þriðjudagur, júlí 24, 2007

Kanntu afrínsku?

Sumt verður maður bara að setja niður á "blað" - þvílíku gullkornin sem hrynja af vörum elsku Telmu frænku. Þær voru í kvöld að hafa það kósí, með snakk í skál, teppi, horfa á Pétur Pan og kúra í sófanum þegar Telma stóra frænka (5 ára) spyr Siggu Báru " Sigga kanntu afrínsku?" Hmmm Sigga Bára bara starði á frænku og skildi ekki boffs í þessu - mamman kom inn í þetta og benti Telmu á að Sigga kæmi frá Kína en ekki Afríku - næsta spurning var því "Sigga kanntu þá Kína?" Semsagt núna þurfa mamma og pabbi að fara í kúrsinn "Lærðu kínversku á einni nóttu", barnið þarf auðvitað að kunna pínu í "Kína"
Bless í bú

mánudagur, júlí 23, 2007

Útilega á vegum ÍÆ



Fórum um helgina í útilegu á vegum ÍÆ. Vorum og erum svo heppin að Matthildur og fjölskylda voru með heljarinnar fellihýsi sem við fengum að deila. Það var svo gaman að sjá hvað þessar litlu snúllur eru góðar vinkonur og gaman að sjá og hitta alla vini okkar sem mættu í útileguna. Það voru samt nokkrar pæjur sem við söknuðum en vonandi koma þær bara næst. Sigga Bára hafði mikið gaman af nammikarlinum sem er auðvitað stórkostlegur maður og svo var auðvitað diskóið!!!!! Klædd í pils og viti menn Lína var spiluð tvisvar!!!! Sigga Bára hoppaði af kæti og hljóp beint fyrir framan hátalarana í trans!! Takk kæru vinir fyrir okkur - það er rétt hjá Krístínu Vald. sem hún sagði"Maður eignaðist ekki bara þetta fallega barn heldur heilan hóp af góðum vinum með"
Bless í bú
Posted by Picasa

þriðjudagur, júlí 10, 2007

Það eru tvö ár liðin frá kraftaverka ævintýradeginum mikla

Það eru liðin tvö ár í dag síðan við fengum Siggu Báru Min í fangið. Af því tilefni er búið að kíkja nokkrum sinnum á myndir frá þeim degi og upplifa þessa mögnuðu stund aftur í huganum. Hve erfitt þetta hefur verið fyrir lítinn unga að vera tekin úr umhverfi sínu og skellt inn í nýtt óþekkt umhverfi. Hve fljótt okkur fannst hún aðlagast okkur. Hve mikið okkur skjátlaðist þegar við vorum komin heim og sáum og fundum munin þegar hin sanna Sigga Bára kom í ljós. Hve yndisleg hún hefur verið frá fyrsta degi. Hve óendanlega okkur þykir vænt um hana.