fimmtudagur, júní 17, 2010

Þjóðhátíðardagur kom með stórkostlegar fréttir


Dagurinn í dag er búinn að vera frábær. Við fjölskyldan fórum niður í bæ með ömmu, Höllu Elísabetu, Álfrúnu, Steinunni Völu og Ernu Hrund. Fengum að fara í hoppukastala, pokahoppkeppni, snara naut, kaffihús, gefa öndunum brauð, fara á kaffi hús og svo auðvitað snuðsleikjó og helíum blaðra. Þetta er uppskrift að hinum fullkomna 17. júní. Í kvöld var svo farið til ömmu og afa en hefðin er sú að þau gefa okkur besta þjóðhátíðarmatinn og endað er á dýrindis marenge köku. Takk fyrir frábæran dag!!
En þetta er ekki allt því í pósthólfinu beið okkar besta gjöfin en það voru tillögur að ferðadagsetningum til Kína til að sækja okkar ástkæru Auði Eddu Jin, því miður var Sigga Bára sofnuð þegar við lásum skeytið en mikið verður hún glöð í fyrramálið!! Áætlað er að ferðin hefjist 15. júlí og heimkoma þann 28. júlí. Við munum ferðast með Bróa og Eddu sem verður bara gaman en óskin okkar er að fara tveimur til þremur dögum fyrr út til Peking til að njóta þess að vera túristar áður en skipulögð dagskrá hefst.
Núna er bara að fá þetta alveg 100% staðfest frá vinum okkar í Kína og kalla hátt og skýrt AUÐUR EDDA VIÐ ERUM ALVEG AÐ KOMA!!!
Bless í bú
Posted by Picasa

6 ummæli:

Kristín Vald sagði...

Stórkostlegar fréttir á þessum fallega degi !!

Já, Auður Edda, fjölskyldan þín er sko aaaaaalveg að koma til þín og þú verður sko ekki fyrir vonbrigðum því hún er æði....eins og þú :-)

Gleðilega þjóðhátíð kæru vinir !!

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda
Frábærar fréttir og svo ótrúlega stutt í ferðina ykkar. Vááá, hvað ég er orðin spennt fyrir ykkar hönd ;o)
Knúsur og kveðjur á lokaspretti undirbúnings - svo stutt í fjölskyldustækkunina ;o)
Njótið ykkar, Sigurbjörg og feðginin, jamm og Gyða mín, til hamingju með morgundaginn ;o)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Gyda Kalli og Sigga Bára med dótturina og litlu systir.

Kvedja
Sigrún og co i Sverige

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda,
til hamingju með þessar stórkostlegu fréttir, get rétt ímyndað mér gleðina hjá Siggur Bára að vita hversu stutt er núna í litlu systur! :-)
Hlakka til að fylgjast með ævintýraferðinni til Shanghai! :)

Bestu kveðjur
Sigga og fjölsk

Nafnlaus sagði...

Frábær 17. júní hjá ykkur fjölskyldunni, annað er sko ekki hægt að segja :)
Mikið verður gaman að fylgjast með þegar að fallega Auður Edda Jin fær ykkur loksins til sín og mikið verður nú gaman að fylgjast með fröken Siggu Báru Min takast á við stóru systur hlutverkið.
eigið frábæra daga framundan við undirbúning

knús og kossar
Bakkabúarnir

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir.
Gangi ykkur vel með ferðaundirbúninginn.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján og Hildur Björg.