miðvikudagur, ágúst 25, 2010

Skólinn stóðst væntingar




Það var  stolt stúlka sem gekk í skólann í dag, með litla systur sér við hlið sem neitaði að fara út nema hafa líka bakpoka meðferðis. Sigga Bára er í hópi sem kallast Hrafnarnir (eins og fuglinn) en þar eru margir góðir vinir. Á sama borðaklasa situr Elísabet vinkona og Huginn þannig að þetta er allt saman mjög þægilegt. Henni fannst gaman að fara í tvær frímínútur en var ekki alveg sátt við að fara ekki í Selið (frístundarheimilið) með hinum krökkunum - en það kemur að því. Auk þess var steikti fiskurinn mjög góður en mín bara gleymdi að fá sér grænmeti, ekki alveg viss um að það sé rétt skýring hjá dömunni en hún fær að njóta vafans svona fyrsta daginn.
Auður Edda leit við í vinnuna hjá mömmu sem var bara gaman enda vandfundið svona skemmtilegt fólk eins og þar er að finna.
Þegar Sigga Bára var búin í skólanum skelltum við mæðgur á okkur hjólahjálmana, hjóluðum í ísbúðina til hennar Lóu þar sem dæturnar sleiktu ís í veðurblíðunni en mamman sötraði vatn. Já þeim er misskipt lífsgæðunum.
Bless í bú

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gaman að heyra að fyrsti skóladagurinn stóðst væntingar - duglega Sigga Bára.
Og ég er glöð með litla ofurkrúttið sem lætur nú ekki bjóða sér annað en að fara út úr húsi með sama staðalbúnað og stóra systir. Krútthildur.
Gangi þér áfram vel á morgun Sigga Bára - sjáumst fljótt og takk fyrir skemmtilega sundferð í gær sætu systut og Gyða
kv. Día og G.E.

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra hve vel gekk í dag.
Kveðja frá Hildi Björgu og fjölskyldu.

Nafnlaus sagði...

Frábært að allt gekk vel, gaman að þeirri litlu! ;o)

B.Kv.
Sigga og kó

Erna Hrund sagði...

Æðislegt! Til hamingju með fyrsta skóladaginn elsku sæta frænka og sjáumst á morgun í sveitasælunni!***

Nafnlaus sagði...

Yndislegt hvað allt gengur vel hjá ykkur!:) Sú stutta hreinlega ljómar!:)
Flott skólastelpan á bænum!:) Stoltið leynir sér ekki!:)
Knús frá Akureyri,
Gígja og María Mist.

Nafnlaus sagði...

Yndislegt að fylgjast með systrunum sætu og yndislegu. Flotta skólastelpan Sigga Bára og Auður Edda ætlar greinilega ekkert að gefa henni eftir í dugnaðnum.
Eigið ljúfa daga framundan.
Knúsur í kotið, Sigurbjörg og co