mánudagur, ágúst 30, 2010

Framtönn fauk í dag


 
Það kom loksins að því að fyrri framtönnin fór en þessa tíma hefur verið beðið um nokkra vikna skeið. Sigga Bára var mjög stolt og hún hefur auðvitað stækkað mikið við þessi tímamót eins og vænta mátti. Litla systir þurfti að sýna og leika líka að hún hefði misst tönn og tók á móti Pabba sínum með því að benda á tennurnar og opna muninn. Það þarf allt að vera eins núna og enginn að vera eftirbátur í neinu. Ingvar Wu og Hrund komu í heimsókn í morgun og mikið var gaman að fylgjast með þeim Auði Eddu og Ingvari. Þau voru virkilega að leika sér saman og herma eftir hvort öðru. Það er nú meiri snilldin hvað við erum búin að kynnast góðu fólki í gegnum þessar "fæðingar" dætra okkar.
Eftir góðan dag fórum við í heimsókn og kvöldverð til Laufeyjar og Júníu , Lin Wei og Jóns og fengum alvöru Kínamat og nutum góðrar kvöldstundar. Það klikkar nú ekki í slíkum félagsskap.
Ekki má gleyma því að við vorum síðastliðnu helgi í Suðursveit með stórfjölskyldunni. Það klikkar ekki að eyða helgi með föðurfjölskyldunni. Við stefnum á að skella inn myndum í heildaralbúmi fyrir hvern mánuð fyrir sig þá vonandi í vikunni ef mamman fær lausa stund, það er bara allt of mikið að gera í svona fæðingarorlofi!! Mamman er ekki enn byrjuð að bródera fallegu Kínamyndina sem Jóna gaf mömmunni - það hlýtur að fara að koma laus stund bráðum er það ekki?
Bless í bú

miðvikudagur, ágúst 25, 2010

Skólinn stóðst væntingar




Það var  stolt stúlka sem gekk í skólann í dag, með litla systur sér við hlið sem neitaði að fara út nema hafa líka bakpoka meðferðis. Sigga Bára er í hópi sem kallast Hrafnarnir (eins og fuglinn) en þar eru margir góðir vinir. Á sama borðaklasa situr Elísabet vinkona og Huginn þannig að þetta er allt saman mjög þægilegt. Henni fannst gaman að fara í tvær frímínútur en var ekki alveg sátt við að fara ekki í Selið (frístundarheimilið) með hinum krökkunum - en það kemur að því. Auk þess var steikti fiskurinn mjög góður en mín bara gleymdi að fá sér grænmeti, ekki alveg viss um að það sé rétt skýring hjá dömunni en hún fær að njóta vafans svona fyrsta daginn.
Auður Edda leit við í vinnuna hjá mömmu sem var bara gaman enda vandfundið svona skemmtilegt fólk eins og þar er að finna.
Þegar Sigga Bára var búin í skólanum skelltum við mæðgur á okkur hjólahjálmana, hjóluðum í ísbúðina til hennar Lóu þar sem dæturnar sleiktu ís í veðurblíðunni en mamman sötraði vatn. Já þeim er misskipt lífsgæðunum.
Bless í bú

þriðjudagur, ágúst 24, 2010

Skólinn hefst á morgunn...

Skólaganga Siggu Báru í grunnskóla hefst í fyrramálið. Mikið óskaplega er gaman að fá að upplifa eftirvæntinguna og gleðina með Siggu Báru, hún er svo tær, heilög og sönn. Hún er þess fullviss að það verði alltaf gaman í skólanum og allir verði vinir. Hún átti erfitt með að sofna í kvöld, spurði í sífellu hvað það væru margir klukkutímar í að hún ætti að vakna og svarið var sofna fyrst unga dama. Skólafötin liggja tilbúin en hún valdi samsetninguna sjálf því hvað er verra en að mæta í skólann í fötum sem mamma velur og finnast maður púkó - kannast einhver við þá tilfinningu?
Auður Edda er alltaf jafn fjörug og skemmtileg. Vaknar brosandi og sofnar ekki eins brosandi. Orðin hrannast inn hjá henni, skilningurinn flottur, mikil sundkona og bara elskar að vera úti að moka, fékk meira að segja að moka með krökkunum á Hofi í dag þegar Sigga Bára kom í heimsókn til að monta sig með litlu systur.
Lífið er semsagt að komast í "rútínu", Kalli farinn að vinna og mamma er í mömmó!
Bless í bú

