laugardagur, ágúst 14, 2010

Laugardagur til lukku

Morguninn var tekinn rólega í dag hjá fjölskyldunni eða þar til við litum út um gluggann og sáum þrestina gera árás á rifsberjarunnana!! Kalli og Auður Edda ruku út í rigninguna og týndu rifsber eins og enginn væri morgundagurinn. Svo litu Anna Kristín, Fanney og Hafsteinn við hjá okkur, alltaf gaman að hitta þau. Svo var farið á róló og mikið ótrúlega er gaman að sjá hvað Auður Edda er búin að læra margt og hvað Sigga Bára er alltaf að verða ábyrgari og natnari við systur sína. Palli, Halla og Halla Elísabet hittu okkur á róló. Hemmi, Þóra og börn litu við, Aggi vinur og að lokum Olga og börn. Við erum rík að eiga svona góða fjölskyldu!!
Auður Edda er farin að mynda mörg orð eins og  hími (sími), pissa, mata, gisa (kisa) og svo koma nöfn fjölskyldumeðlima auk þess sem verið er að rugla pínu með augu, nef, munn og eyru. Snillingar sem við eigum hér á bæ.
Bless í bú

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jeminn eini hvað ég hef misst af miklu eftir að ég fór í fæðingarorlofið og hætti að kíkja hér inn, varð svo hugsað til ykkar þegar ég sá þig Gyða skrifa á Facebook að þig vantaði stól á hjólið. Sigga Bára hlyti að vera of stór fyrir svoleiðis. Þannig að ég gróf upp síðuna ykkar :Þ Innilegar hamingjuóskir með fallegu stúlkuna ykkar, þær eru báðar svo dásamlegar!!! Væri alveg til í að fá að skoða myndirnar úr Kínaferðinni ef þú leyfir ;) Er með palliogheida hjá simnet.is. Gangi ykkur vel með allt saman...
Heiða Árna, fyrrum ÚTL