mánudagur, ágúst 30, 2010

Framtönn fauk í dag


 
Það kom loksins að því að fyrri framtönnin fór en þessa tíma hefur verið beðið um nokkra vikna skeið. Sigga Bára var mjög stolt og hún hefur auðvitað stækkað mikið við þessi tímamót eins og vænta mátti. Litla systir þurfti að sýna og leika líka að hún hefði misst tönn og tók á móti Pabba sínum með því að benda á tennurnar og opna muninn. Það þarf allt að vera eins núna og enginn að vera eftirbátur í neinu. Ingvar Wu og Hrund komu í heimsókn í morgun og mikið var gaman að fylgjast með þeim Auði Eddu og Ingvari. Þau voru virkilega að leika sér saman og herma eftir hvort öðru. Það er nú meiri snilldin hvað við erum búin að kynnast góðu fólki í gegnum þessar "fæðingar" dætra okkar.
Eftir góðan dag fórum við í heimsókn og kvöldverð til Laufeyjar og Júníu , Lin Wei og Jóns og fengum alvöru Kínamat og nutum góðrar kvöldstundar. Það klikkar nú ekki í slíkum félagsskap.
Ekki má gleyma því að við vorum síðastliðnu helgi í Suðursveit með stórfjölskyldunni. Það klikkar ekki að eyða helgi með föðurfjölskyldunni. Við stefnum á að skella inn myndum í heildaralbúmi fyrir hvern mánuð fyrir sig þá vonandi í vikunni ef mamman fær lausa stund, það er bara allt of mikið að gera í svona fæðingarorlofi!! Mamman er ekki enn byrjuð að bródera fallegu Kínamyndina sem Jóna gaf mömmunni - það hlýtur að fara að koma laus stund bráðum er það ekki?
Bless í bú

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til lukku með tannmissinn kæra vinkona, það er nú meira hvað þið vinkonurnar eru samferða í þessu...bara vika síðan Matthildur missti sína framtönn ;-)

knús í hús
Kristín, Matthildur og Karólína
p.s. Gyða mín, það er nú meira hvað þú ert bjartsýn...hehe

Nafnlaus sagði...

Hahaahaha, bjartsýna mamman....!:
Til lukku með tannmissin Sigga Bára!!

B.Kv
Sigga og kó