mánudagur, mars 14, 2011

Systurnar gistu hjá ömmu og afa

Sigga Bára og Auður Edda gistu síðasta laugardag hjá ömmu og afa þar sem foreldrarnir fóru á Food and Fun með Bróa, Eddu, Bínu og Geira. Kvöldið var frábært hjá þeim systrum, vöktu fram eftir öllu og hafa ráðið algjörlega yfir dagskránni hjá ömmu og afa. Auður Edda var að gista í fyrsta sinn án mömmu og pabba og var það minnsta málið enda hverjum leiðist með svona skemmtilegri stóru systir sem er alltaf að leika við hana, kenna henni að dansa, syngja, lita og allt það sem lítið fólk þarf að læra í lífinu. Takk amma og afi fyrir frábæran sólarhring!
Siggu Báru gengur vel í skólanum og fékk góðan vitnisburð, les núna 104 atkvæði sem þykir mjög gott fyrir 6 ára, er ekki alltaf þæg (sem mömmu finnst flott og er stolt af) en tekur leiðsögn og bætir sig í masinu, þ.e.minnkar það :-D Svo er hún líka afspyrnu góð í fiðlunni, æfir sig samviskusamlega en þó sjaldnast að eigin frumkvæði enda eðlilegur krakki hér á ferð. Hún spilaði á tónleikum fyrir viku sem gengu vel, bara ekkert hrædd við að koma fram - þarna er hún lík pabba sínum.
Auður Edda er hamingjusöm í skólanum, höldum að hún göslist aðallega með strákunum þar sem hún er farin að sýna karate spörk hér heima sem er bara snilld. Svo er hún svo ákveðin, brosmild, uppátækjasöm og lifandi - minnir okkur eiginlega á Emil - vill vel en svo mistekst bara sumt og þá segir okkar bara "Mamma tetta bara alltilagi" og gerir snilldar svip.
Svona er þetta líf - bara skemmtilegt.
Bless í bú