sunnudagur, desember 10, 2006

Loksins fór hún í Kína dressið



Í kvöld ákvað Sigga Bára að það væri kannski rétta kvöldið til að máta Kína dressið sitt - hún hefur harðneitað að líta við því þar til núna!! En viti menn hún vill ekki fara úr því - jebb þetta er Sigga Bára Min :-D
Bless í bú

laugardagur, desember 02, 2006

Frábær dagur Takk fyrir okkur



Það var virkilega gaman hjá fjölskyldunni í dag. Farið var í leikskólann og þar voru sko margar piparkökur málaðar af fröken Sigríði Báru en ykkur að segja fóru fleiri ómálaðar í mallakút !!! Þegar við vorum komin heim fengum við góða gesti í heimsókn - Hemma frænda og fjölskyldu. Svo þurftum við að drífa okkur í næsta boð - til Önnu Kristínar á meðan pabbi var heima að skreyta húsið og núna lítur það út eins og piparkökuhúsið í ævintýrinu um Hans og Grétu!!! Mikið var gaman að heimsækja Önnu Kristínu og fá tækifæri að hitta allar skemmtilegu vinkonurnar úr hópi 12 og svo ekki sé minnst á foreldra þeirra :-D
Jæja á morgun tekur við mjög svo annasamur dagur og daman löngu sofnuð til að geta notið hans til hins ýtrasta.
Bless í bú