mánudagur, desember 19, 2011
Auður Edda litla ljós er 4.ára í dag.
Elsku hjartans gullið okkar hún Auður Edda er búin að ná fjögurra ára aldrinum. Það er mikið búið að telja fingurnar undanfarnar vikur og loksins er hægt að rétta fram fjóra fingur og segja "Ég er fjögrára".
Við héldum upp á daginn síðastliðinn laugardag þar sem stórfjölskyldan fagnaði með dömunni. Þetta var skemmtilegur dagur og naut hún hans í botn. Daginn eftir fóru svo systurnar á jólaball með ömmu og afa í Oddfellow þar sem þær sungu og dönsuðu með Höllu frænku og Aþenu vinkonu. Sigga Bára elskar jólasveininn en Auður Edda er frekar smeik við hann en þó mun hugaðri í ár en í fyrra.
Í dag var aðal dagurinn - sem hún var sko búin að hlakka mikið til en það var að eiga afmæli á leikskólanum. Þar var sungið fyrir hana og svo valdi hún að bjóða upp á pönnukökur. Svo var borðaður uppáhálds maturinn - soðin ýsa með kartöflum eftir að hafa farið á jólakonsert hjá stóru systir.
Elsku hjartans Auður Edda Jin þú ert æðisleg persóna og mesti gleðigjafi. Við erum heppin að hafa fengið þig í lífið okkar.
Mamma og Pappi
fimmtudagur, ágúst 25, 2011
Sumarið hefur gefið mörg gullkornin.
Það er ekki nokkur vafi í huga foreldrana að sumarið hefur verið æðislegur tími. Við höfum átt tækifæri að verja lengstum hluta sumarsins saman, þökk sé fæðingarorlofsreglum og skilningsríkum vinnuveitendum. Tímanum höfum við varið bæði innanlands og utan og erfitt að gera upp á milli. Stúlkunar hafa verið í essinum sínu, Auður Edda fjörkálfurinn sem heldur betur nýtur þess að eiga svona góða stóru systir sem tilbúin er að leika og dunda sér, ekki slæmt það. Sigga Bára hefur notið þess að vera í fríi, fór á hestanámskeið en eins og þau vita sem vel þekkja til þá er hún mjög heilluð af dýrum og vill helst fylla heimilið af þeim og skilur ekkert í mótlæti foreldrana sem mest er pabbinn auðvitað. Hann hefur borið fyrir sig hin ýmsu ofnæmi sem vonandi þarf ekki að leggja mjög þungar sannanir fyrir á síðari stigum. Núna er Sigga Bára byrjuð að safna sér fyrir öðru hestanámskeiði og vonast líka til að komast í heimsókn í hesthús í Mosanum fljótlega. Í fjölmörgum ferðum okkar í húsdýragarðinn hefur hún óbeðinn tekið virkan þátt í verkum starfsmanna tengt dýrunum og auðvitað var það toppurinn að fara í dýragarða erlendis þar sem fjöldi framandi dýra var skoðaður og myndaður fyrir síðari tíma.
Auður Edda hefur mikið þroskast og stækkað ótrúlega mikið. Málþrostinn hefur vaxið mikið og ýmis ansi skondin tilsvör hafa komið frá henni. Yfir kvöldmatnum í dag var hún spurð út í matinn og þótti henni þetta eitthvað þreytandi spurningar og horfði á okkur hin og sagði „ ...og hvað með það!“. Við áttum einnig von á einhverjum hollenskum slettum frá henni eftir sumarið en í staðinn komu orðatiltæki eins og „shit“ sem mátað er við hin ýmsu tilefni sem oft eru ekki alveg viðeigandi. Við erum ennþá að reyna að finna út hvaða þetta kom og viljum alls ekki kannast við að þetta orð sé notað við heimilishaldið, í alvöru....
Svo var farið til augnlæknisins í dag og Auður Edda stóð sig eins og hetja enda búið að múta henni með nammi ef hún hegðaði sér vel. Útkoman varð því tveir sleikjóar, resept þar sem fram kemur að hún er fjarsýn og sjónskekkja. Búið er því að velja falleg bleik gleraugu sem hún er voða ánægð með og verður bara prakkaralegri með þau!
Látum þetta nægja í bili...
