sunnudagur, september 19, 2010
Enn ein tönnin farin úr stóru systur og Auður Edda reynir að losa nokkrar úr sínum munni
Hér líður tíminn hratt og ekkert verið sett inn á þessa síðu í nokkrar vikur. Sigga Bára hefur misst enn eina tönnina og hún Auður Edda reynir sitt besta til að ýta á sínar tennur svo þær fari nú að losna. Þær systur eru svo góðar vinkonur og nýtur Sigga Bára þess mikið að eiga sér hinn fullkomna aðdáenda sem sér ekki sólina fyrir henni. Búið er að fara í veiðiferð með Hemma, Þóru, Magga Val, ömmu og afa sem var frábær þó enginn fiskur hafi komið með heim. Skólinn gengur vel hjá Siggu Báru og mamma og Auður Edda eru duglegar að flækjast um á daginn í góðum félagsskap.
Það verður líka að koma fram að Auður Edda hefur þyngst um eitt kíló frá komu og lengst um einn sentimeter sem við erum auðvitað bara ánægð með. Það væri gaman ef allir í fjölskyldunni yrðu glaðir með þyngdaraukningu!!
Bless í bú
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



4 ummæli:
Æðislegar myndir af litlu og tannlausu frænkunni! Kann að meta að sjá naglalakk á fingrum auðar eddu:D
Við Hemmi látum reykja fiskana sem við komum með heim. Hver veit nema að Sigga Bára veiði einn reyktan lax úr fangi Hemma. Nammi, nammi namm.
Yndislegar, yndislegar myndir af fallegu gleðigjöfunum. Auður Edda greinilega heilmikill grallari og Sigga Bára svo yndisleg stóra systur og flott svona tannlaus ;o)
Njótið ykkar áfram - Sigurbjörg og feðginin í Fannafoldinni
Æðislegar myndir af fallegum stúlkum, gaman að heyra að allt gengur vel, og skólastúlkan er ánægð. Hlakka til að sjá ykkur um áramótin. Kossar og knús frá Kína
Skrifa ummæli