mánudagur, september 06, 2010

Heimalærdómur hjá Siggu Báru og Auður Edda sefur í eigin rúmi





Það er einhvernveginn allt svo ljúft hér hjá okkur að maður nánast stenst það ekki að monta sig. Siggu Báru líður mjög vel í skólanum, margir bekkjafélagar koma frá sama leikskóla og svo er hún búin að kynnast nýjum félögum. Fiðluskólinn er líka kominn á fullt skrið og var fyrsti hóptíminn síðastliðinn laugardag. Þar fékk Sigga Bára að vita að hún væri búin að stækka svo mikið að komið væri að því að hún þyrfti stærri fiðlu. Hún er svo heppin að þekkja snillingana Júníu og Laufey sem ætla að lána henni fiðluna sem hún á að nota í dag!
Af Auði Eddu er það að frétta helst að hún svaf í sínu rúmi í nótt og svaf svo vel að mömmu fannst hún heyra hroturnar í henni, en kannski var það dúkkan hennar sem lét svona hátt. Hún talar meira og meira hvern daginn sem líður, er farin að hjóla á þríhjóli og það nýjasta er hlaupahjólið hennar Siggu (það gamla með þremur hjólum) sem hún vill helst hafa í fanginu allar stundir. Mikið er því hermt eftir Siggu Báru stóru systur og ekki efi í okkar huga að hún hjálpi litlu systir mikið við að komast á rétt ról. Auður Edda er meira svona framkvæmdar týpan af grófari gerð þ.e. bolti, hjól, skrúfa, púkast og á það ekki við hana að sitja og lita eða leira. Þarna eru þær ólíkar systurnar!
Bless í bú

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þær eru náttúrulega langflottastar! Kannski kíki ég einhvern tímann á þig í hádeginu Gyða. Knús í hús. Þóra

Nafnlaus sagði...

já þú mátt sko alveg monta þig af þessum flottu systrum - gaman að fá svona skemmtilegar fréttir.
sjáumst fljótlega
kv. Díana og G.E.

Nafnlaus sagði...

Aldeilis dásamlegar þessar systur :)
Yndislegt að heyra hvað allt gengur vel. Sigga Bára stendur sig svo ótrúlega vel á þessu hausti. nýr skóli, orðin stóra systir og allt fullt af breytingum, dásamlega dugleg.
Brosið hennar Auðar Eddu er svo yndislegt og hún er greinilega svo óspör á þau og það er svo sannarlega merki um hvað henni líður vel.

Það er nú enginn vafi að það hjálpar Auði Eddu mikið að eiga svona flotta og duglega stóru systur og yndislegt fyrir þær að eiga hvora aðra að og lífið á bara eftir að verða dásamlegra á ykkar bæ :)

knús í hús
Bakkabúarnir

Nafnlaus sagði...

Frábært að heyra hvað gengur vel og sjá myndir af þessum flottum systrum!
Ef maður má ekki monta sig af þessu þá veit ég ekki af hverju ...!
Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára

Erna Hrund sagði...

Ég á svo fallegar frænkur! Yndislegar myndir verð að fara að hitta ykkur sem fyrst! Vonandi bara í vikunni hjá ömmu og afa:D

knús***