fimmtudagur, ágúst 25, 2011

Sumarið hefur gefið mörg gullkornin.




Það er ekki nokkur vafi í huga foreldrana að sumarið hefur verið æðislegur tími. Við höfum átt tækifæri að verja lengstum hluta sumarsins saman, þökk sé fæðingarorlofsreglum og skilningsríkum vinnuveitendum. Tímanum höfum við varið bæði innanlands og utan og erfitt að gera upp á milli. Stúlkunar hafa verið í essinum sínu, Auður Edda fjörkálfurinn sem heldur betur nýtur þess að eiga svona góða stóru systir sem tilbúin er að leika og dunda sér, ekki slæmt það. Sigga Bára hefur notið þess að vera í fríi, fór á hestanámskeið en eins og þau vita sem vel þekkja til þá er hún mjög heilluð af dýrum og vill helst fylla heimilið af þeim og skilur ekkert í mótlæti foreldrana sem mest er pabbinn auðvitað. Hann hefur borið fyrir sig hin ýmsu ofnæmi sem vonandi þarf ekki að leggja mjög þungar sannanir fyrir á síðari stigum. Núna er Sigga Bára byrjuð að safna sér fyrir öðru hestanámskeiði og vonast líka til að komast í heimsókn í hesthús í Mosanum fljótlega. Í fjölmörgum ferðum okkar í húsdýragarðinn hefur hún óbeðinn tekið virkan þátt í verkum starfsmanna tengt dýrunum og auðvitað var það toppurinn að fara í dýragarða erlendis þar sem fjöldi framandi dýra var skoðaður og myndaður fyrir síðari tíma.

Auður Edda hefur mikið þroskast og stækkað ótrúlega mikið. Málþrostinn hefur vaxið mikið og ýmis ansi skondin tilsvör hafa komið frá henni. Yfir kvöldmatnum í dag var hún spurð út í matinn og þótti henni þetta eitthvað þreytandi spurningar og horfði á okkur hin og sagði „ ...og hvað með það!“. Við áttum einnig von á einhverjum hollenskum slettum frá henni eftir sumarið en í staðinn komu orðatiltæki eins og „shit“ sem mátað er við hin ýmsu tilefni sem oft eru ekki alveg viðeigandi. Við erum ennþá að reyna að finna út hvaða þetta kom og viljum alls ekki kannast við að þetta orð sé notað við heimilishaldið, í alvöru....

Svo var farið til augnlæknisins í dag og Auður Edda stóð sig eins og hetja enda búið að múta henni með nammi ef hún hegðaði sér vel. Útkoman varð því tveir sleikjóar, resept þar sem fram kemur að hún er fjarsýn og sjónskekkja. Búið er því að velja falleg bleik gleraugu sem hún er voða ánægð með og verður bara prakkaralegri með þau!
Látum þetta nægja í bili...