miðvikudagur, júní 24, 2009

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....



hún á afmæli hún Sigga Bára, hún á afmæli í dag. Elsku hjartans dýrgripurinn okkar varð fimm ára í dag. Stórkostlegur dagur, sólin skein úti sem inni. Daman vaknaði hálf sjö stærri, vitrari og þroskaðri en kvöldið áður. Hún fór að skreyta kökur fyrir fjölskylduafmælið, fór í afmælisbaðið en lét ekki þar við sitja. Hún varð að fá Carmen rúllur líka fyrir leikskólann!! Það var því tekinn upp hárblásari og allt var sett á fullt, rúllurnar hitaðar, fundið pils sem snýst mikið og svo var mín tilbúin. Tilbúin til að vera stjarna dagsins og það var hún svo sannarlega. Fáninn dreginn að húni á leikskólanum og þar bakaðar pönnukökur fyrir afmælisbarnið. Svo tók næsta veisla við, vinkonur úr leikskólanum og Matthildur mættu í sannkallað prinsessu afmæli - þær voru allar svo flottar, það var dansað, farið í pakkaleik, út í garð og hoppað á trampolini. Svo tók næsta veisla við, öll ættin og vinir mættu til að fagna þessum merkis áfanga. Frændsystkini og vinir voru úti í garði að leika og pabbinn grillaði hamborgara. Þegar kominn var tími til að fara að hátta var FIMM ára daman orðin þreytt, svo ánægð með hvað margir komu og samfögnuðu með henni. Fyrir hönd dömunnar í draumaheimi þökkum við ykkur öllum fyrir frábæran dag.

Bless í bú

þriðjudagur, júní 23, 2009

Afmælið er á morgun







Ef þetta er ekki búið að vera stórkostlegt að fylgjast með og taka fullan þátt í þessum spennandi aðdraganda afmælisins !!!! Sigga Bára er búin að baka, skreyta kökurnar, smakka nammið ( sumt oftar en einusinni ), fara í gegnum morgundaginn í huganum og þykjustinni og meira að segja semja lag um eina stelpu sem á afmæli í júní!!!! Hve maður er ríkur að fá að upplifa tæra einlæga og sanna tilhlökkun með Siggu Báru



Þú ert bara best og flottust Sigga Bára!



Bless í bú

miðvikudagur, júní 17, 2009

"Það eru sjö dagar þangað til....

...og á morgun þegar ég vakna þá eru það sex dagar þangað til." Já það er vika í 5 ára afmæli Siggu Báru og ekki vandamálið að vekja þá stuttu á morgnanna - niðurtalningin er alveg á hreinu.
Við áttum frábæran þjóðhátíðardag fjölskyldan, löbbuðum í bænum og hittum góða vini, skrifuðum boðskort í afmælið til vinkvenna, settum á þau frímerki og svo var þeim skellt í póst. Síðan var farið í Garðabæinn til ömmu og afa. Það er ekki til betri staður til að vera á svo ekki sé minnst á þjóðhátíðarmat frú Ernu ömmu!! Hakkabuff og marenge ala ömmu Sí!! Sigga Bára borðaði svo mikið að mömmu var ekki farið að lítast á blikuna.
Eitt af því sem Sigga þurfti að gera fyrir svefninn var að naglalakka sig, bæði tær og fingur og sefur nú vært nýlökkuð og fín.
Hún er bara yndislegust í heimi og tilhlökkunin fyrir afmælið svo smitandi að maður er að springa úr spenningi sjálfur - er ekki gaman að vera foreldri??
Bless í bú

þriðjudagur, júní 02, 2009

Fjögur ár síðan við litum prinsessuna fyrst augum - á mynd










Það er eins og gerst hafi í gær að símtalið langþráða barst. Pabbinn var sá heppni sem svaraði í símann því mamman var ekki í símasambandi. Það var sól, fallegt veður og tréin græn.



Í dag skín sólin, kannski ekki úti en hérna heima svo sannarlega :-)



Kæru vinir í hópi 12 til hamingju með þennan merka dag, daginn sem við brostum hringinn og urðum ríkust í heimi!!!



Sara til hamingju með 5 ára afmælið þitt - Sigga Bára getur varla beðið eftir að verða jafngömul.



Bless í bú