sunnudagur, ágúst 22, 2010

Latabæjarhlaupið – engin leti þar




Við fórum fjölskyldan í gær niður í bæ eins og svo margir. Búið var að skrá Siggu Báru í Latabæjarhlaupið og var mikil stemming yfir þátttökunni, síðast þegar hún fór í það var hún þriggja ára og man ekkert eftir því!! Þarna hittum við marga vini og var mikil gleði. Sigga Bára vissi það að það myndu allir vinna í þessu hlaupi og var sú setning endurtekin nokkrum sinnum við ráslínuna þar sem hún stóð auðvitað fremst. Mamma hljóp með henni þessa 1,5 km. á meðan pabbi og Auður Edda voru í hópi hvetjara á hliðarlínunni. Til að gera langa sögu stutta þá við marklínuna bauðst Sigga Bára til að draga mömmu í mark – jebb hún hefur þolið í lagi hún Sigga Bára.

Eftir hreyfinguna var labbað niður á torg, drukkið kaffi í Ráðhúsinu með Olgu, Olla og Eyþóri en þar sem vindur hafði rokið upp og kuldi farinn að hrjá mannskapinn var farið á skyndibitastað borðað mikið óhollt, brunað á videoleigu og svo var horft á Harry Potter með popp í skál. Sigga Bára er nefnilega að byrja á Harry Potter bókunum – pabbi les fyrir mæðgurnar á kvöldin og svo er horft á viðeigandi mynd. Hann kann að dekra við dömurnar sínar hann Kalli!

Bless í bú

mánudagur, ágúst 16, 2010

Hjólað um bæinn.

Við létum það ekki á okkur fá að einhverjir óprúttnir kappar töldu sig geta tekið frá okkur ekki bara eitt reiðhjól heldur tvö slík farartæki. Við festum kaup á einu hjóli og fengum síðan þennan líka flotta stól fyrir litlu dömuna þannig að núna er bara hjólað um bæinn. Heimsóttum Höllu afmælisbarn og Palla í gær í Kópavoginn og létum rigningu ekki á okkur fá heldur bættum bara við einum hlífðarfatnaðinum. Síðan var farið í þennan flotta hjólareiðaleiðangur í dag. Auður vaknaði af einhverjum ástæðum rúmlega fimm í morgun og eftir morgunleikfimi frúinnar þá var smurt og pakkað í bakpoka. Við héldum upp í Elliðaárdal og borðuðum nesti, hjólunum síðan áfram og fórum og skoðuðum Árbæjarsafnið sem er frábært svæði til að fara með börn. Flott safn og skemmtilegt að koma þarna. Sigga Bára er þvílík hetja hjólaði þetta allt og þrjóskaðist við í mestu brekkunum með því að tuða „ ég get þetta, ég get þetta“ ekki hægt annað en horfa til hennar full aðdáunar. Vonandi viðrar vel næstu daga til að halda áfram að skoða bæinn og kannski einhver ný hverfi, hver veit ?
Bless í bú

laugardagur, ágúst 14, 2010

Laugardagur til lukku

Morguninn var tekinn rólega í dag hjá fjölskyldunni eða þar til við litum út um gluggann og sáum þrestina gera árás á rifsberjarunnana!! Kalli og Auður Edda ruku út í rigninguna og týndu rifsber eins og enginn væri morgundagurinn. Svo litu Anna Kristín, Fanney og Hafsteinn við hjá okkur, alltaf gaman að hitta þau. Svo var farið á róló og mikið ótrúlega er gaman að sjá hvað Auður Edda er búin að læra margt og hvað Sigga Bára er alltaf að verða ábyrgari og natnari við systur sína. Palli, Halla og Halla Elísabet hittu okkur á róló. Hemmi, Þóra og börn litu við, Aggi vinur og að lokum Olga og börn. Við erum rík að eiga svona góða fjölskyldu!!
Auður Edda er farin að mynda mörg orð eins og  hími (sími), pissa, mata, gisa (kisa) og svo koma nöfn fjölskyldumeðlima auk þess sem verið er að rugla pínu með augu, nef, munn og eyru. Snillingar sem við eigum hér á bæ.
Bless í bú

