mánudagur, desember 19, 2011
Auður Edda litla ljós er 4.ára í dag.
Elsku hjartans gullið okkar hún Auður Edda er búin að ná fjögurra ára aldrinum. Það er mikið búið að telja fingurnar undanfarnar vikur og loksins er hægt að rétta fram fjóra fingur og segja "Ég er fjögrára".
Við héldum upp á daginn síðastliðinn laugardag þar sem stórfjölskyldan fagnaði með dömunni. Þetta var skemmtilegur dagur og naut hún hans í botn. Daginn eftir fóru svo systurnar á jólaball með ömmu og afa í Oddfellow þar sem þær sungu og dönsuðu með Höllu frænku og Aþenu vinkonu. Sigga Bára elskar jólasveininn en Auður Edda er frekar smeik við hann en þó mun hugaðri í ár en í fyrra.
Í dag var aðal dagurinn - sem hún var sko búin að hlakka mikið til en það var að eiga afmæli á leikskólanum. Þar var sungið fyrir hana og svo valdi hún að bjóða upp á pönnukökur. Svo var borðaður uppáhálds maturinn - soðin ýsa með kartöflum eftir að hafa farið á jólakonsert hjá stóru systir.
Elsku hjartans Auður Edda Jin þú ert æðisleg persóna og mesti gleðigjafi. Við erum heppin að hafa fengið þig í lífið okkar.
Mamma og Pappi
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)




Engin ummæli:
Skrifa ummæli