Sigga Bára og Auður Edda fóru tvisvar sinnum út á róló í dag. Litla systir elskar að renna sér - kemur ekki á óvart þar sem hún mun örugglega fara í eitthvað jaðarsportið segja foreldrarnir, svo er verið að kenna henni að róla, vegasalt og moka. Hún Sigga Bára er dugleg að kenna þeirri stuttu og hermir Auður Edda allt eftir henni. Í dag komu móðursystur með börnin sín (og Gunna ) og þótti systrum það gaman. Amma og afi litu við en amma var búin að prjóna fallega peysu á Auði Eddu en í gær komu Palli, Halla og Steinunn Vala í heimsókn og færðu henni Auði Eddu fallegt eyrnaband ala Halla. Sú á eftir að verða fín í vetur!!
Ferðafélagarnir Brói og Edda komu í morgun - það er ekki laust við að við séum í fráhvarfi þar sem allir dagar ferðarinnar voru svo skemmtilegir með þeim!!
Systurnar eru sofnaðar núna - glaðar eftir útiveruna í dag og stefnt er á að vera mikið úti á morgun líka!!
Bless í bú
Myndir eru hér
mánudagur, ágúst 02, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hæ hæ elskurnar - gaman að lesa pistlana hjá ykkur og sjá hvernig gengur og myndirnar allar, maður minn hvað systurnar eru yndislegar.
Bestu kveðjur í bæinn, Sigurbjörg og feðginin
Kæra fjölskylda.
Frábært hve allt gengur ótrúlega vel hjá ykkur, systur alveg yndislegar, sú stutta svo dugleg að læra og sú stóra orðin svooo stór og fullorðinsleg.
Gangi ykkur áfram svona vel.
Kær kveðja frá Hildi Björgu og gamla settinu.
Endalaust gaman að fylgjast með, lesa og skoða myndir af yndislegum systrum! :)
Eins og einhver sagði- Kristín V. þá gæti ég ekki verið meira sammála um ríkidæmi okkar!! :-)
Kveðja,
Sigga og familían
Skrifa ummæli