þriðjudagur, október 19, 2010

Það hafa liðið þrír mánuðir


Það eru liðnir þrír mánuðir í dag frá því við fengum Auði Eddu í fangið. Þessir þrír mánuðir hafa liðið hratt um leið og okkur hefur fundist hún hafa verið hér hjá okkur frá því hún dró andann fyrst í þessum heimi. Auður Edda Jin hefur haldið sínum karakter og ef eitthvað er bætt miklu kryddi í hann síðustu vikurnar. Hún er alltaf glöð, vaknar svo sæl og þyrstir í nýjan dag svo mikið að hún smitar alla hér heima þannig að ef einhver hafi einhverntímann verið þungur á morgnanna þá heyrir það sögunni til. Svo er hún farin að syngja nokkur lög og eitt þeirra hefur stóra systir kennt henni en það er HM lagið í fótbolta - tær snilld með kínverskum hreim.

Systurnar eru miklir vinir, Sigga Bára er mjög natin við hana og mikil hetja í okkar augum. Það getur ekki verið auðvelt að fá allt í einu þriggja ára skottu inn í lífið manns, eina sem veit hvað hún vill og sækir fast að því að ná sínu fram. Sem verðlaun hefur Sigga Bára fengið nokkuð oft að vaka lengur og þá er dekurstund fyrir prinsessuna stóru - í kvöld voru lakkaðar neglur á tám og fingrum auk þess sem smá lakkrís var maulaður á meðan herlegheitin þornuðu. Svona á lífið að vera.
Bless í bú

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ kæra fjölskylda.
Já tíminn líður hratt, komnir þrír mánuðir og allt gengur svo vel, enda aldrei spurning um neitt annað,lífið er dásamlegt,þessar systur eru svo fallegar og flottar að ég get ekki beðið eftir að hitta þær þegar ég kem heim.
Kossar og knús frá okkur í Kína
Jóna og Jói

Nafnlaus sagði...

Elsku vinir

Til hamingju með mánuðina þrjá sem virðast vera endalausir :-)

Þið eruð bara flottust !

knús í hús
Blómvangsgengið

Nafnlaus sagði...

Frábærar myndir sem segja svo margt. Ótrúlegt að það séu komnir þrír mánuðir frá ævintýrinu í Kína.
Edda

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Auðar-mánuðina. Þið eruð sannarlega heppin og systurnar yndislegar báðar tvær
Knúsur, Sigurbjörg og feðginin

Nafnlaus sagði...

til hamingju með áfangann .... mjög lýsandi mynda af ,,fröken athafnasöm yngismey" - og stóra systir alltaf jafn mikil prinsessa naglalökkuð eður ei :)
sí jú
kv. Día og co