fimmtudagur, júní 02, 2005

Við höfum fengið myndir af dóttur okkar

Dagurinn í dag er merkisdagur. Seinnipart dags fékk Kalli símhringingu frá Íslenskri Ættleiðingu og honum tilkynnt að okkar biði myndir og upplýsingar um dóttur okkar. Móðirin var í ræktinni á þessu mikilvæga augnarbliki og rauk sveitt af stað með pabbanum til að sjá litla ungann. Þessi stúlka er án efa það fallegasta sem við höfum augum litið, fædd þann 24. júní árið 2004 og ber nafnið Fu Ling Min. Fyrra nafnið Fu er nafnið á barnaheimilinu og seinni nöfnin eiga að lýsa persónuleika hennar. Ling þýðir að vera snörp og Min þýðir glæsileiki. Hún hefur samkvæmt okkar upplýsingum búið hjá fósturforeldrum sem sjá án efa vel um hana fyrir okkur þar til við hittumst í júlí. Langþráðum áfanga er náð og nú tekur við að undirbúa komu prinsessunnar. Við tókum nokkrar myndir í dag og svo myndir af myndunum þar til við munum skanna þær inn og setja á netið.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Enn og aftur til hamingju með litlu sætu bjútíbolluna ykkar :-)

En....þvílíkt kæruleysi að fara bara í ræktina á svona örlagastundu ;-) En þetta bjargaðist nú allt að lokum.

Hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst
Kristín, Gústi og mandarínan

Nafnlaus sagði...

til hamingju..Hún er falleg eins og ég!!!!!! Ég kem aftur til að sjá hana.

FON

Nafnlaus sagði...

Fallega frænkan mín :) Hlakka til að sjá hana :)

P.s Íris sendi sms frá Portúgal og er búin að skoða hana , "ekkert smá falleg" :)

Kveðja Bjarni + (Íris)

Nafnlaus sagði...

Kæru foreldrar.
Við hjónin sendum ykkar hlýjar kveðjur í tilefni af litlu dúllunni ykkar og vonum að ferðin gangi vel að sækja hana.það er ekkert yndislegra en að eiga börn en sjálfur hef ég verið lánsamur barnakall með 6 börn og 16 barnabörn m.v.þessa stundina.
Þór Gunnlaugsson og fjölskylda.
Ps.Gyða.Settu lýsi í bóndann svo að kvefsæknin minnki.