sunnudagur, apríl 24, 2011

Gleðilegt páskaegg


Já svona óskaði Auður Edda öllum gleðilegra páska þessa fyrstu páska okkar saman. Það var mikl spenna þegar báðar dömurnar voru vaknaðar í morgun. Sigga Bára svaf að vísu svolítið mikið lengur en litla systir en þegar Sigga Bára var komin á stjá hófust páskarnir. Hún gerði ratleik fyrir foreldrana af svo mikilli snilli, örugglega 7 vísbendingar alveg ein, svo fóru systurnar í það að leita að páskaeggjunum sínum og þegar þeirri leit lauk hófst heljarinnar nammiát á fastandi maga. Svo þegar klukkan var að nálgast ellefu var skundað niðrí Húsdýragarð á árlegan páskasunnudagsskóla þar sem systurnar sungu af mikilli innlifiun og fengu að klappa páskakanínum. Sigga Bára fetaði í fótspor pabba og var tekin í sitt fyrsta sjónvarpsviðtal sem er hægt að finna hér
Um kvöldið kom svo Siggi Valur frændi og borðaði með okkur en í eftirrétt var framreidd kaka að hans ósk sem Sigga Bára bakaði og Auður Edda fékk að klára kremið úr skálinni - mikil samvinna hjá systrunun í eldhúsinu.
Núna er litla ljós sofnuð en stóra ljós vakandi og langar að horfa á hundamynd - það verður því kósýkvöld í kvöld.
Bless í bú

laugardagur, apríl 23, 2011

Gleðilegt sumar - Snillingurinn hún Auður Edda byrjuð að teikna


Mamma og pabbi eru svo stolt af því að Auður Edda er farin að teikna svo snilldarlega flott - vá hvað það var klappað og núna er hún að teikna alla fjölskylduna á sama blaðið. Við sáum að Sigga Bára kom með sýna fyrstu "Óla prik" mynd um 2 og hálfs árs aldurinn svo hefur stóra systir sem alltaf er að teikna verið mikil hvatning fyrir Auði Eddu.
Við erum búin að vera með Olgu og fjölskyldu um helgina og þangað hafa margir ættingjað komið. Krakkarnir leikið lausum hala úti svo glöð og sæl. Á morgun er páskadagur og mikill spenningur að vakna og leita og borða SÚKKULAÐIegg
Bless í bú

miðvikudagur, apríl 20, 2011

Síðasti vetrardagur árið 2010 var dagurinn sem við fengum upplýsingar um Auði Eddu Jin

Það er eins og gerst hafi í gær þegar mamma og pabbi fengu hringingu frá Íslenskri ættleiðingu á síðasta vetrardag þar sem okkur var tilkynnt að lítil falleg stúlka yrði okkar! Dagurinn var fallegur, sól og hamingja. Stóra systir stóð þá á stóra sviðinu í Háskólabíói og söng með rúmlega hundrað leikskólabörnum falleg íslensklög á meðan mamma og pabbi voru við það að springa af spenningi yfir öllu sem í gangi var. Snilldar setning Siggu Báru þegar hún frétti af litlu systir sem biði úti í Shanghai voru svo rétt og sönn""Það eru milljón hjörtu inni í mér núna. Jörðin er hjarta og pláneturnar eru hjarta"


Það eru ekki til heppnari og hamingjusamari foreldrar en við
Bless í bú