Það er ótrúlegt hvað tíminn líður þegar það er gaman. Dagarnir hér ganga sinn vanagang að mestu en þó er enginn eins þegar dæturnar eru annarsvegar. Auður Edda Jin er kraftmikil stúlka sem er alltaf að vinna. Gengur hér um heima hjá sér með nokkra poka fulla af allskonar dóti, flytur það á milli staða, tekur það upp og endurraðar - þetta er ritual sem tekið getur klukkustund ef ekki meira. Hún er líka farin að tala alveg ótrúlega mikið og söngla lög á íslensku með sínum fallega kínverska hreim og takti.
Sigga Bára er dugleg í skólanum og líður vel þar, kemur glöð heim á hverjum degi, vill eiginlega sjaldan koma heim þegar hún er sótt því félagarnir eru svo skemmtilegir. Ein tönn í viðbót fauk þegar mamman var að tannbursta hana einn morguninn, þessi mjúka mamma!!
Setjum hér nokkrar myndir af þessum gersemum sem eru orðnar svo góðar vinkonur og hrein unun að fylgjast með þegar Auðru Edda skriðdreki vekur stóru systir á morgnanna - þær eru snilldin ein!!
Bless í bú

2 ummæli:
Dásamlegar í einu orði sagt!! :o)
Kveðja,
Sigga, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn
Loksins, loksins. Frábærar myndir af þeim systrum. kv Edda
Skrifa ummæli