þriðjudagur, júlí 19, 2011
Það er eitt ár liðið
Takk Auður Edda Jin fyrir þig.
sunnudagur, júlí 10, 2011
Liðið hafa 6 ár frá því við fengum Siggu Báru MIn í fangið fyrst
Það hafa liðið 6 ár frá því að við fengum litla ljós sem í dag heitir stóra ljós í fangið. Hún kom í fangið okkar grátandi og hefur varla farið úr því síðan. Ekki það að hún sé sígrátandi þar heldur líður vel í faðmi foreldranna. Það var líka fyrir einu ári að stóra ljós var nýlent í Peking þar sem hún var í þann mund að fá sitt stærsta hlutverk hingað til sem var stóra systir.
Við höfum setið í dag og sagt sögur, rifjað upp þennan dag með henni og um leið rifjað upp þessa stórkostlegu tilfinningu að verða foreldrar. Myndirnar hér fyrir neðan sýna vel þroska þessarar telpu - engin tár á nýju myndinni - nema kannski gleðitár......pabbi var fyndinn þarna áðan !
Bless í bú
Við höfum setið í dag og sagt sögur, rifjað upp þennan dag með henni og um leið rifjað upp þessa stórkostlegu tilfinningu að verða foreldrar. Myndirnar hér fyrir neðan sýna vel þroska þessarar telpu - engin tár á nýju myndinni - nema kannski gleðitár......pabbi var fyndinn þarna áðan !
Bless í bú
föstudagur, júní 24, 2011
Sigga Bára Min 7 ára í dag!
Þá er dagur að kvöldi kominn. Sigga Bára Min varð 7 ára í dag. Eins og alla aðra afmælisdaga gladdi sólin okkur og dreifði geislum sínum yfir afmælisbarnið, fjölskyldu og vini enda sólin að hitta sólina ekki satt! Hún vaknaði klukkan 4 í nótt tilbúin í daginn og varð frekar fúl yfir því að vera sagt að sofa lengur en hún hlýddi og vaknaði ekki fyrr en foreldrarnir og litla systir vöktu hana með söng. Búið var að setja sjö afmæliskerti hringinn í kringum karamellu kleinuhring og svo blés hún á þau öll uppi í rúmi, tók upp pakkann frá nöfnu sinni henni Báru og sveif fram í eldhús. Þar var pabbi búinn að gera uppáhalds morgunmatinn, beikon og amerískar pönnukökur. Svo kom amma í heimsókn beint úr bakaríinu og veislan hélt áfram. Hápunktur dagsins var þegar fjölskyldan og vinir komu í veisluna sjálfa, sunginn var tvisvar sinnum afmælissöngurinn þar sem Siggi Valur varð að syngja sönginn með loftgítar tilþrifum - hann klikkar ekki sá töffari.
Núna er litla ljós sofnað eftir góðan dag, stóra ljós vakir og horfir á dýralífsþátt með sínum besta vini honum pabba.
Takk kæru vinir og fjölskylda fyrir daginn.
Takk kæra dóttir fyrir gleðina sem skein út frá þér allri á deginum þínum.
Bless í bú
Núna er litla ljós sofnað eftir góðan dag, stóra ljós vakir og horfir á dýralífsþátt með sínum besta vini honum pabba.
Takk kæru vinir og fjölskylda fyrir daginn.
Takk kæra dóttir fyrir gleðina sem skein út frá þér allri á deginum þínum.
Bless í bú
fimmtudagur, júní 02, 2011
Það eru 6 ár síðan við fengum upplýsingarnar um Siggu Báru Min
Tíminn líður hratt - það eru liðin 6 ár frá því við foreldrarnir fengum símtalið þar sem okkur var tilkynnt að í Jiangxi héraði í Kína biði litla Fu Ling Min eftir að komast í okkar fang. Það er ljúft að hugsa til baka og tilfiningarnar streyma um mann allan, þessar tilfingingar eru dásemd ein.
