sunnudagur, apríl 22, 2012

Tíminn líður svo hratt

Það eru í dag tvö ár síðan við fengum upplýsingarnar um fallegu Auði Eddu Jin. Furðulegt hvað tíminn hefur flogið áfram með þessari dásemdarveru. Veðrið þann dag var fallegt eins og í dag, sólin skein og vorið var á næsta leiti. Það er gott að staldra við og minnast þessa dags, finna fyrir þakklætinu í hjartanu, þakka fyrir allt það sem við höfum fengið að njóta og verið treyst fyrir.
Við höfum verið ódugleg að hripa niður sögur þeirra systra úr daglegu lífi en hér er sjaldnast lognmolla og tími við það að setjast niður og skrifa nokkur orð finnst varla. Sigga Bára er búin að vera dugleg í félagsstarfi allt árið, æfir fiðlu af kappi, dansar nokkrum sinnum í viku og svo er spilaður fótbolti. Auður Edda litla ljós er dugleg að fylgja stóru systir að því undanskyldur að hafa ekki fengið inngöngu í fótboltaklúbbinn sem verður vonandi fljótt. Þess í stað skráði pabbi hana í íþróttaskóla sem er nýlokinn og var það hennar bestu stundir í vikunni enda daman mikið fyrir það að hreyfa sig.
Núna er pabbi búinn að setja upp trampolín og það er hoppað frá morgni til kvölds, þess á milli skreppur Auður Edda í heimsóknir til vina sinna í húsinu og svo má ekki gleyma því að hjólreiðar eru mikið stundaðar. Systurnar eru því að allan daginn og foreldrarnir reyna að fylgja þeim fast á eftir.
Sigga Bára og Auður Edda eru miklar vinkonur og er hrein unun að fylgjast með því hvað stóra ljós leyfir litla ljósi að fylgja með í öllum leikum með vinkonum hennar og þolinmæðin stundum ofar skilning okkar foreldranna.

Við hlökkum til sumarsins og vonandi verðum við duglegri við að skrifa pistla af lífi þeirra systra.
Bless í bú

Engin ummæli: