifa vorið með þeim!!!! Þegar maður byrjar verður að halda áfram ekki satt!!!! Ekki var hægt að skilja fulgana útundan og fengu þeir brauðið sitt og svo fengu bæði mæðgur og dætur sér sundsprett í Laugardalslaug.
Lífið er yndislegt ..........................................
Bless í bú

laugardagur, maí 06, 2006

Vorið er komið



Mikið er nú skemmtilegt þegar vorið kemur. Tvær stórar frænkur voru í næturgistingu og ekkert smá gaman að fylgjast með öllu sem þeim datt til hugar. Eftir skemmtilegt kvöld sofnuðu þær frænkurnar undir meistarastykkinu um súkkulaðiverksmiðju Kalla og vöknuðu kátar og hressar í morgunverkin. Þá fórum við öll í laugina þar sem Sigga Bára var á heimavelli og naut sín reglulega vel enda orðin mikil sundgarpur. Eftir lúrinn var farið í Hreyfiland þar sem við hittum fullt af skemmtilegum krökkum og nutum þess svo vel að hoppa og skoppa og síðan er ekki slæmt að eiga þokkalega útisinnaða foreldra því eftir garðskoðun hjá frænkunum í Grafarholtinu þá tóku við garðverkin með Pabba þar sem við byrjuðum vorverk og lögðum línuna fyrir næstu daga. Sigga Bára er alveg klár á því að þegar kjóll eða skokkur er dreginn fram þá er afmæli í gangi. Svo mikið hefur verið í gangi að undirbúa afmælin undanfarið að Sigga Bára er búinn að syngja afmælissönginn í tíma og ótíma. Foreldrarnir voru hálf vandræðanlegir þegar nágrannar fóru að óska okkur til hamingju með afmæli hennar og þurfti smá útskýringar um að söngurinn hjá SBM væri bara undirbúningur fyrir afmæli hennar í sumar, en ætti ekki við rök að styðjast. En kvöldið endaði síðan með skemmtilegu kvöldboði hjá Palla og Höllu þar sem undirbúningur var hafinn fyrir Ítalíuferðina í sumar. Ammmalída

fimmtudagur, maí 04, 2006

Bólusetningar loksins búnar - í bili


Í dag lauk bólusetningum í bili hjá Siggu Báru og eru bæði foreldrar og hún mjög fegin. Hún lagði glöð í bragði af stað upp á heilsugæslu mjög stolt, leiðandi hann Níels apa. Svo þegar búið var að mæla hana og vigta leist henni ekki á blikuna - svo stungan - ég ætla ekki að lýsa augnaráðinu sem barnið gaf móður sinni. En við sluppum lifandi frá Krisínu frábæra hjúkrunarfræðingnum sem hefur fylgt okkur í gegnum þetta allt saman. Að því loknu fór Sigga með baukinn sinn í bankann og fékk "æmmælisgjöööö" var mín ánægð eða hvað. Fékk kúta sem við ætlum að fara með í sund á eftir!!! Smá statistik - Sigga er núna 10, 4 kg og 82, 5 cm en þegar hún kom til landsins þann 20. júlí sl. var hún 7,7 kg og 71 cm. Drottningin......................bara blómstrar.
Bless í bú

mánudagur, maí 01, 2006

Fyrsti maí og maður bara mokar og mokar



Hæ hó jibbý jei og jibbý jei það er kominn fyrsti maí!!!! Mikið er nú gaman þegar fjölskyldan fær svona auka dag og getur notið hans í þvílíkri veður blíðu í Garðabæ á ylströndinni. Við höfum eytt síðustu tveimur dögum þar að moka, láta bát sigla í litlum læk og skoða fallegar skeljar sem eru þar í þúsundatali. Amma hennar Siggu Báru og afi búa þarna rétt við ströndina og njótum við þess að koma þangað, fara út og svo heim þar sem afi og Siggi frændi hafa útbúið eitthvað gómsætt!!! Heppin eða hvað?
Þar sem mamman er að jafna sig eftir bruna er lítið um sundferðir þessa dagana/vikurnar og biðjum við því að heilsa sundfélögugum okkar sem munu hittast á morgun í Salarlaug - hugur okkar verður hjá ykkur :-(
Bless í bú

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Hjálmurinn kominn á kollinn


Jú það var á sunnudaginn sem litlu dömunni datt í hug að það væri nú kannski í lagi að prufa þennan hjálm - það var svo ekkert slæmt. Það sést vel á myndinni hvað pabbinn var stoltur þar sem hann hefur verið sveittur við að prufa ýmiskonar ráð til að fá hana Siggu Báru til að nota hjálminn. Í dag hefur hún farið út að hjóla nokkrum sinnum og berst ekkert gegn því að setja hjálminn á sig - við krossum bara fingurna og vonum að það breytist ekki!!!

föstudagur, apríl 21, 2006

Forvarnarfulltrúi og barnið sem ekki vill hjálminn!!!


Gleðilegt sumar!!!! Sigga Bára sést hér á myndinni nývöknuð með sumargjöfina sína. Hún fékk þríhjól sem hún er voða hrifin af og hefur verið dugleg að hjóla á því úti sem og inni. Það er bara eitt lítið en samt stórt vandamál - hún neitar algjörlega að setja á sig fallega Bangsimon hjálminn!! Pabbinn er varla vaknaður og skellir á sig hjálminn áður en hann eldar grautinn til að sína dóttur sinni að það er cool að vera með hjálm en sú stutta er lítið að fyrir það að fylgja tískunni og stendur fast við sitt - ENGAN HJÁLM TAKK!! Kannski finnst henni bara ekki cool að vera eins og pabbi eða ..........
Ekki veit ég hvaða trix lögreglan mun nota næst til að telja dömunni trú um að hjálminn verður hún að hafa til að getað hjólað úti en því get ég lofað ykkur að það verður fest á filmu og sett hér inn!!!!!
Bless í bú

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Sólríkir dagar


Það er búið að vera svo gott veður hér í höfuðborginni undanfarna daga og hefur Sigga Bára því verið úti við frá morgni til kvölds. Í gær vorum við svo heppnar að Þórey og Þórdís stóru frænkur eyddu deginum með okkur. Það var farið í Laugardalinn og öndunum gefið brauð, svo á róló og heim að borða. Þórhildur frænka kom við og fékk sér kaffi og sá stelpunum fyrir skemmtun á meðan mamma og Sigga Bára lögðu sig. Eftir hádegi var farið í Vesturbæjarlaug en þar hittist sundhópurinn mikili frá sundnámskeiðinu - en mikið söknuðum við Önnu Kristínar og Ragneiðar. Vonandi koma þær næst en þá verður hist í Grafarvogslaug ;-) Svo enduðum við þennan fallega dag í bestu ísbúð bæjarins í Vesturbænum mmmmmmmmmmmmmm. Á morgun er svo sumardagurinn fyrsti og þá ætla allar Kína dömur á landinu að hittast í Fram heimilinu og heilsa upp á kínverska sendinefnd frá CCAA og hvor aðra.
Þar til næst
Bless í bú

föstudagur, apríl 14, 2006

Ljósmyndafyrirsæta


Í gær var loksins riðið á vaðið og Aldís ljósmyndari mætti á svæðið og tók myndir af prinsessunni. Við höfum verið að trassa það að láta fagmann taka myndir af heni og vorum farin að hræðast það að ekkert yrði gert fyrr en á fermingardaginn hennar Siggu Báru- en hjúkk og púff og sjúkk þetta hefur verið gert og lítur vel út. Sigga Bára var bara alls ekkert feimin við hana Aldísi sem kom hingað heim og leyfði Siggu Báru meira að segja að taka nokkrar myndir. Hún Aldís er sannkarlaður proffs. Svo var farið í afmælisveislu til Sigga Vals en ykkur að segja þá er hann Siggi frændi ekta veislu maður því þetta var önnur veislan hans í tilefni af afmælinu þetta árið. Eftir að hafa borðað vel þar á bæ löbbuðum við í kirkjugarðinn og settum páskaliljur á leiði ömmu Gunnu og afa Olla og héldum svo heim á leið. Um kvöldið var svo farið í grill til Olgu frænku og haldið þið að Sigga Bára hafi verið þreytt eftir daginn? Já, hún vaknaði kl. 9 í morgun og hefur verið værukær í náttfötum að leira og leika við pabba sem er enn í náttfötunum núna kl. 12!!!
Bless í bú

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Kiðlingar, lömb og Sigga Bára


Halló vildum bara láta alla vita að það var æðislegt í Húsdýragarðinum. Það eru þrír sætir kiðlingar fæddir og fengum við að klappa þeim. Þeir voru svo gæfir og mjúkir að okkur langað mest til að halda á þeim heim. Svo voru líka tvö lömb fædd í fyrradag sem voru ekki síður gæf og lölluðu sér til okkar til að láta knúsa sig. Svo klikkar ekki að enda góða ferð á kaffihúsinu og fá sér heitt kakó og skúffuköku ( með rjóma)!!!!!
Settum nýjar myndir inn á albúmið.
Bless í bú

