fimmtudagur, júní 30, 2005

Styttist í brottför

Jæja oft finnast okkur hjónum dagarnir vera langir núna, úff.... en þetta er líka stundum dálitið óraunverulegt að vera að fara út að hitta loksins þessa litlu prinsessu. Svo er því ekki að leyna að það er líka að mjög mörgu að hyggja, búið að huga aftur og aftur að því hvað á að taka með og hvað er óþarfi. 'I því ferli þurfum við stöðugt að minna okkur á að í Kína eru líka verslanir og það víst ansi margar segja menn.
Núna er Ágústa vinkona okkar að sannfæra Gyðu um hversu mörg "dress" hún þurfi að taka með, ég heyri í þeim úr barnaherberginu og ætla ekki að hafa þau leyndarmál eftir. Ég stalst aftur á móti til að taka straujárnið úr sambandi eftir að hafa farið mjög mjúkum heitum "höndum" um einstaklega falleg náttföt sem höfðu verið keypt á prinsessuna. Taldi mér trú um að það væri gott að kæla járnið aðeins enda á mikið eftir að reyna á það síðar í sumar.
Best að setja járnið aftur í samband og halda áfram með verkefnið

miðvikudagur, júní 29, 2005

For our English speaking friends. – first info

There is a lot of tension at our home these days, less than one week to our departure – our journey to China. We will start by flying to Copenhagen on Monday (4) and spend close to two days there but Copenhagen is one of our favorit Cities. Most of our group will travel with us but on Tuesday evening we will all meet at the Kastrup airport in Copenhagen.
Then the plan is to fly to Beijing; (Peking) and we will spend few days there before we fly over to the City Nanchang in the Jiangxi providence. On the 10 of July we will finally meet our daughter Fu Ling Min but we have named her Sigridur Bara Min Karlsdottir.
The whole journey will take two weeks and we anticipate rather demanding trip for us as one can imagine.
The whole process has taken around one year but its delightful feeling to know that we are getting very close to the peak so to say or the destination. We have already got draft of the trip and the planning that has taken place. We will be able to do some sightseeing particularly before we go to Nanghang.
In last few days we have been making our home ready for the new family member, painting the room, buying clothing and other things that need to be ready. The father has never been known as a handy man so he has needed some extra help from friends to be able to connect lights extr.
Yesterday we got our travel tickets and that was a specific feeling not only having flight ticket to China but seeing booking for three persons on the way home. Its happening !!!!!

laugardagur, júní 25, 2005

Eins árs afmæli Sigríðar Báru Min

Sigríður Bára átti eins árs afmæli föstudaginn 24 júni og þótti foreldrunum tilefni til að baka eina súkkulaðitetru af tilefni dagsins. Við fengum margar afmæliskveðjur frá vinum og fjölskyldu af þessu tilefni og glatt var á hjalla á Hofteignum.
Sigurður Valur stjórnaði afmælissöng af þessu tilefni með tilheyrandi húrrahrópum, en hann er orðinn ansi hreint sjóaður í stjórnun á fjöldasöng af svona tilefnum.
Dagurinn var einnig merkilegur fyrir þær sakir að Gyða hætti að vinna, byrjar í sumarleyfi og fer síðan í fæðingarorlof vegna þessa merku tímamóta. Þá fer að styttast í að heimilisfaðirinn fari líka í frí og síðan orlof en miðað við upphaf ferðar þann 4 júli má vænta þess að síðasti starfsdagurinn verði að minnsta kosti að kvöldi hins 3 júli en mikil pressa er á honum að hefja töku orlofs eitthvað aðeins fyrr.
Mikið þökkum við öllum þeim sem hafa verið að senda okkur kveðjur og hamingjuóskir undanfarið en það hefur verið ómetanlegt.

