Í dag var útskriftardagur Siggu Báru úr leikskólanum. Dagurinn var stórkostlegur hjá henni en allur hópurinn fór í útskriftarferð á Skagann og nágrenni sem lauk með busli á Langasandi. Svo kl. 18 var hin eiginlega útskrift þar sem allir mættu í sínu fínasta pússi í hátíðarskapi. Börnin gengu svo fram ganginn við undirleik Michael Jackson og sungu og dönsuðu, fleiri söngatriði komu svo í kjölfarið, ræður, pizzu veisla og muffur sem þau bökuðu í gær. Vá hvað við erum búin að vera þakklát fyrir þessa stórkostlegu kennara sem Sigga Bára hefur haft undanfarin ár - það verður seint fullþakkað öll sú hlýja og hvatning sem hún hefur fengið þar svo ekki sé minnst á faglega starfið þar.
Mamman táraðist - viðurkenni það fúslega en þetta er bara stórt skref!!
Litla stóra ljósið okkar er sofnað svo óendanlega glöð.
Bless í bú

4 ummæli:
Já mikið er hún nú orðin stór og dugleg hún Sigga Bára.
kv. Auður Sig
Til hamingju með útskriftina STÓRA Sigga Bára Min, orðin STÓRA systir og bráðum STÓR skólastúlka:)
Knús og kveðjur,
Gígja og María Mist.
Vááá ... hvað er flottar myndirnar af þér yndislega Sigga Bára. Og búin að útskrifast úr leikskólanum, enginn smá áfangi þar og svo er skólinn bara handan við hornið.
Það styttist líka vonandi í að litla systir komi heim, vitum að þú hlakkar alveg örugglega mikið til.
Knúsur inn í nóttina kæra fjölskylda, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí
Elsku Sigga Bára,
til hamingju með þennan stóra áfanga, mikið hefur þetta verið fallegur útskriftardagur hjá ykkur.
Kv.
Tóta og for.
Skrifa ummæli