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Allir í fríi


Þessa dagana er gaman að vera til og fullt að gera, eiginlega pínu upphitun fyrir sumarið. Þannig er að Sigga á tvær móðursystur sem eru kennarar og núna eru þær báðar í páskafríi og hafa litið við í heimsókn og við til þeirra auk þess sem ein móðursystirin er að vinna vaktavinnu og er mikið heima þessa dagana - þetta er bara ein stór hátíð!!! Svona verður sumarið systurnar með ungana að leika !! Sigga er semsagt mikið að hitta fjölskylduna sína þessa dagana og er stefnan sett á húsdýragarðinn á eftir með frændsystkinum að skoða nýfædda geita unga - góð íslenska væri auðvitað að skoða nýfæddu kiðlingana en ekki "geitungana"!!!!!!!! Jú það er líka búið að vera gaman hjá henni í fermingum - fjórar að baki og tvær eftir. Síðasta ferming var hjá Steinunni Völu stóru frænku sem var svo falleg og fín í fermingarkjólnum og með nýju hárgreiðsluna. Því miður gleymdum við myndavélinni heima og því eru ekki til neinar myndir frá þeirri stórveislu.
Setjum inn myndir af geitungaferðinni inn á apríl albúmið.
Bless í bú

mánudagur, apríl 03, 2006

Fermingarvertíð hafin



Já hún Sigga er mikið bókuð þessa dagana og sér hún varla fram úr fermingarveislu flóði þessa árs. Hún fór í sína fyrsu fermingarveislu hjá honum Gunnari Agnars Margrétarsyni. Hún var að vísu látin halda að hún væri að fara í afmæli því það finnst henni voða gaman og hlakkaði henni mikið til að fara í þessa "ammæli" veislu. Þar sem það var síðasti skóladagur föðursins og vinkonu hans (Eddu Huld) vorum við svo heppnar að fá skemmtilega fylgdarfjölskyldu með í veisluna- engann annan en Kobba (manninn hennar Eddu) og börnin þeirra tvö. Sigga var að lita mestan part veislunnar ( móðir fermingarbarnsins er nefnilega kennari og veit hvað þarf að hafa fyrir börn í veislum - húrra ) og hesthúsaði ekki minna en 5 upprúlluðum pönnukökum ( nei hér er ekki verið að ýkja). Svo var hún farin að kunna svona vel við sig í afmælisveislunni að mín tók sporið og dansaði nákvæmlega eins og amma er búin að kenna henni (þið sem hafið séð það vitið hvernig sá dans er og geri aðrir betur). Þegar þessari gleði lauk var brunað heim og haldið áfram að fagna - en pappinn var búinn í skólanum og var því skálað af tilefni dagsins með ömmu, afa og foreldrunum. Afi og amma fóru svo með dömuna út að borða með frændsystkinum og enduðu skemmtiferðinni í Perlunni að borða ís. Já hún er heppin þessi dama að eiga ömmu og afa með orkuna í botni og alltaf til í stuð og endalaust stuð. Foreldrarnir fóru nefnilega út að fagna með skólafélögum Kalla. Þegar heim var komið var tátan sofnuð í SÍNU rúmi og allt "under control" hjá Ernu og Val. Það er ekki hægt að segja bara sannleikan hér : foreldrarnir voru ánægðir með hvað Siggu líður vel hjá ömmu og afa en um leið pínu svekkt yfir því að hún grét ekkert yfir því að við værum ekki heima!!!! Hún er orðin svo örugg með ömmu og afa sem við erum mjög þakklát með.
En nóg um það hennar bíður þrjár veislur til viðbótar og Sigga er til í fjörið með taktana tilbúna til að tjútta.
Bless í bú

þriðjudagur, mars 28, 2006

10 kílóa múrinn rofinn


Í dag var merkisdagur hjá Siggu Báru en við fórum í sund seinnipartinn í dag með sundfélögum úr hópi 12. Það er fastur liður áður en farið er út í laug að skella dömunum á vigtina og svo er mikið spekúlerað í þyngd hverrar og einnar. Sigga hefur verið sú eina sem ekki hefur komist í tveggja stafa tölu en það gerðist í dag - ekki lengur níu komma eitthvað heldur hreint og flott 10 hvorki meira né minna!!!!! Varð bara að skrásetja þetta hér á þessa síðu svo við gleymum ekki þessum degi. Það var svo haldið upp á þetta með því að fara í Vesturbæinn eftir matinn í þá bestu ísbúð í Reykjavík og keyptur "gamli ísinn" og heit karamellusósa to go!!!
Sigga er svo sofnuð núna kannski tíu komma eitt (eftir ísinn)
Bless í bú
Gyða

fimmtudagur, mars 23, 2006

Fimmtudagar eru aktivitet dagar


Jú dagurinn í dag var kraftaverk eins og allir aðrir dagar. Hún Sigga er kúrari og þarf svona að liggja og kúra í hálfa klukkustund áður en litlir fætur eru tilbúnir að snerta kallt parketið. Hver man ekki eftir því þegar maður var lítill hve gólfið var oft kallt. Nema við tók að setja Línu tígó í hárið og undirbúa sig fyrir komu ömmu og afa. Þau eru svo skemmtileg þessi afi og amma sem Sigga á að það hálfa væri nóg. Þau hitta snúllu á hverjum fimmtudagsmorgni og gera eitthvað skemmtilegt með henni. Í dag var farið í Grasagarðinn og öndunum gefið að borða. Því næst var labbað í Húsdýragarðinn og heilsað upp á Snorra sel og fleiri kunningja. Þessu lauk svo með góðri heitri súpu á veitingarstað Húsdýragarðsins en þar sér um matseldina hann Óli kokkur og klikkar hann aldrei. Við fórum svo í okkar síðasta skipulagða Ungbarnasundtíma á Reykjalundi. Það var skrítið að þessi fasti punktur í tilverunni væri horfinn - allaveganna í bili. Mæðgurnar höfðu í nóg að snúast og brunuðu því næst í Ingunnarskóla þar sem frænkur okkar voru með nemendasýningu - Afríku þema. Mikið gaman að fylgjast með vinnunni þeirra í skólanum. Eftir það var farið í mat til Bínu frænku og voru það þreyttar mæðgur sem brunuðu aftur í borgina nokkrum tímum síðar.

Bless í bú

miðvikudagur, mars 22, 2006

Aldursforseti


Sigga Bára og móðir ákváðu að skella sér á mömmumorgun í frábæru kirkjunni okkar í morgun. Það var gaman að hitta þessar hressu mömmur og ungana þeirra. Sigga var nú samt aldursforsetinn þarna og fékk því að ráða svolítið miklu hvaða kubba hún léki sér með og hvaða dýr ættu að vera hjá henni, eðlilega!!! Svo var farið heim að borða og út í kerru að sofa á meðan mamman labbaði með ungann sofandi. Sigga vaknaði svo ekki fyrr en eftir langa göngu, við kvakið í gæsunum í Grasagarði - það er alltaf jafn gaman að skoða fuglana. Hún er núna með mikið Línu æði og vill bara hlusta á Línu í bílnum sama lagið aftur og aftur og aftur og aftur. Klappar og lætur apann sinn dansa með. Mamman er ánægð með það þar sem Lína er hennar uppáhald og mun hvetja hana til ýmissa prakkarastrika í framtíðinni - já varið ykkur bara ;-)
Bless í bú og von bráðar munu birtast safnalbúm með mánuðunum.
Línu kveðjur
Sigga og Gyða

mánudagur, mars 20, 2006

Halló Heimur



Halló heimur!!!

Sigga Bára Min vildi bara segja halló og láta vita að hún vex og dafnar hjá mömmu og pabba. Daman hefur ekki bara stækkað heldur þroskast mikið og er farin að tala heljarinnar ósköp. Hún er félagslynd og elskar að vera úti að leika sér. Ekki leiðinlegt fyrir mömmu og pabba sem elska að vera úti að dundast. Hver veit nema við förum að endurlífga þessa síðu en í dag eru 8 mánuðir frá því að fjölskyldan kom heim frá Kína.

