miðvikudagur, desember 19, 2012

Auður Edda Jin er 5 ára í dag!!










Elsku litla daman okkar er orðin 5 ára og ekki smá sem hún stækkaði í nótt. Hún tók daginn frekar snemma enda fullt tilefni til það er nú búið að bíða lengi eftir þessum degi. Fyrst að kannað hvort jólasveinninn hefði nokkuð farið framhjá og gleymt gullskónum sem systurnar höfðu lagt í gluggakistuna. Sem betur ferð hafði það ekki gerst og ekki minnkaði gleðin þegar í ljós komu þessir fínu pakkar frá stóra systur og gamla settinu. Morgunmaturinn var skreyttur með fimm kertum og sunginn var afmælissöngurinn af miklum áhuga !!!
Nú afmælishátíð var haldin þar sem leikskólavinkonur komu og áttu þær allar góða stund saman. Smá spenna var í loft þegar sást til rauðklæddra kalla að bardúsa í garðinum. Þeir höfðu rifið upp stigann í garðinum og gerðu heiðarlega innbrotstilraun við mikla gleði stúlknanna  og að lokum tókst þeim að komast inn gegnum svalardyrnar. Allt var undirlagt af söng og gleði og óvæntum uppákomum þar sem auk gleði fyrir börnin þá fékk pabbinn þetta flotta  rauða parrok frá sveinka. Frúin hefur þegar efnt til áheita ef kallinn er tilbúinn að ganga einn dag með gripinn en undirtektir hafa verið tregar hingað til, en maður veit aldrei.
Núna er búið að opna pakka og  leika mikið en stóra systir og Elísbet vinkona fengu það hlutverk auk þess að skreyta afmæliskökuna að stýra leik og látum. Frekar gaman og svo gaman að brottför nokkurra stúlkna var frestað tímabundið.
En núna er dagur að kveldi kominn og búið að fara í afmælisbað og verið að koma ró á heimilið.
Frábær dagur í alla staði og takk allir sem hingað komu eða hafa glatt okkur á þessum merku tímamótum.

mánudagur, september 24, 2012

Það í mörgu að snúast

Mikið líður tíminn hratt. Síðast var skrifað á þessa síðu í júní og allt í einu er kominn september, meira að segja lokin á september. Dömurnar dafna vel og hafa haft það gott og gaman í sumar. Pabbinn tók sér langt orlof í sumar og var í fríi mestan part sumars sem allir nutu í botn. Auður Edda var á leikskólanum í stuttan tíma og stundum bara ekkert í sumar og naut þess að láta pabba dekstra við sig. Hún Sigga Bára naut tímans líka, fór á sumarnámskeið, leiklistarnámskeið en það sem stóð upp úr líkt og menn gerðu ráð fyrir var hestanámskeiðið í Mosó með henni Matthildi vinkonu sinni að ógleymdu auka námskeiði í jazzballet.
Svo þegar mamman var loksins komin í sumarfrí var brunað um landið allt með móðursystrum og fjölskyldum. Gist var í fellihýsum og bústöðum. Ættingjar á Austfjörðum heimsóttir, kynni endurnýjuð við þann ættlegg og voru allir  mikið ríkari eftir þessa ferð.
Sumarið var samt ekki búið og fóru Sigga Bára og pabbi í hestaferð til Ævars og Kollý sem var mikil ævintýraferð á meðan Auður Edda og mamma dekruðu við sig, fóru í bíó og hjólaferðir.
Þegar skólinn byrjaði aftur voru bæði börn og fullorðnir full tilhlökkunar að hefja daglegt líf aftur. Auður Edda er núna komin á stóru deildina og nýtur hún þess vel að vera í kringum jafnaldra sem hlakka mikið til að hefja grunnskólagöngu að ári og ekki skemmir fyrir það stórkostlega starfsfólk sem nostra við hana og félaga alla daga. Þær systur eru líka að nema fiðluleik sem er gaman að fylgjast með, hún Sigga Bára var mjög glöð að núna þyrfti hún ekki að vera sú eina á heimlinu sem þarf að æfa á hverjum degi, semsagt komin með sálufélaga.
Annar stórviðburður var áttræðisafmæli afa og fögnuðum við þeim tímamótum í Suðursveit þeim dásemdarstað. Þar var mikið borðað, drukkið, hlegið og auðvitað týnd ber að ógleymdri veiðiferð þeirra systra með pabba og Hemma en þar var veitt í matinn og urðu allir saddir eftir þann afla.
Núna er loksins búið að skrásetja það helsta sem gerðist í sumar og fram á haustið. Lífið leikur við okkur og dömurnar verða bara skemmtilegri og skemmtilegri. Þær eru ótrúlega góðar vinkonur og vega hvor aðra upp á svo margan styðjandi hátt.
Bless í bú

