miðvikudagur, júní 09, 2010

Nýjar upplýsingar um Auði Eddu Jin

Það var mikil gleði í morgun þegar tölvuskeyti barst frá Kína með nýjum upplýsingum um dömuna okkar og að auki tvær nýjar myndir. Hún hefur stækkað mikið litla ljósið frá þeim tíma sem hinar upplýsingarnar voru gerðar. Auður Edda er núna 82,5 cm. á hæð, vegur 10,5 kíló og hefur 20 tennur!!
Það kemur fram að hún labbar en er óvön að labba í stigum. Hún er dugleg að leika sér og farin að tala en þó ekki mikið. Hún er hrædd við ókunnuga og grætur ef þeir nálgast (svolítið mikið lík stóru systur þar).
Svo beið líka í pósthólfinu staðfesting frá Brian í Bandaríkjunum en hann hefur fundið mynd af Auði Eddu sem kornabarni, hann fann líka fyrir okkur mynd af Siggu Báru á sínum tíma.
Það verður að segjast að það er mikill systra svipur með Siggu Báru og Auði Eddu og sagðist Sigga Bára ætla að leyfa henni alltaf að vera með sér, líka þegar hún væri með vinkonum sínum. Það leið samt ekki langur tími þar til hún kom með fyrirvara - "Mamma en ég þarf sko líka stundum að fá frí!" Við erum svo viss um að hún Sigga Bára verður besta stóra systir sem hægt er að eignast og hún er alveg tilbúin í það hlutverk.
Lífið er gott og núna er beðið eftir laugardeginum en þá ætlar Sigga Bára að halda upp á 6 ára afmælið (á afmæli 24.júní) með vinkonum frá leikskólanum og búið að vera að undirbúa það í kvöld og dag enda stór áfangi að vera 6 ára.
Lífið er gott og mikið þakklæti hér hjá okkur öllum
Bless í bú

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Yndislegt:) Mikið sem ég hlakka til að sjá þessa litlu skottu:)
Knús og kossar til ykkar frá okkur í Norge,
Gígja og María Mist.

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Frábærar fréttir.
Já, ég segi nú eins og Gígja, hlakka mikið til að hitta Auði litlu Eddu og er ekki í vafa um að Sigga Bára á eftir að verða frábær stóra systir. Afinn gamli og Hildur Björg biðja kærlega að heilsa:-)
Bestu kveðjur, Þórdís.