Bless í bú

mánudagur, ágúst 15, 2005

Garðvinna, kínasystur og klipping

Myndir
Ungfrú Sigríður Bára tók sig til og aðstoðaði foreldra sína við garðvinnu fyrr í vikunni. Sendi reyndar lofthræddan og aldraðan föður sinn upp á húsþak að mála og veifaði honum af og til svona rétt til að telja í hann kjark. Þá fannst henni móðurin ekki týna grasið nægjanlega hratt úr beðunum svo hún borðaði slatta til að auka yfirferðina svo allur dagurinn færi nú ekki í svona verkefni. Henni fannst þetta nokkuð gaman en skemmtilegra er þó að sitja í kerrunni og horfa á heiminn og hver getur ekki tekið undir það?
Hún er orðinn ótrúlegur orkubolti og foreldrarnir þurfa að hafa sig alla við til að annast hana. Sigga Bára vill helst ganga ( með aðstoð) um alla íbúðina, aftur og aftur og bendir síðan á það sem henni líst best á hverju sinni og vill skoða nánar. Bognir í baki en með viljann fyrir verki eru vaktaskipti hjá þeim "gömlu" til að allt sé nú gert eftir "pedagoginu"
Í dag hittum við síðan kínasystur hjá Matthildi í Mosanum og það var gleðistund og gaman að sjá hversu miklar framfarir eru hjá þeim öllum. Hafa mikið stækkað og styrkst auk þess að luma á einu og einu nýju "trixi" sem sjálfsagt er meira fyrir egóið hjá okkur foreldrunum en mat á þroska stúlknanna.
Nú á leiðinni heim var farið í fyrstu klippinguna sem tókst vel, ekkert væl eða neitt heldur bara góð fagmennska hjá þeim í stubbalubbum í Grafarvoginum

mánudagur, ágúst 08, 2005

Örugg stjórn á Hofteignum

Myndir
Óhætt er að segja að það sé fjörugt lífið á Hofteignum og enginn vafi hver ræður þar ríkjum. Ungfrú Sigríður Bára Min hefur tekið við stjórnartaumum og heldur fast um þá og örugglega. Svefn og vaka á bænum fer eftir hennar ákvörðun og tekur þá jafnt til hennar og foreldrana sem snúast í kringum þá stuttu enda ekki annað hægt. Við höfum fengið mikið af heimsóknum en við fylgjumst vel með þegar við sjáum þreytumerki á henni því ekki má fara of hratt í hlutina til að þetta aðlögunarferli verði sem best.
Við vorum að skoða eldri myndir af Siggu og sjáum að hún hefur dafnað mikið og þyngst enda mátti hún við því. Einn frændinn sem kom á matmálstíma missti út úr sér að "það væri eins og að koma á Múlakaffi" að lenda hjá okkur í hádeginu. Þá var á boðstólum, grautur, lifrapylsa, rúgbrauð og kæfa svo fátt eitt sé talið upp. Allt er þetta auðvitað gert með ráðnum hug til að koma nokkrum kílóum á Siggu en hún hefur styrkst mjög mikið undafarna daga.
Í gærdag fórum við í heimsókn til Afa á spítalann og sú stutta rak upp öskur þegar pabbinn settist með hana á sjúkrarúmið hjá afa, hélt ábyggilega að þarna stæði til að fara í einhverja læknisaðgerð og var ekki tilbúin að taka þátt í því. En við sáum að það lyftist brúnin á Afa við að sjá hana og við förum næst í heimsókn til afa þegar hann er kominn heim aftur.
Annars gengur allt vel og mikið er frábært að geta átt svona góðan tíma með henni þessar fyrstu vikur

fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Grillveisla hjá Sunnu Herborg

Myndir
Í dag var hátíðisdagur hjá Kínasystrum þar sem ein þeirra, Sunna Herborg, efndi til veislu þar sem grillað var á tveimur grillum og voru sérvaldir kokkar þar við stjórnvölinn sem sáu til þess að allir fengju magafylli ( þurfti þó nokkuð af mat þar sem þær eru allar með góða matarlyst). Það var gaman að hitta alla aftur og fann maður mikið fyrir þeirri vináttu sem hefur myndast innan hópsins og hve rík við erum að eiga þetta góða fólk að. Eftir þessa miklu veislu þurfti að brenna þeim hitaeiningum sem búið var að hlaða utan á okkur og ákvað því hún Sigga að nú væri nóg komið og tími til kominn að skella sér í sund. Hún Sigga fór að skríkja hástöfum þegar við nálguðumst World Class en þar förum við í laugina - margur er knár þó hann sé smár. Jú rétt var það - við brenndum nokkrum hitaeiningunum í þessari ferð en auðvitað komum við sársvöng til baka og höldum við að núna stöndum við á sléttu eftir daginn þar sem við nærðumst vel áður en sú stutta hélt til náða.
Við njótum þess mikið að vera þrjú saman þessa dagana og það er ótrúlegt að sjá hvað hún Sigga Bára er að komast út úr skelinni meira og meira - mikill prakkari og stuðbolti sem er að fæðast!!!! Takk fyrir hlýjar kveðjur kæru vinir - bless í bú í bili.

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Fréttir af Siggu Báru

Myndir
Þar sem við höfum fengið nokkrar kvartanir yfir því að hafa hætt að segja fréttir af okkur, þeas mest þeirri stuttu, á netinu var ákveðið að setja nokkra nýja punkta um hvernig miðar. Sigga Bára en nátturulega búin að vera alveg frábær finnst okkur og allt hefur gengið ljómandi vel. Hún hefur aukið styrk sinn mikið enda mikið matargat en þó vandlát á hvað henni er boðið uppá þannig er hún t.d. ekki hrifin af "vegalambi" spýtir því útúr sér og vill frekar eitthvað annað en rolluna. Kannski er hún bara matgæðingur og við höfum ekki verið að bjóða henni rétta bragðið.
Við förum með hana í góða göngutúra á hverjum degi og erum að verða búin að ganga um allan bæ og sú stutta situr eins og keisaraynja í kerrunni sinni og baðar út höndum ef sá háttur er á henni en annars situr hún og horfir vel í kringum sig skoðar umhverfið.
Við fórum aftur í sund í dag, núna í laugardalslaugina, og þar var mikið buslað og skemmt sér og ekki mikil hræðsla við vatnið hjá henni.
Hennar hátign féllst loks í dag á beiðni yfirvalda að láta í té þvagsýni en formleg beiðni barst henni fyrir um tveimur vikum síðan og allmargar tilraunir yfirvalda til að ná niðurstöðu í málinu hafa farið út um þúfur. Hún er sem sagt þrátt fyrir allt kona sátta!
Núna bíðum við spennt eftir að hún sleppir sér og kannski standi ein en við teljum að það geti verið stutt í slíka stund hjá henni. Hún hreinlega vill ganga með stuðningi okkar um alla íbúð og foreldrarnir eru orðnir ansi hreint "bognir" í baki og verða að skipta þessu hlutverki á milli sín.
Látum nægja að sinni

þriðjudagur, júlí 26, 2005

Áfram miðar aðlögun

Myndir
Vel miðar með litlu prinsessuna sem virðist una sér vel hjá okkur á Hofteignum. Við höfum verið dugleg að fara með hana í göngutúra og þá sérstaklega í Laugardalinn sem er sérstaklega fallegur og barnvænn þessa dagana.
Okkur finnst hún hafa styrkst mikið enda dugleg að borða og finnst gaman að ganga en við þurfum samt að halda vel við og aðstoða. Reyndar finnst okkur göngulag hennar nokkuð skondið en hún hefur ekki ennþá náð fullu valdi á fótunum og gengur því stundum eins og "rússneskur hermaður" þeas gæsagang með teinréttar fætur fram og slær þeim síðan í jörðina.
Í dag fékk hún að hitta svolitið af fólki og tókst að heilla alla auðvitað enda mikill sjarmur sú stutta, hún meðal annars hitti "ömmu" Dóru og Sigtrygg og síðan Ernu Hrund og Magga Val sem eru mikið stolt af litlu frænku sinni.
Líklega setjum við einhverjar myndir inn í kvöld eða fyrramálið.

mánudagur, júlí 25, 2005

Sunnudagurinn 24 júli

Aðlögun hjá henni Siggu Báru gengur mjög vel, hún virðist mjög ánægð á Hofteiginum og dundar sér vel bæði að leika sér ein eða þegar foreldrarnir eru með. Það eru einkum ýmis þroskaleikföng sem hún skoðar og veltir fyrir sér og síðan hlutir sem gefa frá sér hljóð sem eiga hug hennar. Við keyptum síðan fyrir hana kopp og það var ekki að spyrja að því sú stutta settist beint á hann og hafði alveg á hreinu hver tilgangur hans væri. Ekki var laust við að foreldrarnir fengu nokkuð samviskubit yfir því að hafa ekki fjárfest í slíkum kostagrip fyrr en við margspurðum um þetta úti í Kína og var alltaf sagt að mjög ólíklegt væri að hún hefði notað slíka gripi. Lin Wei hafði hins vegar sagt okkur að sér þætti það nú ansi hreint líklegt og við hefðum betur hlustað á hennar ráðleggingar en yfirvaldanna. Alla vega þetta er í höfn og við byggjum út frá því.
Amma Erna kom í kvöldmat í gær og sú stutta var ekkert smá hrifin af henni, hló og skríkti þegar þær léku sér saman á gólfinu við kubbaleik og fleira. Amma fékk meira að segja aðeins að halda á henni þó þannig að Pabbinn hélt líka og þetta var voða stutt en samt sú fyrsta sem hún réttir hendur til og fylgir eftir fyrir utan foreldrana. Síðan svaf hún í alla nótt og vaknaði um kl 07:00 og eftir morgungrautin þá var mikill gals í henni og ekkert á því að fara að taka einhvern morgunlúr en lét þó undan. Núna þegar hún vaknar verður gerð tilraun tvö til að taka blóðsýni og fleira því þá er læknistími.