Lífið hefur verið okkur gott og gjöfult frá þeim degi og erum við þakklát fyrir það. Dagurinn í dag var fallegur og góður. Við fórum dömurnar með ömmu á Selfoss þar sem Sigga Bára tók þátt í fiðlunámskeiði sem endaði í Eden í Hverargerði þar sem hópurinn hélt tónleika. Brói og Edda hittu okkur þar og svo var slegin upp heljarinnar ís veisla og að lokum farið og keyptar plöntur í matjurtargarðinn og Sigga Bára fékk þrjár jarðaberjaplöntur sem hún hefur óskað sér frá því vorið leit dagsins ljós hér í garðinum.
Takk Sigga Bára Min fyrir þig - þú ert frábær!!
Bless í bú
Lífið hefur verið okkur gott og gjöfult frá þeim degi og erum við þakklát fyrir það. Dagurinn í dag var fallegur og góður. Við fórum dömurnar með ömmu á Selfoss þar sem Sigga Bára tók þátt í fiðlunámskeiði sem endaði í Eden í Hverargerði þar sem hópurinn hélt tónleika. Brói og Edda hittu okkur þar og svo var slegin upp heljarinnar ís veisla og að lokum farið og keyptar plöntur í matjurtargarðinn og Sigga Bára fékk þrjár jarðaberjaplöntur sem hún hefur óskað sér frá því vorið leit dagsins ljós hér í garðinum.
Takk Sigga Bára Min fyrir þig - þú ert frábær!!
Bless í bú
sunnudagur, maí 29, 2011
Hvammur í Landssveit er staðurinn
Það hefur verið árviss viðburður að heimsækja flottustu bændur landsins að Hvammi í Landssveit og sjá vorboða fæðast, anda að sér góðu lofti og borða bestu kökurnar! Kollý og Ævar voru tilbúin að taka á móti okkur fjölskyldunni í dag en þetta er í fyrsta sinn sem Auður Edda fer með okkur á bóndabæ. Við foreldrarnir héldum að Sigga Bára væri efnilegasti bóndinn en hún Auður Edda er jafnoki hennar á því sviði. Hún hljóp um allt, hélt á nýfæddum lömbum, stjórnaði hundinum, pabbanum, mömmunni en áttaði sig á því að enginn stjórnar bóndanum með stóru Béi. Sigga Bára og Ævar skilja hvort annað og hann bauð henni í hennar fyrstu ferð í traktor. Það var ævintýri og sóttu þau kind og tvö lömb hennar sem höfðu fæðst fyrr um daginn. Já það eru glaðar dömur sem eru sofandi núna og báðar búnar að ákveða það að Hvammur er staðurinn sem heimsóttur verður aftur í sumar.
Takk fyrir okkur sæmdarhjón fyrir rausnarlegar móttökur fyrr í dag.
Bless í bú
Skírnardagur Auðar Eddu 7. maí
Það kom loksins að því að við létum skíra Audi Eddu Jin. Ótrúlegt hvað tíminn hefur flogið frá okkur en loksins rann upp þessi líka fallegi dagur. Skírnardaman klædd upp og var sko alveg tilbúin að láta skíra sig. Vaknaði snemma eins og vanalega og hafði fengið að horfa á Dóru meðan við hin tókum okkur til. Var ekki alveg á því að hætta að horfa, Pabbi settu á „tásu“ sagði sú stutta sem hafði heyrt stóru systur slá um sig með ensku orði sem er mjög svipað. En þegar í skírnarkjólinn var komið tók hún ekki annað í mál en að fara á hlaupahjólinu í kirkjuna. Við reyndum að finna einhverjar haldbærar skýringar til að koma í veg fyrir það því innst inni áttum við von á því að hún myndi detta á leiðinni. En þetta var hennar dagur og hún mátti sko bara alveg ráða þessu. „Já farðu bara á hlaupahjólinu og láttu skíra þig“ sögðu foreldrarnir og áður en setningunni var lokið var hún lögð af stað. Prestinum honum Bjarna þótti þetta líka frekar flott, hann hafði amk aldrei áður skírt barn sem hafði komið á hlaupahjóli til sín. Við teljum þetta bara dæmigert fyrir Auði Eddu, hún er bara þessi ótrúlega skemmtilega, uppátækjasama stúlka. Athöfnin var sérstaklega falleg og skemmtileg. Brói spilaði á píanoið og allir sungu auk þess sem Sigga Bára stóra systir spilaði svo fallega á fiðluna ekkert smá flott hjá henni og gaman að eiga svona stóru systur.
