þriðjudagur, ágúst 24, 2010

Skólinn hefst á morgunn...

Skólaganga Siggu Báru í grunnskóla hefst í fyrramálið. Mikið óskaplega er gaman að fá að upplifa eftirvæntinguna og gleðina með Siggu Báru, hún er svo tær, heilög og sönn. Hún er þess fullviss að það verði alltaf gaman í skólanum og allir verði vinir. Hún átti erfitt með að sofna í kvöld, spurði í sífellu hvað það væru margir klukkutímar í að hún ætti að vakna og svarið var sofna fyrst unga dama. Skólafötin liggja tilbúin en hún valdi samsetninguna sjálf því hvað er verra en að mæta í skólann í fötum sem mamma velur og finnast maður púkó - kannast einhver við þá tilfinningu?
Auður Edda er alltaf jafn fjörug og skemmtileg. Vaknar brosandi og sofnar ekki eins brosandi. Orðin hrannast inn hjá henni, skilningurinn flottur, mikil sundkona og bara elskar að vera úti að moka, fékk meira að segja að moka með krökkunum á Hofi í dag þegar Sigga Bára kom í heimsókn til að monta sig með litlu systur.
Lífið er semsagt að komast í "rútínu", Kalli farinn að vinna og mamma er í mömmó!
Bless í bú

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góða skemmtun í skólanum, Sigga Bára.

Kveðja frá Hildi Björgu sem ætlar að læra stærðfræði og ensku í vetur og mömmunni sem ætlar að kenna stærðfræði og ensku í vetur!!

Nafnlaus sagði...

Gaman að fylgjast með ykkur og Sigga Bára á eftir að rúlla upp skólanum, vonandi helst þessi spenningur bara næstu 20 árin ;)´
kv Heiða Árna