laugardagur, júlí 23, 2005

Laugardagurinn 23 júli

Myndir
Í dag fengum við morgunheimsókn frá Bróa og Eddu og eftir smá hressingu fórum við saman í göngutúr út í Grasagarðinn í laugardalnum. Ótrúlega þægilegt að hafa svona fallegt útivistarsvæði rétt við heimilið. Nú síðan fórum við að leika í garðinu og ennþá finnst þeirri stuttu gras svolitið ógeðfelt viðkoma og það fer um hana þegar hún snertir það alla vega berfætt. Palli og Halla komu síðan í stutta heimsókn með Védísi og Steinunni Völu og færðu Siggu Bára svo fallega peysu sem Halla hafði prjónað. Fjölskyldan var síðan ennþá þreytt og er ekki búin að ná sér eftir tímamuninn og ferðalagið þannig að feðginin sofnuði um átta og húsmóðirin stuttu síðar eftir að hafa "sett í eina hjónabandsælu" Landlystardugnaðurinn alltaf til staðar

föstudagur, júlí 22, 2005

Fyrsta læknisskoðunin og heimsóknir hafnar

Myndir
Sú stutta var orðin úthvíld og krafðist þess kl 03:00 í nótt að fá eitthvað að borða enda klukkan þá 11 að morgni í Peking og allar keisaraynjur búnar að fá þá marga góða rétti. Svo foreldrarnir urðu að skella sér framúr og útbúa kræsingar fyrir hana og bera á borð og halda henni félagsskap uns auglokin voru orðin þung á ný eftir um tveggja stunda vöku og þá var sofið til 09. Foreldranir eru ennþá að ná sér eftir tímamuninn og voru hreinlega búin á því í gærkvöldi og afboðuðu fjölskylduheimsóknir sem höfðu verið samþykktar. Við hreinlega vorum tekin úr sambandi og sváfum meðan gefið var tækifæri til. Morguninn hófst síðan með því að koma við á Þjóðskrá til að skrá dömuna en það var svo mikil röð af fólki þar að við urðum frá að hverfa því við áttum bókaðan tíma hjá Gesti barnalækni sem skoðaði allar Kínasysturnar í dag. Þær Landlystarsystur geta nú verið stoltar af Siggu Bára því hún lét nú þennan lækni ekki vaða yfir sig þrátt fyrir hvítan slopp og margar gráður. Hún á mjög afgerandi hátt (orgaði) sýndi honum fram á það að þessi stund væri henni ekki þóknanleg til flókinnar læknisskoðunar eins og blóðsýna eða þvagtöku því það bara hentaði henni bara ekki þá. Enda herber dónaskapur ef maður hugsar það í botn að ganga svona langt við fyrstu kynni. Þannig að Gestur fullyrti að það amaði nú ekki mikið að þessari snót hún var bara vigtuð og mæld og gert berklatest en öðru frestað og þarf að hefja samningaviðræður við fulltrúa hennar hátignar um þóknanlegan tíma aftur. Gestur á hrós skilið fyrir fagmennsku, tillitsemi og þær tilraunir sem hann gefur hennar hátign.
Þegar litla fólkið var að mestu búið að jafna sig heldum við mjög spennt til Ömmu Ernu í nýju íbúðina á Strandvegi og mikið gladdi það nú ömmu að fá bros frá nýjasta barnabarninu sem er ekki þekkt fyrir að útdeila því neitt sé ekki tilefni til. Hún var alsæl á nýja parketinu og raðaði síðan í sig kræsingum hjá ömmu enda hún þekkt fyrir góða húsmæðrarétti. Þá tók við heimferðin og þegar komið var á Hofteiginn biðu Bína, Telma og Þórey frænkur í garðinu spenntar að hitta dömuna og gátu þær leikið sér aðeins í garðinu. Nú síðan koma Bára sem daman er nefnd í höfuðið á og miklir fagnaðarfundir voru nú hjá okkur öllum. Bára er stödd hér í stuttri heimsókn frá Svíþjóð þar sem hún býr og ljómaði af ánægju að fá tækifæri að hitta nöfnu sína fyrir brottförina.
Nú síðan tók við matseld þar sem hún borðaði bland að alþjóðlegum og þjóðlegum réttum en hún fékk í fyrsta skipti skyr og rjóma og líkaði vel. Nú er hún sofnuð og við bíðum spennt eftir hvenær dagskráin hefst á morgun.

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Komin heim eftir langt ferðalag

Myndir
Jæja þá er litla fjölskyldan loksins komin heim til sín. Ferðalagið var frekar erfitt og strangt. Tók rétt tæpan sólarhring frá því við lögðum af stað frá hótelinu í Peking þar til komið var á Hofteiginn. Sú stutta var nú ekkert að sofa neitt mikið kannski 3-4 tíma í heildina í ferðinni allri þannig að hún var nú ansi hreint þreytt eftir þetta allt saman. Hún svaf svo ágætlega í nótt vaknaði kl 06:00 (Pabbinn ánægður með það) og var núna að ná sér í smá blund þannig að við læddumst í tölvuna.
Vegabrefið hennar Siggu Báru hefur hvarvetna vakið mikla athygli enda myndin með eindæmum og landamæraverðir helgið mikið og sagt þegar þér sjá þetta fallega barn að hún hafi nú braggast mikið frá myndatökunni. Þetta skilja menn betur þegar þeir sjá vegabréfið.
Það var ólýsanlegt að ganga með hana í fanginu um íbúðina og sjá brosið sem færðist yfir hana þegar hún þekkti sig af myndum á veggnum í herberginu hennar auk þess sem henni finnast útsaumuði álfarnir sem Amma Sí (Sigríður Karlsdóttir) hafði saumað á sínum tíma alveg svakalega sniðugir og fallegir.
Núna er stefnt að því að taka upp úr töskunum í rólegaheitum og láta dömuna sjá sem mest af hlutum sem hún þekkir þannig að aðlögun hennar gangi sem best fyrir sig. Fjölskyldan fær síðan smá saman að koma og hitta hana eftir því sem styrkur hennar og aðlögun leyfir.
Biðjum kærlega að heilsa öllum og við erum í skýjunum að vera komin heim eftir langt ferðalag

mánudagur, júlí 18, 2005

Nú líður senn að lokum

Jæja kæra fjölskylda og vinir. Núna fer að líða að því að við komum heim og erum við farin að hlakka til að koma litlu Siggu heim í sitt örugga skjól. Því miður getum við ekki sett inn myndir eins og staðan er hjá okkur en hótelið sem við gistum á núna er ekki vel búið þ.e. það tekur svooooo langan tíma að setja myndirnar inn á netið og viljum við frekar nýta þann tíma til að dást að fegurðinni sem liggur sofandi niðri í herbergi núna.
Reynum að setja inn nýjar myndir á morgun ef sambandið verður eitthvað betra þá. Annars sendum við ykkur öllum þúsund kossa yfir hafið og þökkum fyrir falleg orð og hugsanir þann tíma sem við höfum verið hér.
Ykkar Sigga Bára, Kalli og Gyða ( þetta er forgangsröðunin hér hjá fölskyldunni núna).

sunnudagur, júlí 17, 2005

Fyrsta flugferdin og hugad ad heimferd

Thad er otrulegur munur ad komast ekki a netid i herberginu og thess vegna hefur ekkert heyrst i okkur lengi lengi. En fyrstu flugferd keisaraynjunar gekk vel, hun vakti allan timann og helt uppi studi hja folki i kring. Matti meira ad segja sja bros hja m0nnum sem baru med ser ad flokkurinn hafi bannad ad brosa:-). Joke
En hingad erum vid komin og thad er gott ad vera buinn med thennan afanga af heimferdinni. Daman er god nuna en hun rauk upp med hita i gear og tha reyndist vel ad hafa Sigrunu laekni med i ferdinni. Daman fekk stil og sofnadi sidan og var ordin hress i dag thegar sumarhollin var skodun. Vid tokum eitthvad af myndum en tahd er hald erfitt ad hlada theim inna kerfid nuna, allur timinn fer i ad thonusta tha stuttu. Hun er lika svo otrulega sekmmtileg og mikill sjarmi ad vid gleymum okkur bara. Nu a morgun forum vid i danska sendiradid til ad fa aritun fyrir hana heim og tha bara forum vid ad koma fljotlega.
Nudlu kvedjur fra okkur thremur
PS HEIDRUN OG AUDUR TIL HAMINGJU MED DAGINN

