Í dag var útskriftardagur Siggu Báru úr leikskólanum. Dagurinn var stórkostlegur hjá henni en allur hópurinn fór í útskriftarferð á Skagann og nágrenni sem lauk með busli á Langasandi. Svo kl. 18 var hin eiginlega útskrift þar sem allir mættu í sínu fínasta pússi í hátíðarskapi. Börnin gengu svo fram ganginn við undirleik Michael Jackson og sungu og dönsuðu, fleiri söngatriði komu svo í kjölfarið, ræður, pizzu veisla og muffur sem þau bökuðu í gær. Vá hvað við erum búin að vera þakklát fyrir þessa stórkostlegu kennara sem Sigga Bára hefur haft undanfarin ár - það verður seint fullþakkað öll sú hlýja og hvatning sem hún hefur fengið þar svo ekki sé minnst á faglega starfið þar.
Mamman táraðist - viðurkenni það fúslega en þetta er bara stórt skref!!
Litla stóra ljósið okkar er sofnað svo óendanlega glöð.
Bless í bú
