Við létum það ekki á okkur fá að einhverjir óprúttnir kappar töldu sig geta tekið frá okkur ekki bara eitt reiðhjól heldur tvö slík farartæki. Við festum kaup á einu hjóli og fengum síðan þennan líka flotta stól fyrir litlu dömuna þannig að núna er bara hjólað um bæinn. Heimsóttum Höllu afmælisbarn og Palla í gær í Kópavoginn og létum rigningu ekki á okkur fá heldur bættum bara við einum hlífðarfatnaðinum. Síðan var farið í þennan flotta hjólareiðaleiðangur í dag. Auður vaknaði af einhverjum ástæðum rúmlega fimm í morgun og eftir morgunleikfimi frúinnar þá var smurt og pakkað í bakpoka. Við héldum upp í Elliðaárdal og borðuðum nesti, hjólunum síðan áfram og fórum og skoðuðum Árbæjarsafnið sem er frábært svæði til að fara með börn. Flott safn og skemmtilegt að koma þarna. Sigga Bára er þvílík hetja hjólaði þetta allt og þrjóskaðist við í mestu brekkunum með því að tuða „ ég get þetta, ég get þetta“ ekki hægt annað en horfa til hennar full aðdáunar. Vonandi viðrar vel næstu daga til að halda áfram að skoða bæinn og kannski einhver ný hverfi, hver veit ?
Bless í bú
mánudagur, ágúst 16, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Dugnaðarforkur hún Sigga Bára ;) Það er sko gaman að hjóla um í Mosó og ekki verra að koma við hjá bóndanum á Reykjum og kaupa brakandi nýtt grænmeti :)
kveðja
Gerður
Elsku Kalli og Gyða, innilega til hamingju með litla gullmolann ykkar. Þær eru báðar alveg yndislegar og þið svo sannarlega rík. Það er svo gaman að eiga svona 2 ólíkar dömur...ég hef reynslu af því. Kalli minn þú ert núna í algjörum minnihluta:-) Gaman að skoða bloggið og myndirnar. Kær kveðja til ykkar allra. Inga Birna
Hæ hæ elskulega fjölskylda gaman að heyra hvað þið eruð dugleg, Sigga Bára er algjör hetja að hjóla svona langt, mikið sem þær eru fallegar báðar tvær og gaman að allt gengur svo vel, söknum ykkar.
Kossar og knús frá Kína
Jóna og Jói
Hjartans hamingjuóskir með nýja fjölskyldumeðliminn. Þær eru kátar og fallegar, systur. Gangi ykkur allt í haginn hér eftir sem hingað til.
Bestu kveðjur,
Björgvin og Margrét
Skrifa ummæli