fimmtudagur, júlí 14, 2005

Lífið er yndislegt það er ljóst

Lífið er yndislegt það er ekki hægt að segja annað. Litla daman er svo ótrúlega skemmtileg að það hálfa væri nóg. Hún var greinilega “löt” í morgun og svaf til 6:30 og þá vildi hún bara aftur koma uppí til okkar og kúrði sig hjá okkur og greinilega vissi að við voru bæði frek á hana þannig að hún skipti sér jafnt á milli.
Annars er það að frétta að það er mjög heitt hérna í Nanchang í dag og frekar hreint loftið eftir miklar þrumur, eldingar og rigningar í gærkvöldi og fram á nótt. Í dag fórum við að skoða Pavillion eða eins konar sýningarhöll sem fyrst var byggð um 650 eftir krist en hefur verið endurbyggð 29 sinnum síðan þá af ýmsum ástæðum bæði nátturhamförum (flóð) og af mannavöldum. Það var einhver fylkisstjóri hérna sem var mikill fræðimaður og skáld og fleira sem lét byggja þetta hús í upphafi sem var svo eingöngu fyrir fyrirfólk og var fyrst opnað almeningi um 1999 ef við náðum þessu rétt. Vorum við ekki stórveldið í norðri (Ísland og Noregur) að reyna að okkur á þvi þá hvort við gætum grafið okkur inn í moldarhauga á þeim tíma er þetta var byggt? Hér voru menn þá að mála málverk meðal annars með því að nota fiðrildi sem litagjafa og eins sem grunnþátt í verkinu sjálfu, auk þess að yrkja ljóð og búa til keramik. Það má gera grín að okkur ekki satt!
Það er alveg ótrúlega skemmtilegt og fróðlegt að fá fræðslu um þá menningu sem hefur ríkt hér um aldir og sérstaklega þá frá keisaratímum þessa stórveldis. Nú önnur menning er ekki síður merkileg en jafnframt sú hættulegast sem við höfum upplifað og það er umferðarmenningin. Það rifjast bara upp fyrir pabbanum samtöl við Gunnlaug heitinn Þórðarson dr. júris sem þekktur var fyrir frjálslegar skoðanir sínar á umferðarreglum því umferðarljós hafa enga þýðingu hérna, þau bara kveikna og slökkna eftir ferli sem enginn fer eftir. Menn keyra bara eins og þeim hentar og fara þá leið sem þeir telja best (hljómar bara svolítið íslenskt líka). Umferð á hraðbrautum getur þurft að stöðva skyndilega því einn gamall með allt sitt hafurtask á handvagni (jú auðvitað með minnst þrjár hænur líka í búri) hefur ákveðið að ganga eftir götunni betfættur og finn. Hér bara geng ég og hvað með það! Mest er þó hættan fyrir gangandi því þeir eru fullkomlega réttlausir hér og við höfum nær því verið ekin niður af lögreglubíl á gangbraut og fengið flaut fyrir að dirfast að ganga á þessum Zebrabrautum. Hér ægir líka öllu saman og andstæður ótrúlegar, það er splúnkunýr Audi eða BMW hugsanlega númerslausir sem aka við hlið ökutækja sem maður veit eiginlega ekki síðan hvenær eru eða þá eru dregin áfram af handafli. En þetta er alveg ólýsanlegt og flott að upplifa. Að vísu nota menn minna flaut hérna en í Peking en þar held ég þeim hafi verið kennt að í hvert sinn sem eknir hafi verið 5 metrar þurfi að flauta minnst tvö flaut og siðan halda áfram. Við myndum ekki fyrir okkar litla líf þora að keyra hérna um í borgunum svo mikið er víst.
En úr þessu til dömunar litlu sem braggast svo vel og er alveg yndisleg. Hún hefur svoleiðis sjarmerað okkar upp úr skónum og hlær núna og skemmtir sér, setur upp svo svakalegan púkasvip stundum að við skellum bara uppúr enda ekki annað hægt. Talandi um Púka Púkadóttir! Það hefur aðeins borið á smá öfund frá móðurinn sem segir að Pabbinn hafi aldrei sýnt þessa ”knúshlið sína áður”. Erfitt að rata milliveginn maður! En myndirnar tala sínu máli um þetta allt hjá okkur. Við erum orðin frekar spennt að koma heim en á morgun förum við aftur til Peking og því verður örugglega einhver bið í næsta blogg frá okkur því það er ekki nettenging á hótelherginu þar sem við dveljum þar því miður. En núna förum við að pakka og gera klárt fyrir fyrstu flugferð keisaraynjunar sem var borin af ”háöldruðum” foreldrum sínum í kerrunni sinni í dag 5 hæðir og þótt það bara alveg sjálfsagt.... Er þetta það sem koma skal?

Vegabrefið er komið til okkar

Þá er vegabréfið hennar Sigríðar Báru Min komið í okkar hendur og þvilík mynd.... hélt að það væri ekki hægt að gefa út vegabref með svona mynd daman hágrætur svo rosalega að það er ekki eðlilegt.
Við erum búin að sjá það að daman er þrælhress og skemmtilega á morgnanna þannig að pabbinn getur farið með hana í morgunverkin (kaffigerð og breakfast buffet) meðan mamman týnir "gúrkurnar" úr augunum eftir bjútisvefninn..... eins gott að hún sjái þetta ekki þá yrði nú eitthvað lesið yfir gamla...
Samt smá leiðrétting frá pistilinum í gær þar sem rætt var um umferðarmenningu, ég veit ekki hvort einhver heyrði til okkar en alla vega í þeim bæjarhluta sem við vorum í dag, stóðu lögreglumenn á pöllum á miðjum gatnamótum og stýrðu sem herforingjar umferðinni með flottum handahreyfingum og tilheyrandi breytingum á fótastöðu til að gætt væri siðareglum lögregluliðsins. En samt gætti sömu fjölbreyttu florunar í umferðinni, mikið af vespum þar sem menn keyra auðvitað hjálmlausir en kannski með alla fjölskyldumeðlími utan á hjólinu. Verð að hætta við erum að fara að leita að einhverjum skóm á dömuna því hún á enga nógu litla á sig og ekki er hægt að fara með hana skólausa til höfuðborgarinnar hennar.
Aftur þúsund þakkir fyrir hlýju orðin og kveðjurnar til okkar, hún er algjör engill þessa dama og við slítum ekki skóm sjálf...

þriðjudagur, júlí 12, 2005

Allt gengur betur og betur

Það er óhætt að segja að hlutirnir gangi betur og betur hjá okkur hérna úti. Daman svaf eins og eftir pöntun í nótt rumskaði ekki og hrotur foreldrana virðast því ekki hafa mikil áhrif á hennar jafnaðargeð! Hún vaknaði um sex í morgun og rétti þá bara hendurnar til mömmu sinnar og heimtaði að koma uppí þar sem hún kúrði hjá gamla settinu í klukkustund áður en við fórum saman í morgunmat. Þar auðvitað var hún langflottust, týndi upp í sig sjálf eggjabrauð, vatnsmelónu, hræð egg og annað góðgæti. Foreldranir eru aðeins að læra hversu mikið má setja af fæði fyrir framan hana og mismikið gefur hún nú fyrir einhverjar Pedagogiskar aðferðir um að ekki megi henda matnum í kringum sig…. Víð kíktum síðan í sundlaugina þar sem Styrmir, Dóra og Sunna Herborg voru að synda. Daman okkar var ekki alveg viss hvort henni líkaði vatnið en hún þarf nú að læra það fljótlega áður en hún verður mætt á sinn stað með frænkum sínum í laugardalnum. Ef við þekkjum þær rétt verður farið að taka frá pláss fyrir hana innan margra daga í tröppunum.
Það er búið að vera stutt í brosið hjá henni í dag við fórum í mjög skemmtilegan Doaista garð í dag þar sem Dao munkar hafa byggt upp musteri og hafa sýningu á sínum trúarathöfnum.
Það eru alveg ótrulega skemmtilegar framfarir hjá henni og hún horfir á kerruna sýna sem sinn keisaraynjuvagn sem ber að keyra hana í þóknist henni svo og við þorum ekki annað en að hlaupa til. Svo eru menn að tala um einhverja Atkinskúra eða kolvetnakúra, það sem er miklu nær er bara dagur með kínverskri keisaraynju og kílóin fjúka…..
Við fórum síðan á fínan veitingastað í hádeginu þar sem dömurnar heilluðu alla starfsmenn. Sigga Bára var alveg til að leyfa þjónustustúlkunum að halda á sér en heimtaði síðan strax að koma aftur til Pabba og Mömmu á milli þess sem hún skríkti þegar hún týndi mat upp í pabba sinn sem henni finnst ótrulega fyndið, sérstaklega þegar hann “óvart” bítur aðeins í fingur hennar. Síðan var komið að sídegislúrnum og öll þrjú náðum við rúmum klukkutíma og í þessum töluðu orðum eru þær mæðgur að kúra saman og ekki er annað að sjá en þeim líki það báðum mætavel.
Við reynum síðan að setja inn einhverjar myndir á eftir en við erum að hlaða þeim niður á netið, tókum ekki nema 100 myndir af henni dag!