miðvikudagur, ágúst 11, 2010

Áfram heldur gleðin


Auður Edda Jin er algjör perla og unnir sér vel hjá okkur. Undanfarnir dagar hafa verið virkilega skemmtilegir og gefandi fyrir okkur með Auði Eddu. Hún er skemmtilegur orkubolti sem er alltaf á fullu og líka dugleg að dunda sér og skoða hlutina ef þannig stendur á. Helst vill hún vera úti og þá helst hlaupandi nú eða í sundi. Búið er að fara í fyrstu heimsókn til Ömmu og Afa þar sem hún tók vel til matarins sem gladdi afa mikið. Hún borðar vel og nýtur þess að smakka og ekki síður að taka þátt í því að búa til mat sem er alveg eins og Sigga Bára hefur líka alltaf gert. Sigga Bára er virkilega góð við litlu systir og skilningsrík og leikur sér við hana og leiðbeinir eins og búast mátti við af henni. Þrátt fyrir að við höfum mest verið heimavið og tekið á móti gestum þar eins og aðstæður leyfa þá leyfðum við okkur að fara og hitta hóp 12 um síðustu helgi , en hópurinn frábæri hittist að þessu sinni í Elífsdal í Kjósinni. Það vantaði ekki gleðina þar og stúlkurnar skemmtu sér virkilega vel og nutu þess besta sem hægt er, góðum félagsskap, fallegu umhverfi og ótrúlega góðum mat (og mikið af honum). Sú stutta var virkilega þreytt eftir daginn og sofnaði í bílnum á leiðinni sem er fyrsta skipti sem það gerist. Við höfum svo verið að gera smá aðlögun á herbergjum hjá okkur til að tryggja að skólastelpan sem er að fara í fyrsta bekk eftir nokkra daga verði tilbúin í nýtt umhverfi, annars verður að segjast eins og er að lífið leikur við okkur og dömurnar eru báðar alveg frábærar og gera gömlu hjónin yngri ef eitthvað er....
Aurður Edda er líka farin að skilja alveg ótrúlega mikið, fara eftir tilmælum, sækja hluti og tala smá þó kínverskan sé auðvitað númer eitt!!
Myndir birtast bráðum kannski í næsta pósti - tæknin aðeins að stríða okkur.
Bless í bú

föstudagur, ágúst 06, 2010

Auðurnar hittust í fyrsta sinn, langur göngutúr og læknar landsins


Dagurinn gekk vel hjá okkur og var einkar ánægjulegur. Hann hófst með góðri heimsókn frá Auði og það kom ekki á óvart að vel fór á með þeim nöfnum. Við tókum okkur síðan til og fengum okkur góðan göngutúr niður í bæ, horfðum til himins og tókum áhættuna á því að ekki myndi rigna mikið á okkur. Eftir góðan göngutúr í bæinn fórum við og fengum okkur Tælenska súpu á Skólavörðustíg, eitthvað sem klikkar ekki. Við tilltum okkur á nærliggjandi gæsluvöll og kláruðum súpuna en urðum að leita vars því við fengum á okkur góða dembu. Við áttum síðan tíma hjá Gesti lækni og félögum sem gekk ágætlega, ekki var sú stutta ánægð með þessa sprautu en hverjum er vel við þær? Eins og staðan er þá er Gestur er virkilegá ánægður með þá stuttu og hlutirnir eru að ganga vel hjá okkur. Við eru aðeins að prófa okkur áfram með svefninn hennar Auðar Eddu og slepptum því að láta hana taka lúr í dag þar sem ílla hafði gengið að koma henni niður í gær. Hún var því orðin nokkuð syfjuð þegar hún hafði hesthúsað góðum disk af stöppuðum fiski og steinsofnaði yfir fréttum enda ekkert tilefni til að vaka yfir þeim, frekar tíðindalítið og ómerkilegt. Þá tók við kósý kvöld með Siggu Báru þar sem hún fékk að ráða kvöldinu. Hún stendur sig sem hetja og er mikið að sinna litlu systur, er góð og blíð við hana og leikur við hana alltaf meira og meira. Er hægt að biðja um eitthvað betra ?
Bless í bú

