Það er nú orðið nokkuð langt síðan við settum inn nýjar upplýsingar inná síðuna okkar. Afmælisveislan hennar Auðar Eddu gekk vonum framar og sú stutta var ánægð með daginn og ekki var gleði þeirra systra minni um jólin. Auður var reyndar hálf fegin þegar henni var sagt að jólasveinninn væri farinn aftur til fjalla. Gott að losna við þessa kalla úr byggð.
Farið er að síga á síðari hluta janúarmánaðar sem hefur verið viðburðaríkur hjá okkur. Mikið að gera afmælisveislur og ekki má gleyma upphafi skólagöngu hjá Auði Eddu sem byrjuð er í leikskóla. Hún er alsæl í skólanum og leikur við hvurn sinn fingur eins og sagt er.
Um helgina fóru við í heimsókn til Ásu og Gríms í hesthúsin en Sigga Bára hefur verið heilluð af hestum um nokkurt skeið. Og óhætt er að segja að heimsóknin í dag haf bætt um betur. Sigga fékk að fara reiðtúr með Ásu og sú var nú stolt á hestinum og hafði líka áður mokað út og aðstoðað við að setja hnakk og beisli á hestinn. Auður Edda fékk líka að setjast á bak og fannst gaman en vildi samt láta halda í sig, ekki alveg örugg með þetta.
Nú að lokum var að koma í ljós að Sigga er að fá þessar fallegu fullorðins framtennur. Frekar stolt enda fullt tilefni til.
Við reynum að vera duglegri að setja inn nýjar fréttir