Barnaheimilið heimsótt og styttist í brosið

Þetta er búinn að vera viðburðaríkur dagur hjá okkur þremur. Daman svaf auðvitað eins og eftir pöntun frá níu til sex og var síðan bara nokkuð ljúf alla vega munum við ekki betur núna um kvöldið þegar þegar þetta er ritað, það er svo mikil gleði hjá okkur. Pabbinn fór í ferð sem skipulögð var af okkur á barnaheimilið til að skoða aðstæður og reyna að finna þá staði sem stúlkurnar fundust. Gyða og Sigga Bára voru heima og það gekk vel, daman er orðin verulega hænd að mömmu og réttir fram þessa fínlegu fingur sína í áttina til hennar og segir mama og grettir sig líka af og til.
Ferðin á barnaheimilið var viðburðarrík, þetta er myndarstofnun þar sem um 300 börn fara um árlega og þar af um 100 sem eru ættleidd til Vesturlanda á hverju ári. Mikill minnihluti þeirra er á staðnum eða um 50 en önnur eru hjá fósturforeldrum. Tvö börn úr okkar hópi voru nokkra mánuði á heimilinu fyrir síðustu viku og gaman var að sjá brosið þeirra þegar þær sáu starfsstúlkurnar. En þetta er ekki átakalaust að skoða svona staði, allt er mjög fínt fannst okkur, snyrtilegt og reynt að hafa eins heimilislegt og hægt er en mörg barnanna eru þarna til táningsára og mörg hver þeirra þurfa á sérstakri hjálp að halda. Þau komu og föðmuði þau börn sem þau þekktu og það snerti verulega hjartað að sjá þessi fallegu börn og geta hreinlega ekki tekið einhvern þeirra með sér. Við gáfum heimilinu mikið magn af mjólkurdufti sem síðan er gefið frá heimilinu til fósturforeldrana en við fengum lýsingu á þvi hvernig fylgst er með uppeldi þeirra og umönnun. Síðan var okkur boðið í mat af aðstoðarforstjóranum sem er vingjarnleg kona. Maður gat ekki greint annað en að menn væru mjög stoltir af þeirra starfsemi og þeirri umönnun sem þau standa fyrir. Það tókst hins vegar ekki að finna staðina, margir þeirra eru svo langt frá heimilinu að við höfðum ekki tíma auk þess sem það rigndi svo mikið og miklar þrumur að rafmagnið fór af veitingastaðnum. Þannig að við höfum ekki séð staðinn sem Sigga Bára fannst en það þýðir bara að við munum koma hingað aftur með dömuna og ferðast um. Landslagið er ólýsanlega fallegt, mikið af ökrum um allt og fólk að vinna og ennþá eru notaðar fornar aðferðir eins og að láta uxa draga áfram búnað til að vinna akrana. Síðan eru líka miklar andstæður þar sem upp úr ökrunum rísa voldug umferðarmannvirki þar sem verið er að byggja hraðbrautir og símamöstur. Verð að segja eins og er að akramyndin af Kína mun lifa lengur í minningunni.
Nú eftir kvöldmatinn, sem varð skammur endir á þar sem sú stutta skilaði frá sér þannig að ekki var hægt að leggja á gesti 5 stjörnu hótelsins að borða við lyktina, þá fórum við í góðan göngutúr meðfram ánni sem líður hérna um borgina. Fjölmargir Kínverjar gáfu sig á tal við okkur og þrátt fyrir mikið fingramál sáum við að þeir voru ánægðir að sjá okkur með litlu sætu snúlluna sem skellir nú upp brosi oftar og oftar. Það eru að koma ansi hreint skemmtileg persónueinkenni hjá henni, er alvörugefin og íbyggin. Tekur sér góðan tíma til að ákveðna hvort hún taki fólk í sátt eða ekki en gefur mikla hlýju þegar þangað er komið. Nú síðan vantar ekki skapið í þá stuttu eins og áður hefur komið fram, kemur svona létt "systra sveifla" hjá henni sem ég veit að sumir þekkja. Þetta allt og síðan ótrúleg fimi hennar sannfærðu okkur í kvöld að hún mun aðlagast vel í Landlystarhópinn.
Jæja látum nægja í dag og biðjum kærlega að heilsa og þökkum enn og aftur allar þessar hlýju kveðjur sem við erum að fá það er virkilega gaman að lesa þær yfir á kvöldið þegar sú stutta er sofnuð.

mánudagur, júlí 11, 2005

Lagalegum frágangi lokið

Þá er lagalegum frágangi okkar lokið hérna í Nanchang borg. Við fórum í morgun öll saman og það tók kínverjana ekki nema tæpa 3 tíma að ganga frá ættleiðingum á þessum sjö fallegu stúlkum sem við fengum í hendur í gær. Allt var frábærlega vel skipulagt og undirbúið. Fararstjóranir okkar búnar að hjálpa okkur að fylla allt út og ganga frá. Síðan fengum við í hendur formleg gögn um að stúlkan væri okkar formlega og á föstudaginn fáum við vegabrefið hennar í hendur.
En þið verðið að afsaka að við munum ekkert hvað við sögðum í pistlinum í gær og því kunnum við að endurtaka eitthvað í dag og á morgun en þið fyrirgefið okkar það. Ástæðan er nefnilega einföld, tilfinningaþunginn var slíkur hjá okkur að við vissum ekki hvort við ættum að gráta eða hlæja eða eitthvað þar á milli, eins og að vera í rússibana nema við vissum ekki hvert hann var að fara.
Kvöldið var nokkuð erfitt, daman ekki alveg sátt við þetta nýja fólk og lái henni hver sem vill. Hún kallaði stanslaust eftir mama og benti á dyrnar á hótelherberginu og tók mikil ekkaköst á milli og borðaði nánast ekki neitt. En við gengum með hana um og gáfum okkur vel að henni. Útsýnið út um gluggann á 12 hæð vakti athygli hennar enda hin myndarlegaasta brú sem blasir við. Flott hönnun sem svei mér þá gæti bara hafa verið teiknuð af Helga frænda svo flott var hún!. Nú síðan liða þeir niður ánna hinir sérstöku fljótabátar sem hér eru notaðir til að ferja varning milli staða sem var gaman að horfa á úr fjarlægð.
En daman sofnaði loksins og svaf í alla nótt en hinir nýbökuðu foreldrar sváfu ekki neitt að telja, voru vakandi yfir hverri hreyfingu en daman ferðaðist hring eftir hring í rúminu sínu og virtist una sér vel. En þegar hún vaknaði þá var hún ekki alveg sátt við lífið en þó læddist fram bros þegar henni tokst að pissa yfir pabbann sem var búinn að klæða sig upp fyrir morgunmatinn. Bara látið flakka enda ókunnugur maður á ferð!
Smátt og smátt höfum við séð miklar breytingar á henni strax í dag, hún er farinn að gleyma sér og brosa var voða fyndin að mata pabba sinn af appelsínu og Palli frændi hefði verið stoltur þegar stríðnisglott færðist yfir þetta litla andlit þegar hún var að leika við Matthildi vinkonu sínu og fela fyrir henni hluti en þóttist svo alsaklaus og ekki kannast við neitt. Engin smá púki á ferðinni og efnileg í stríðnispúkafélagið.
Mamman er auðvitað í aðalhlutverki í dag og daman unir sér alltaf betur og betur og ekka hljóðin og gráturinn eru núna smátt og smátt að fjara út. Ef fram fer sem horfir þá er það fyrr en við töldum.
Nú á eftir á að fara í Wall Mart verslun sem er staðsett á hátiðartorgi borgarinnar. Hljómar mjög sérstakt einkum ef haft er í huga að hér var upphaf alþýðubyltingarinnar í kína og borgarbúar mjög stoltir af því. Mikið torg er í miðbænum sem ber heitið 1. ágúst torgið og hefur þannig vísan til upphaf byltingarinnar og þar hefur verið reistur mikinn minnisvarði og allt í kring minnir á byltinguna. Þetta var nú smá útidúr en við keyptum reglhliðfakerru á 1500 kall, mjög flott og miklu vandaðaðri en þær sem hótelið leggur til auk þess sem við getum notað hana áfram í Peking og síðan flugvellina, nægur burður þar og hlaup þó ekki þurfi að hafa hana á öxlunum.
Síðan fórum við með hana á veitingastað á hótelinu, hún fékk að borða sjálf spagetti og raðaði í sig af mikilli ánægju en samt var hún búin að borða mikið af vatns melónu sem er hennar uppáhald.
Nú á morgun förum við síðan ferð á barnaheimilið hennar Siggu Báru, þar ætlum við að færa heimilinu smá gjöf sem haft var samráð við forstjórann um í dag. Nú veit maður ekki hvort það kallar eitthvað fram hjá stúlkunum og ekki alveg klárt hvort allir í hópnum taki dömurnar með eða annað foreldrið fari og kynni sér aðstæður. Þarna eru við fyrst og fremst að hugsa til þess þegar daman fer að spyrja um uppruna sinn og leita eftir svörum við eðlilegum spurningum sem hljóta að koma fram á einhverjum ákveðnum tímapunkti í lífi hennar.