sunnudagur, júní 19, 2005

Ferðadagsetning komin

Síðast liðinn mánudag var haldinn ferðafundur þar sem við fengum hagnýtar upplýsingar um ævintýraferðina okkar. Fyrir liggur að fara frá kóngsins Kaupmannahöfn að kvöldi 5 júlí og þjóta um loftin blá beint til Peking þar sem keisarans hallir skína eins og segir einhvers staðar :-) . Við leggjum liklega sólarhring fyrr af stað og hyggjumst eiga góða stund í köpen. Ekki er hægt að neita því að þessi fundur setti undirbúning allan á annað stig því nú þarf að halda vel á spöðunum, aðeins tvær vikur til brottfarar. Hjónin tóku sig því til undir öryggri forustu húsfrúarinnar og máluðu herbergið Sigríðar og síðan voru keypt ný ljós. Þrátt fyrir andmæli varð hinn nýbakaði faðir að hætta sér í að festa þau upp. Til öryggis var allt rafmagn tekið af íbúðinni ef ekki húsinu öllu og sumir segja að dimmt hafi orðið á Hofteignum öllum um stund, slíkt var öryggið eða kannski öllu heldur vanþekking á tengingum og vírum. En upp fóru ljósin og taka sig vel út, smá frágangur eftir sem frúin gaf leiðbeiningar um hvernig ætti að vera þannig að þessu er ekki að fullu lokið. Þrátlát kvefpest föðursins veittum honum engan umbuð eða samúð, herbergið yrði að verða tilbúið innan tíðar, ekkert væl. Siggi Valur fór með í verslunarleiðangur og gaf foreldrunum leiðbeiningar á ýmsu því sem okkar datt til hugar að við yrðum að hafa aðgengilegt, nú ekki sleppti hann að segja sína skoðun á nauðsynlegum fatnaði og fyrst kom í huga hans arsenal treygja. Klikkar ekki á smáatriðum pilturinn sá og ekki slæmt að hafa svona ráðleggingar sem auðvitað varð að verðlauna með góðri ísferð þar sem Gunna stóra frænka kom einnig með í. Nú er frúin að "skella" í nokkrar tertur enda afmælisdagur hennar á morgun og síðan á prinsessan litla afmæli á föstudaginn og aldrei að vita nema við blásum á eitt kerti ef einhver verða eftir á bænum eftir fjöldann sem nota verður á morgun.....

fimmtudagur, júní 09, 2005

Ein vika síðan

Tíminn líður hratt. Í dag er ein vika síðan við fengum myndirnar af henni Sigríði Báru Min. Á þessari einu viku höfum við foreldrarnir verið að dáðst af litlu tátunni, látið stækka ljósmyndir af henni og komið þeim að bókstaflega út um allt. Hópur 12 hittist hjá Sigrúnu á mánudaginn síðasta og komu allir foreldrar með myndirnar af dætrum sínum. Þann dag fengum við líka nýjar upplýsingar um Sigríði Báru Min, hún hefur stækkað frá því í janúar en þá var hún 64 cm og 7 kg. en nýjustu tölur segja að hún sé núna 72 cm og 8,2 kg. Hún er ólík pabba sínum en hann var nánast tannlaus fram að tveggja ára aldri, daman er í dag komin með 8 tennur, en var með 4 í janúar. Það er skemmst frá því að segja að í dag fengum við þykka möppu frá Íslenskri Ættleiðingu sem innihalda nauðsynlegustu upplýsingar um ferðina, hvernig undirbúa skal ferðina, hvað á að taka með sér, hvað má og hvað má ekki. Þetta er virkilega flott mappa hjá henni Guðrúnu sem hefur staðið sig eins og hetja. Í kvöld er handlagni heimilisfaðirinn búinn að setja saman rúm eftir eigin hugmyndum, nokkrar skrúfur rötuðu ekki á rétta staði (afgangur semsagt) og honum hulin ráðgáta hvar þeim var ætlað hlutverk svo ekki sé talað um gormana sem liggja í gluggakistunni (ennþá). Enn hann reynir sitt besta og við tökum viljan fyrir verkið. Næsta þriðjudag er áætlaður ferðafundur þar sem farið verður yfir ferðina, fardagar og dvalarstaðir ákveðnir. Fram að þeim tíma munum við undirbúa okkur undir verslunarleiðangur, kaupa snuð, pela, krem, samfellur og allt það sem hún Sigríður mun þurfa á að halda þegar hún hittir okkur.

þriðjudagur, júní 07, 2005

fimmtudagur, júní 02, 2005

Við höfum fengið myndir af dóttur okkar

Dagurinn í dag er merkisdagur. Seinnipart dags fékk Kalli símhringingu frá Íslenskri Ættleiðingu og honum tilkynnt að okkar biði myndir og upplýsingar um dóttur okkar. Móðirin var í ræktinni á þessu mikilvæga augnarbliki og rauk sveitt af stað með pabbanum til að sjá litla ungann. Þessi stúlka er án efa það fallegasta sem við höfum augum litið, fædd þann 24. júní árið 2004 og ber nafnið Fu Ling Min. Fyrra nafnið Fu er nafnið á barnaheimilinu og seinni nöfnin eiga að lýsa persónuleika hennar. Ling þýðir að vera snörp og Min þýðir glæsileiki. Hún hefur samkvæmt okkar upplýsingum búið hjá fósturforeldrum sem sjá án efa vel um hana fyrir okkur þar til við hittumst í júlí. Langþráðum áfanga er náð og nú tekur við að undirbúa komu prinsessunnar. Við tókum nokkrar myndir í dag og svo myndir af myndunum þar til við munum skanna þær inn og setja á netið.