laugardagur, september 29, 2007

Orðin STÓRA FRÆNKA




Já nú er hún Sigga Bára ekki Sigga Bára - nei, vinsamlegast ávarpið frökenina sem STÓRA FRÆNKA!! Hún hefur hreinlega fengið það stærsta hlutverk í lífi sínu til þessa. Olga litla móðursystir og Bjarkar eignuðust yndislega fallegan og stóran dreng á miðvikudag - Stóra frænka hefur fengið að hitta hann tvisvar og passar mikið upp á það að hún borði nú vel matinn sinn svo litli frændi verði ekki stærri en hún!!! Set hér inn myndir af litla frænda og svo fyrstu strætó ferð dömunnar með mömmu síðustu helgi - hún hreinlega brosti hringinn við að fá að sitja ein og ekki í neinu belti!!!!
Bless í bú

sunnudagur, september 16, 2007

Ég ætla að verða lögreglukona og slökkviðliðskona



Já það er búið að vera viðburðarík helgi hjá Siggu Báru. Hápunktur helgarinnar var án efa forvarnardagur Íslenskrar Ættleiðingar sem haldinn var á skólalóð Hlíðarskóla rigningar laugardaginn mikla. Fólk klæddi sig eftir veðri og hlustaði á lögregluna kenna litlu ungunum okkar hvernig þau og foreldrarnir ættu að haga sér í umferðinni og svo lærðu allir að ganga rétt yfir götu með nýju endurskinsmerkin sín. Hópurinn gekk svo í Skógarhlíð þar sem slökkvuliðið beið hópsins og fengu allir að skoða slökkvibíla, sjúkrabíla, fara um borð og svo voru allir leystir út með þessu líka fína barmmerki með honum Loga. Já ég held að það hafi margur unginn ákveðið ævistarf sitt þennan dag - allaveganna gerði fröken Sigga Bára það :-D
Bless í bú




Posted by Picasa

mánudagur, september 03, 2007

Haustið er formlega komið



Já það má segja það að núna er haustið formlega komið til Siggu Báru Min. Hún er búin að fara víða í sumar og lenda í mörgum ævintýrum. Það síðasta var í Suðursveit þar sem afi Valur hélt upp á afmælið sitt - ungi maðurinn. Mikið var gert, farið í golf, skógarferð, berjatínslu og sund. Það var mikil umræða um tröllin sem búa í fjöllunum og þau vakna þegar börnin sofa. Sigga var hérumbil búin að vekja þau með gráti eina nóttina en viti menn "Hann pabbi minn er svo sterkur að tröllin eru hrædd við hann og svo komast þau ekki yfir grindverkið" - Hvað getur maður sagt við þessu - þetta var auðvitað allt rétt hjá snilla. Svo fékk hún að upplifa mikla sorg sem var svo ekki mikil sorg eftir allt. Lítill þrastarungi flaug á gluggan, rotaðist og dó. Sú stutta hlustaði á líkræðu Sigga Vals frænda og sagði að Guð (sem hún segir að sé stelpa) myndi taka fuglinn og hjálpa honum að fljúga aftur. Jebb það eru sko svör við öllu hjá Siggu Báru Min!!
Bless í bú
Posted by Picasa