sunnudagur, júlí 10, 2005

Þvílík fegurð

Þetta er alveg ólýsanlegt, þessi fallega prinsessa er komin til okkar. Það var ólýsanleg spenna búin að vera hjá okkur og öðrum í hópinum í dag. Fyrst að bíða eftir þeim og auðvitað var seinkun á þeim þannig að við fengum þær ekki í hendur fyrr en rétt undir kl 16:00 að staðartíma. En vægt til orða tekið margra ára bið er þess virði. Stundin rann upp og lítil falleg en svolitíð óvær dama grét talsvert fyrst hjá okkur. Var ekki alveg sátt við allt þetta ljósa hár (móðirn nýja- sá ekki gráa "hárið" hjá pabbanum) og óskiljanlegt tungumál. Fyrst var hún bara í fangi pabba og það var ólýsanlegt að finna hjartslátt hennnar smá róast og fara að vekja athygli hinu margbrotna umhverfi í kringum sig. Við kveiktum á sjónvarpinu svo hún myndi halda áfram að heyra sitt tungumál og Minmin eins og hún hefur verið köllum á heimilinu smá braggaðist. Við höfum verið að reyna að koma mat í hana en gengið ílla ennþá. Læknirinn kom og skoðaði hana, taldi að hana vantaði meira kalsíum en annað er í góðu lagi. Við heyrum ekka sog við og við og þá grettir hún sig og lítur út eins og gömul kona....
Jæja látum þetta nægja núna en setjum meira inn kannski síðar í dag.

laugardagur, júlí 09, 2005

Komin til Nanchang

Þá erum við loksins komin til Nanchang, ferðalagið gekk ágætlega fyrir flest okkar. Þar sem það er mjög heitt hér var mikil ókyrrð í lofti en allt gekk þó vel. Í aðfluginu að Nanchang flugvelli sáum við vel yfir héraðið og gátum ímyndað okkur þá náttúrufegurð sem hér ríkir. Allt er grænt, mikill hiti og mikill raki. Fyrsta sem við tókum eftir þegar við komum úr vélinni var hve fallegt og vingjarnlegt fólkið er hér. Allir brosandi og áhyggjulausir. Vegamannvirki og fyrstu kynni af borginni er frekar hrörleg en samt gætir mikillar uppbyggingar. Þetta virðist vera einkennandi fyrir þá sem við höfum séð hér í Kína. Hótelið er fínt, stendur niður við á með heljarinnar útsýni, allt hreint og nýtt. Lítið barnarúm var það fyrsta sem við tókum eftir hér á herberginu og búið að búa um það – tilbúið fyrir morgundaginn. Það styttist í Siggu!!!!Við fengum okkur stuttan göngutúr þrátt fyrir varnarorð Shirley sem er okkar leiðsögumaður hér í Nanchang, hún sagði það of heitt úti sem reyndist rétt en við fundum stórmarkað í nokkurar mínutna fjarlægð. Það var eins og að koma inn í stómarkað á Vesturlöndum en auðvitað voru kínverskar vörur þar í meirihluta. Þar voru Pampers (bleyjur, klútar og allt), Heinz dósamatur, þurrmjólk (100 tegundir), pelar, bollar, snuð – eiginlega allt það sama og heima nema miklu miklu ódýrara. Sem dæmi tveir fullir pokar með nauðsynjum og óþarfa allt fyrir 700 ISK (miklu ódýrara en í Peking). Þetta hefði verið ágætt að vita fyrirfram, að þurfa ekki að bera þetta frá Íslandi – en það eru örugglega ekki allir staðir svona vel búnir.
Matarlistin var ekki mikil í flugvélinni og því er stefnt á kvöldmat í fyrra lagi og svo munum við hitta Shirley og fara í göngutúr hér í kring – aðallega að kíkja í búðir – NEMA HVAÐ!!!!
Nokkrar myndir frá byrjun ferðalagsins í morgun fram til þessarar stundar.
Við gleymdum að nefna aðalatriðið en á leiðinni á flugvöllinn í Peking afhenti Wendy okkur ferðaleyfin sem við höfum beðið eftir til þessa en þau eru nauðsynleg fyrir morgundaginn.
Jæja, bless í bili. Næstu fréttir af okkur verða þegar við verðum búin að fá hana Sigríði Báru Min í fangið. Það er beintengin héðan úr herberginu og er það ekki slæmt að getað sötrað kaffi og skrifað þessar línur.

föstudagur, júlí 08, 2005

Torg hins himneska friðar og Forboðna borgin

Dagurinn byrjað ansi snemma hjá okkur en dagskráin hófst á Torgi hins himneska friðar sem óneytanlega var magnþrungið að upplifa. Þvílík stærð á öllu og hvernig framsetningin er öll gerð til að ýta undir gæði flokkinn og formanninn en þessi myndarlega mynd af Maó blasir við manni nánast sama hvar sem maður er staddur á torginu. Eftir okkar upplýsingum þá er gerð ný mynd af honum árlega og sett upp á afmælisdegi hans í Október, það þykir víst mjög mikill heiður fyrir listamenn að verða valinn til að mála kappann. Langar raðir hlykkjuðust um torgið þar sem skólabörn biðu þess ábyggilega klukkustundum saman að fá að líta lík Maó augum en hann er til “sýnis” í einu grafhýsinu. Allt óneytanlega tignarlegt og erfitt að lýsa hvaða tilfinngar fara um mann. Frá torginu lögðum við lykkju á leið okkar og fengum fræðslu um þróun lækninga hjá kínverkjum sem var mjög fróðlegt en þá leyndi sér ekki að læknirinn í hópnum var nú ekki sammála öllu í samanburði á nútíma lækningum að hætti vesturlandabúa og hins vegar nátturulækningum kínverja. Það mátti greina kímni í augum hennar þegar samanburðinn var kannski hérlendum full mikið í hag. Nú er bara að sjá hvort ”yngingartöflurnar” sem bóndinn keypti handa Gyðu virki eða ekki svo ekki sé gleymt ”skallameðalinu” fyrir hann, kannski kemur hann bara sem svart hár eins og kínverki til baka!
Forboðna borgin ætlaði aldrei að enda og maður bíður ekki í það hefði veðurspáin gengið eftir. Það var nefnilega ekki nema 35 stig og skýjað í dag en spáð hafði verið sól og meiri hita. .....sjúkk segir maður bara því hitt hefði hópurinn ekki lifað af. Þetta er eins og að ganga á vegg þegar maður fer út af hótelinu og við erum þambandi vatn allan daginn. En aftur að forboðnu borginni sem er merkileg og segir auðvitað mikið um þá visku og þekkingu sem hefur ríkt hjá þjóðinni í þúsundir ára. Byggingarstíllinn og framkvæmdir sem ennþá standa vel af sér veður, stríð og aðrar athafnir af manna völdum. Mannhafið að skoða borgina var með eindæmum og raðir víðsvegar, mest kinverskir krakkar sem voru í skólaferðum að því að við höldum. Við vöktum talsverða athygli og þeir hvítustu úr hópnum margbeðnir um heimild til myndartöku. Ekki slæmt að verða frægður í Kína!
Nú svolitið er nú líka af betlurum á svæðinu sem voru ekki mjög ágengir fyrst í stað en eftir að KSV aumkaði sér yfir einn þeirra var sem þeir hefðu himinn höndum tekið og var orðið erfitt að losna fyrr en komið var inná svæði með aðgangseyri.
Eftir hádegisverð fórum við í silkiverksmiðju, fengum upplýsingar um þróun og meðferð á silki og auðvitað þokkalega sala á eftir þar sem dömurnar, auðvitað þær litlu, fengu þjóðlegan klæðnað. Á heimleiðinni fengum við síðan fréttir sem snertu hjartað. Við fáum dætur okkar í hendur á sunnudaginn 10 júlí kl.15:00 á hótelinu, það verður semsagt komið með þær til okkar þangað. Þannig að nú er bara að pakka því sem þarf að taka með til Nanchang en við reynum að skilja sem mest eftir, alla vega ”hlýju fötin” en mamman er í þessum skrifuðu orðum að velja og hafna. Semsagt spennandi og fróðlegur dagur og mikil spenna að byggist upp. Látum næst heyra frá okkur þegar við erum kominn á hótelið í Nanchang.
Ps. fáar myndir settar inn þar sem netið er lengi að vinna - tókum 100 myndir í dag !!!!

fimmtudagur, júlí 07, 2005

Fimmtudagur

Jaeja vid hjonin voknudum snemma i morgun eda um kl. 6 - hreinlega gatum ekki sofid lengur. Planid i dag er ad fara a Kinamurinn a eftir, svo i einhverja Jade verksmidju og svo munum vid Kalli hitta Jon og Lin Wei i kvold. Tad er mjog skrytid en vid komumst ekki her inn a blogg siduna okkar til ad skoda hana en getum sett inn a hana post, vid getum ekki heldur sent SMS en faum tau til okkar - skrifum meira seinna. Ef tid komist ekki inn a myndirnar okkar getid tid sent okkur mail a gydao@simnet.is eda farid beint a stora albumid okkar http://www.pixagogo.com/karlsteinar/
Tad er storkostlegt ad vera herna og lidur okkur eins og i draumi. Nuna eru bara tveir dagar tar til vid forum til Nanchang - og tar bidur hun Sigga Bara!!!