miðvikudagur, ágúst 04, 2010

Sund og sæla

Undanfarnir dagar hafa gengið vel hjá fjölskyldunni. Hún Sigga Bára er svo ljúf og góð við systur sína og við sjáum mikinn dagamun á þeim hvað þær sækjast meira í félagsskap hvor við aðra. Við erum búin að fara í sund með góðum vinum bæði í gær og í dag. En óvænt hittum við Ingvar Wu ásamt fjölskyldu í Laugardalslaug í dag sem var gaman og svo hittum við líka Önnu Kristínu og fjölskyldu í sömu sundferð - ekki amalegt að hitta ferðafélaga úr báðum Kínaferðum á sama degi!!
Auður Edda er fyndin lítil stúlka sem hermir eftir öllu - er sérstaklega hrifin af símanum og talar við alla "Allo bæ bæ" hlær og vill endurtaka leikinn. Sigga Bára er líka aðalkennarinn en það er sama hvað hún gerir þá vill Auður Edda herma eftir. Í kvöld gerði hún samt eitt sem okkur Siggu Báru fannst pínu fyndið (Auður Edda heyrði ekki flissið í mömmu og stóru systir) en þegar mamma var að lesa kvöldsögu fyrir dæturnar uppi í rúmi tók Auður Edda lúmskt í hönd systur sinnar, bara hana að enninu og þóttist hafa meitt sig - eða kannski að Sigga Bára hafi verið að meiða hana - þarna var daman að sækjast eftir vorkun og knúsi sem er gott en auðvitað ekki á kostnað stóru systur. Mikið var Siggu Báru samt létt að mamma var vitni að þessum atburði hjá litlu systur sem hún endurtók nokkrum sinnum.
Við erum ríkir foreldrar!!
Bless í bú
Myndir hér

mánudagur, ágúst 02, 2010

Systurnar fóru út á róló

Sigga Bára og Auður Edda fóru tvisvar sinnum út á róló í dag. Litla systir elskar að renna sér - kemur ekki á óvart þar sem hún mun örugglega fara í eitthvað jaðarsportið segja foreldrarnir, svo er verið að kenna henni að róla, vegasalt og moka. Hún Sigga Bára er dugleg að kenna þeirri stuttu og hermir Auður Edda allt eftir henni. Í dag komu móðursystur með börnin sín (og Gunna ) og þótti systrum það gaman. Amma og afi litu við en amma var búin að prjóna fallega peysu á Auði Eddu en í gær komu Palli, Halla og Steinunn Vala í heimsókn og færðu henni Auði Eddu fallegt eyrnaband ala Halla. Sú á eftir að verða fín í vetur!!
Ferðafélagarnir Brói og Edda komu í morgun - það er ekki laust við að við séum í fráhvarfi þar sem allir dagar ferðarinnar voru svo skemmtilegir með þeim!!
Systurnar eru sofnaðar núna - glaðar eftir útiveruna í dag og stefnt er á að vera mikið úti á morgun líka!!
Bless í bú
Myndir eru hér

sunnudagur, ágúst 01, 2010

Laugardalurinn er staðurinn

Deginum í gær og í dag var að mestu varið utanhúss. Í gær var farið í sund (aftur!) og svo grasagarðurinn þar sem sú stutta tiplaði á tánum í grasinu á meðan stóra systir og Elísabet vinkona hennar stóðu fyrir leikhússýningu á styttunum. Í dag kom Blómvangsfjölskyldan í heimsókn og eftir gott morgunkaffi var farið í Húsdýragarðinn þar sem Matthildur og Sigga Bára nutu sín ekki síður en Karólína og Auður Edda.
Svo var haldið heim, Sigga Bára og Matthildur léku sér það sem eftir var degi á meðan Auður Edda tók sér lúr og tók á móti þeim Palla, Höllu og Steinunni Völu.
Auður Edda er ótrúlega lífsglöð stúlka, hún veit hvað hún vill, er feimin við ókunnuga en þar sem hún er öruggust já þá á Duracell viðurnefnið vel við!! Sigga Bára stóra ljósið okkar er svo þolinmóð og góð við nýjan fjölskyldumeðlim - hefur eiginlega stækkað mikið á þessum tveimur vikum - kannski of mikið finnst mömmu.
Jæja hér er meira af þvotti en var áður og okkur ekki til setunnar boðið ....
Bless í bú
Myndir eru hér