Allt gekk vel í veislunni og börnin voru mest úti að leika á milli þess sem skotist var inn til að fá smá góðgæti og svo aftur út. Takk fyrir dásamlegan dag.
sunnudagur, apríl 24, 2011
Gleðilegt páskaegg
Já svona óskaði Auður Edda öllum gleðilegra páska þessa fyrstu páska okkar saman. Það var mikl spenna þegar báðar dömurnar voru vaknaðar í morgun. Sigga Bára svaf að vísu svolítið mikið lengur en litla systir en þegar Sigga Bára var komin á stjá hófust páskarnir. Hún gerði ratleik fyrir foreldrana af svo mikilli snilli, örugglega 7 vísbendingar alveg ein, svo fóru systurnar í það að leita að páskaeggjunum sínum og þegar þeirri leit lauk hófst heljarinnar nammiát á fastandi maga. Svo þegar klukkan var að nálgast ellefu var skundað niðrí Húsdýragarð á árlegan páskasunnudagsskóla þar sem systurnar sungu af mikilli innlifiun og fengu að klappa páskakanínum. Sigga Bára fetaði í fótspor pabba og var tekin í sitt fyrsta sjónvarpsviðtal sem er hægt að finna hér
Um kvöldið kom svo Siggi Valur frændi og borðaði með okkur en í eftirrétt var framreidd kaka að hans ósk sem Sigga Bára bakaði og Auður Edda fékk að klára kremið úr skálinni - mikil samvinna hjá systrunun í eldhúsinu.
Núna er litla ljós sofnuð en stóra ljós vakandi og langar að horfa á hundamynd - það verður því kósýkvöld í kvöld.
Bless í bú
laugardagur, apríl 23, 2011
Gleðilegt sumar - Snillingurinn hún Auður Edda byrjuð að teikna
Mamma og pabbi eru svo stolt af því að Auður Edda er farin að teikna svo snilldarlega flott - vá hvað það var klappað og núna er hún að teikna alla fjölskylduna á sama blaðið. Við sáum að Sigga Bára kom með sýna fyrstu "Óla prik" mynd um 2 og hálfs árs aldurinn svo hefur stóra systir sem alltaf er að teikna verið mikil hvatning fyrir Auði Eddu.
Við erum búin að vera með Olgu og fjölskyldu um helgina og þangað hafa margir ættingjað komið. Krakkarnir leikið lausum hala úti svo glöð og sæl. Á morgun er páskadagur og mikill spenningur að vakna og leita og borða SÚKKULAÐIegg
Bless í bú
miðvikudagur, apríl 20, 2011
Síðasti vetrardagur árið 2010 var dagurinn sem við fengum upplýsingar um Auði Eddu Jin
Það er eins og gerst hafi í gær þegar mamma og pabbi fengu hringingu frá Íslenskri ættleiðingu á síðasta vetrardag þar sem okkur var tilkynnt að lítil falleg stúlka yrði okkar! Dagurinn var fallegur, sól og hamingja. Stóra systir stóð þá á stóra sviðinu í Háskólabíói og söng með rúmlega hundrað leikskólabörnum falleg íslensklög á meðan mamma og pabbi voru við það að springa af spenningi yfir öllu sem í gangi var. Snilldar setning Siggu Báru þegar hún frétti af litlu systir sem biði úti í Shanghai voru svo rétt og sönn""Það eru milljón hjörtu inni í mér núna. Jörðin er hjarta og pláneturnar eru hjarta"
Það eru ekki til heppnari og hamingjusamari foreldrar en við
Bless í bú
Það eru ekki til heppnari og hamingjusamari foreldrar en við
Bless í bú
mánudagur, mars 14, 2011
Systurnar gistu hjá ömmu og afa
Sigga Bára og Auður Edda gistu síðasta laugardag hjá ömmu og afa þar sem foreldrarnir fóru á Food and Fun með Bróa, Eddu, Bínu og Geira. Kvöldið var frábært hjá þeim systrum, vöktu fram eftir öllu og hafa ráðið algjörlega yfir dagskránni hjá ömmu og afa. Auður Edda var að gista í fyrsta sinn án mömmu og pabba og var það minnsta málið enda hverjum leiðist með svona skemmtilegri stóru systir sem er alltaf að leika við hana, kenna henni að dansa, syngja, lita og allt það sem lítið fólk þarf að læra í lífinu. Takk amma og afi fyrir frábæran sólarhring!