Kínamúrinn

Það er erfitt að finna hæfandi lýsingu á þessum degi hjá okkur. Hann hófst á því að við fórum í stutta kynnisferð í verksmiðju þar sem búnir eru til ýmir munir úr steinum (Jade) sem var athyglisvert að sjá hvernig unnið er úr honum og auðvitað gátu þeir sem vildu verslað. Síðan var keyrt sem leið liggur að Kínamúrnum sem er ótrúlegt að sjá. Hann er eins og risavaxinn ormur sem gormast um allar fjallshlíðar og er víst rúmlega 6000 km að lengd en í misjöfnu ástandi. Veðurguðirnir voru með okkur því það var skyjað í dag og ekki nema 35 stig ef marka má uppgefnar tölur. Hópurinn fór í góðan gongutúr og menn völdu sér sína áfangastaði á leiðinni upp þessa myndarlega fjallshlíð sem við stöðvuðum við. Maður veit eiginlega ekki hvaða orð á að nota til að lýsa þessu mannvirki það er svo ótrulegt að ganga þarna og horfa á fallegt umhverfið og þá hugsun sem bjó að baki því byggja hann. Það voru því lúnir, heitir og sveittir fætur sem fóru í loftkælda rútuna sem kemur okkur á milli áfangastaða.
Þá lá leiðinn í búð ”formannsins” sem kallast friendship stores og kennir þar ýmissa grasa. Það er nú ekki hægt annað en að kíkja þar við í þessum frægu ríkisverslunum og borða léttan málsverð í ríkismötuneytinu.... Þema dagsins var Api og kannski þarf að skýra það frekar því allar stúlkurnar sem við sækjum eftir tvo daga eru fæddar á ári apans og því viðeigandi að finna ýmsa muni sem tengjast því merka ári apans 2004. Sigga Bára fékk í dag fallega mynd sem klipt er út af mikilli nákvæmni og litskruðug með afbrigðum.
Heimleiðin var ekki síður athyglisverð þá sáum við og fundum fyrir vaxandi umferð í borginni og í raun þeim andstæðum sem hana einkenna í dag. Sjá má mikla uppbyggingu og framkvæmdir en á milli á greina mikla fátækt og aðstæður sem við þekkjum ekki. Sumun bíður það hlutskipti hér að búa í fátæklega búnum húsnæðum og eiga mjög takmarkaða möguleika. Okkur fannst sem bílinn sé ansi hreint að taka við af því sem af gömlum myndum að dæma hefur einkennt borgina en það eru ríkisreiðhjólin svörtu, ekkert fjallahjóladæmi hér heldur ein ríkistegund, svort og gíralaus takk.
Fólkið er svo vingjarnlegt og kurteist að það er til eftirbreytni, fólk brosir og vill allt fyrir okkur gera, höfum ekki fengið nei ennþá alla vega nema þegar húsbóndinn reyndi að prútta í ríkisversluninni það er auðvitað eina verslunin sem slíkt er bannað, bara eitt ríkisverð takk... Talandi um það þá læðist að okkur sá grunur að blogsíðan okkar sé ekki aðgengileg vegna heitis hennar eða vísan á síðuna sé ekki þóknanlegt núna því við getum komist inná ýmsar íslenskar síður en bog er ekki æskilegt. Þá höfum við það. Annars allt fínt af okkur að frétta erum að bíða eftir að Lin Wei komi og sæki okkur og sýni okkur þá hlið borgarinnar sem ferðamenn sjá almennt ekki. Síðan förum við til þeirra í nýju íbúðina og hver veit hvað gerist svo. En þetta var meiriháttar íbúðin þeirra er svo flott og á svo skemmtilegum stað. Síðan fórum við út að borða og Lin Wei valdi staðinn sem hún segir að hafi bestu Peking Önd sem hægt er að fá í borginni og það verður að taka undir það með henni Lin Wei þvilikur unaður. Maturinn var alveg svakalega góður og alltaf eru þau hjónin og stelpurnar jafn skemmtileg og gestrisin. Stefnun að því að hitta þau smá á morgun því Jón fer að fara heim fljótlega en mæðgurnar verða lengur og tviburunum finnst meiriháttar spennandi að fá að hitta litlu Siggu Báru eftir nokkra daga og þá fyrst af öllum! Bless í bili.

þriðjudagur, júlí 05, 2005

Komin til Peking

Vid erum komin til Peking eftir nokkud erfitt ferdalag. Lagt var af stad fra Kopen um kvold eftir klukkustundar seinkun en rumlega 8 timum sidar var lent i Peking. Thad er nu ekki skemmtilegt ad sitja svona lengi i flugvel og frekar litid plass. Einhverjum tokst ad sofa stund og stund en almennt er hopurinn dasadur.
A moti okkur tok sidan fararstjorinn, sem er vingjarnlegt stulka og leiddi okkur i gegnum thad sem thurfti og lokst a hotelid sem er stadsett i midbeanum. Bidjum ad heilsa i bili reynum ad na sma blundi fyrir fyrstu veisluna i kvold

Buin tekka ut af hotelinu

Nøu erum vid a leidinni ad geyma farangurinn okkar a brautastodinni og sidan er stefnt af thvi ad eiga nokkra tima i beanum. Annars er allt a odrum endanum herna tvi Bush er i opinberri heimsokn og vist fullt af svaedi sem er lokad af af theim sokum.
Vid hofumekki enntha getad sett myndir inn en forum thad thegar komid er til Peking. Vid forum i tivoli i gear i godum gir,vedridvar falleg og hlytt og allir i godu skapi. Fruin fekk sma Kina martrod Sigridur Bara var altalandi a islensku, near unglingur i aldri og eins og velmenni i samskiptum. Fjolskyldan oll mjog tillitslaus vid heimkomu og svona meatti lengi telja. Eg held bara ad hun hafi verid nokkud fegin ad vakna og sja thennan skollotta kall vid hlidina a ser. Takkfyrir kvedjurnar,nu skal vi ga og ha en øl.

sunnudagur, júlí 03, 2005

Allt kárt fyrir brottförina

Þá er komið að því við leggjum í hann innan stundar og mikil tilhlökkun hjá okkur. Búið er að pakka öllu og marg yfirfara allt það sem taka þarf með. Fjölskyldan og vinir eru síðan búin að koma og kveðja og greinilegt að tilhlökkun er á mörgum bæjum.
Við sendum síðan frá okkur smá línu þegar við erum komin til Peking eða hugsanlega frá Köpen ef tækifæri vinnst til

föstudagur, júlí 01, 2005

Ýmislegt sem týnist til með seinni skipunum

Jæja það er ótrúlegt hvað margt týnist til hjá okkur og þarf að gera. Auðvitað var byrjað á einni léttri yfirferð í morgun á því hvort við værum að gleyma einhverju og fylgidótið aðeins borið við töskurnar. Við höfum haft nokkrar áhyggjur af hitanum í Peking og fengum smá staðfestingu á því að undanfarna daga er búið að vera um 38 stig þar en víst ekki mikill raki þannig að það er þó smá bót í máli að glíma bara við þurran hita!!!!! Það verður síðan gaman að geta hitt vini okkar Jón, Lin Wei og tvíburana Laufey og Júníu en þau eru einmitt í Peking núna og verða þann tíma sem við erum úti.
Nú aðeins var bætt í húsbúnaðinn í dag þegar við keyptum barnabílstól og síðan eldhússtól fyrir prisessuna þannig að þetta er allt að verða tilbúið.
Hátindur dagsins var þó að fara með frú Ernu og Sigga Val og taka við lyklum að nýju íbúðinni á Standvegi. Auðvitað verður mikill söknuður af Alftamýrinni en minningin lifir um þann góða anda sem þar hefur verið og nýja íbuðin er meiriháttar flott. Frú Erna fær ótrúlega flott útsýni og var strax farin að tala um hvað yrði gaman að fara með ömmustelpuna í göngutúra niður að sjó og skoða fuglana. Valur var fjarri góðu gamni, var víst að telja breskum ferðamönnum trú um ótrúlega gæði landsins og merkilega sögu þess, fer ábyggilega létt með staðreyndir og kryddar þetta allt aðeins og gerir skemmtilegt. Það fréttist af honum á Egilstöðum í fjallgöngu og því ekki sjá að hann sé á áttræðisaldri.... En alla vega þá skáluðum við fjögur fyrir þessum merka áfanga og síðan verða þau flutt þegar við komum aftur heim frá Kína. Smellið hér til að skoða Strandveginn.