sunnudagur, júní 24, 2012

Sigga Bára Min 8 ára



Í dag þennan fallega sunnudag varð litla stóra stelpan okkar 8 ára. Hún hafði hlakkað mikið til þessa dags, ekki bara að verða árinu eldri heldur einnig að daginn eftir myndi hún byrja á hestanámskeiði með Matthildi æskuvinkonu sinni. Sumarfríið hennar er byrjað, búin að vera með skólafélögum á námskeiði og svo eyddi fjölskyldan tveimur dögum þessa helgi á Selfossi. Þar var spilað á fiðlu eins og enginn væri morgundagurinn ásamt fiðluvinum og auðvitað honum Fannari bekkjabróðir sínum. Á meðan Sigga Bára æfði fóru pabbi og Auður Edda og fylgdust með yngri fiðlunum spila því Auður Edda mun hefja fiðlunám í haust. Þolinmæði Auðar Eddu var ekki alltaf mikil og því fóru þau feðginin inn á milli á fótboltavöllinn og sýndu nokkra takta.
En dagurinn er senn að kvöldi kominn. Sigga Bára syngur hér hástöfum af gleði, þakklát fyrir samveru með sínum nánustu í dag, gjöfunum öllum og kveðjunum. Gjöfin sem hitti í mark var auðvitað frá litlu systir - fígúrublöðrur úr Tiger, hér er framleiðsla í gangi.
Takk fyrir dagin stóra ljósið okkar - það er gott og gaman að upplifa hreina hamingju og lífsgleðina með þér.
Kossar,
Mamma, pabbi og litla ljós.

sunnudagur, apríl 22, 2012

Tíminn líður svo hratt

Það eru í dag tvö ár síðan við fengum upplýsingarnar um fallegu Auði Eddu Jin. Furðulegt hvað tíminn hefur flogið áfram með þessari dásemdarveru. Veðrið þann dag var fallegt eins og í dag, sólin skein og vorið var á næsta leiti. Það er gott að staldra við og minnast þessa dags, finna fyrir þakklætinu í hjartanu, þakka fyrir allt það sem við höfum fengið að njóta og verið treyst fyrir.
Við höfum verið ódugleg að hripa niður sögur þeirra systra úr daglegu lífi en hér er sjaldnast lognmolla og tími við það að setjast niður og skrifa nokkur orð finnst varla. Sigga Bára er búin að vera dugleg í félagsstarfi allt árið, æfir fiðlu af kappi, dansar nokkrum sinnum í viku og svo er spilaður fótbolti. Auður Edda litla ljós er dugleg að fylgja stóru systir að því undanskyldur að hafa ekki fengið inngöngu í fótboltaklúbbinn sem verður vonandi fljótt. Þess í stað skráði pabbi hana í íþróttaskóla sem er nýlokinn og var það hennar bestu stundir í vikunni enda daman mikið fyrir það að hreyfa sig.
Núna er pabbi búinn að setja upp trampolín og það er hoppað frá morgni til kvölds, þess á milli skreppur Auður Edda í heimsóknir til vina sinna í húsinu og svo má ekki gleyma því að hjólreiðar eru mikið stundaðar. Systurnar eru því að allan daginn og foreldrarnir reyna að fylgja þeim fast á eftir.
Sigga Bára og Auður Edda eru miklar vinkonur og er hrein unun að fylgjast með því hvað stóra ljós leyfir litla ljósi að fylgja með í öllum leikum með vinkonum hennar og þolinmæðin stundum ofar skilning okkar foreldranna.

Við hlökkum til sumarsins og vonandi verðum við duglegri við að skrifa pistla af lífi þeirra systra.
Bless í bú