Sigga Bára er stór stelpa um þessar mundir. Góðir vinir á leikskólanum farnir í barnaskóla og hún því orðin stóra stelpan í leikskólanum. Þetta er ábyrgðarmikið starf , daman labbar teinrétt og skilur vel að hún er fyrirmynd og á leið í skólahóp. Það er ekki nóg að vera elst heldur er annað spennandi í nánd - tennurnar fara að detta!! Oft á dag koma spurningar spurningar hvenær hún missi fyrstu tönnina, ýtir svolítið á þær í neðrigóm og fylgist með örhreyfingum tannanna í speglinum. Jú maður er bara ekki frá því að þær hreyfist pínu, eða hvað? En daman er líka að hefja nám í fiðluleik sem er mjög spennandi. Fyrsta mæting er í næstu viku og mikið búið að spegulera. Eitt er víst að fingur eiga að vera hreinir og auðvitað eru allar fiðlustelpur í kjól með hárið uppsett. Búið er að týna mikið af rifsberjum og sulta, hún er svo iðin þessi stúlka og svo bíður okkar rabbabari sem daman og mamma eiga eftir að ákveða hvað skal gera með. Hún amma fór nefnlega með okkur mæðgur í sveitina um helgina og fylltum við poka af rabbabara - heppnar við.
Daman er sofnuð og á morgun er prinsessudagur með ömmu sem engann svíkur.
Bless í bú
þriðjudagur, ágúst 25, 2009
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)