mánudagur, júlí 23, 2007

Útilega á vegum ÍÆ



Fórum um helgina í útilegu á vegum ÍÆ. Vorum og erum svo heppin að Matthildur og fjölskylda voru með heljarinnar fellihýsi sem við fengum að deila. Það var svo gaman að sjá hvað þessar litlu snúllur eru góðar vinkonur og gaman að sjá og hitta alla vini okkar sem mættu í útileguna. Það voru samt nokkrar pæjur sem við söknuðum en vonandi koma þær bara næst. Sigga Bára hafði mikið gaman af nammikarlinum sem er auðvitað stórkostlegur maður og svo var auðvitað diskóið!!!!! Klædd í pils og viti menn Lína var spiluð tvisvar!!!! Sigga Bára hoppaði af kæti og hljóp beint fyrir framan hátalarana í trans!! Takk kæru vinir fyrir okkur - það er rétt hjá Krístínu Vald. sem hún sagði"Maður eignaðist ekki bara þetta fallega barn heldur heilan hóp af góðum vinum með"
Bless í bú
Posted by Picasa

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Halló sæta skonsa og foreldrarnir:)
Mikið þökkum við ykkur vel fyrir að bjóða okkur velkomnar við borðið ykkar og leyfa okkur að borða og ærslast með ykkur:) Það er sko greinilegt að það eru til fleiri skemmtilegir pabbar en pabbi minn:)
Það var frábært að hitta ykkur og sjá loksins þessa yndislegu fallegu skonsu, hana Siggu Báru Min, sem mamma er svo oft búin að dást að á myndum:)
Knús og kossar,
María Mist og Gígja mamma.

Nafnlaus sagði...

Elsku vinkona og vinir

Takk fyrir frábæra helgi, þið eruð frábærir ferðafélagar. Sjáumst sem fyrst og skottumst meira saman.

knús í krús
Matthildur og gamla settið