Siggu Báru gengur vel í skólanum og fékk góðan vitnisburð, les núna 104 atkvæði sem þykir mjög gott fyrir 6 ára, er ekki alltaf þæg (sem mömmu finnst flott og er stolt af) en tekur leiðsögn og bætir sig í masinu, þ.e.minnkar það :-D Svo er hún líka afspyrnu góð í fiðlunni, æfir sig samviskusamlega en þó sjaldnast að eigin frumkvæði enda eðlilegur krakki hér á ferð. Hún spilaði á tónleikum fyrir viku sem gengu vel, bara ekkert hrædd við að koma fram - þarna er hún lík pabba sínum.
Auður Edda er hamingjusöm í skólanum, höldum að hún göslist aðallega með strákunum þar sem hún er farin að sýna karate spörk hér heima sem er bara snilld. Svo er hún svo ákveðin, brosmild, uppátækjasöm og lifandi - minnir okkur eiginlega á Emil - vill vel en svo mistekst bara sumt og þá segir okkar bara "Mamma tetta bara alltilagi" og gerir snilldar svip.
Svona er þetta líf - bara skemmtilegt.
Bless í bú
Siggu Báru gengur vel í skólanum og fékk góðan vitnisburð, les núna 104 atkvæði sem þykir mjög gott fyrir 6 ára, er ekki alltaf þæg (sem mömmu finnst flott og er stolt af) en tekur leiðsögn og bætir sig í masinu, þ.e.minnkar það :-D Svo er hún líka afspyrnu góð í fiðlunni, æfir sig samviskusamlega en þó sjaldnast að eigin frumkvæði enda eðlilegur krakki hér á ferð. Hún spilaði á tónleikum fyrir viku sem gengu vel, bara ekkert hrædd við að koma fram - þarna er hún lík pabba sínum.
Auður Edda er hamingjusöm í skólanum, höldum að hún göslist aðallega með strákunum þar sem hún er farin að sýna karate spörk hér heima sem er bara snilld. Svo er hún svo ákveðin, brosmild, uppátækjasöm og lifandi - minnir okkur eiginlega á Emil - vill vel en svo mistekst bara sumt og þá segir okkar bara "Mamma tetta bara alltilagi" og gerir snilldar svip.
Svona er þetta líf - bara skemmtilegt.
Bless í bú
mánudagur, febrúar 14, 2011
Hestar og fleira skemmtilegt
Það er nú orðið nokkuð langt síðan við settum inn nýjar upplýsingar inná síðuna okkar. Afmælisveislan hennar Auðar Eddu gekk vonum framar og sú stutta var ánægð með daginn og ekki var gleði þeirra systra minni um jólin. Auður var reyndar hálf fegin þegar henni var sagt að jólasveinninn væri farinn aftur til fjalla. Gott að losna við þessa kalla úr byggð.
Farið er að síga á síðari hluta janúarmánaðar sem hefur verið viðburðaríkur hjá okkur. Mikið að gera afmælisveislur og ekki má gleyma upphafi skólagöngu hjá Auði Eddu sem byrjuð er í leikskóla. Hún er alsæl í skólanum og leikur við hvurn sinn fingur eins og sagt er.
Um helgina fóru við í heimsókn til Ásu og Gríms í hesthúsin en Sigga Bára hefur verið heilluð af hestum um nokkurt skeið. Og óhætt er að segja að heimsóknin í dag haf bætt um betur. Sigga fékk að fara reiðtúr með Ásu og sú var nú stolt á hestinum og hafði líka áður mokað út og aðstoðað við að setja hnakk og beisli á hestinn. Auður Edda fékk líka að setjast á bak og fannst gaman en vildi samt láta halda í sig, ekki alveg örugg með þetta.
Nú að lokum var að koma í ljós að Sigga er að fá þessar fallegu fullorðins framtennur. Frekar stolt enda fullt tilefni til.
Við reynum að vera duglegri að setja inn nýjar fréttir
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)























