Það eru nokkrir jólasveinar búnir að gefaSiggu Báru í skóinn og mikið var það áhyggjufull lítil stúlka sem átti að fara að sofa svo að Stekkjastaur gæti komið inn um gluggann þegar hún væri SOFNUÐ EIN í herberginu og sett í skóinn hennar!! Mamma reyndi að róa hana og sagði að jólasveinninn væri pínu galdrakarl sem kæmi aldrei inn um gluggann heldur galdraði í skóinn standandi fyrir utan!! Svo er Sigga Bára búin að skreyta sitt eigið piparkökuhús og farin að maula pínu af því líka en ..... það setur bara karakter á meistaraverkið eins og annað sem snillingurinn gerir. Mary Poppins er í uppáhaldi og Sigga Bára er stöðugt í víðum kjólum dansandi og hoppandi af borðum með regnhlífina upp spennta - sú kann að galdra
Já núna mega jólin bara fara að koma finnst henni Siggu Báru sem er komin í jólafrí með mömmu og það verður sko gaman!!!!!
Bless í bú
laugardagur, desember 15, 2007
sunnudagur, desember 02, 2007
Fyrsti í aðventu og spennan eykst
Núna nálgast jólin óðfluga og Sigga Bára er komin í mikið jólaskap. Á kvöldin eru lesin kvæði Jóhannesar úr Kötlum og mikið þarf hún Sigga Bára að ræða afhverju Grýla dó í lokin og allt það sem viðkemur jólakettinum. Jólalögin eru komin á hreint og stöðugt sungið Í skóginum stóð kofi einn. Í dag fórum við í Húsdýragarðinn á jólahlaðborð, mikið búið að undirbúa þá stuttu undir það að meðal veislugesta yrðu þau mæðginin jólasveinnin og hin eina sanna Grýla. Það var róleg stúlka sem hitti þau enda búið að ræða það að pabbi er lögga og getur sko vel ráðið við eina Grýlu!!! Þegar Grýla nálgaðist var mín kjörkuð og leyfði henni að halda á sér en þegar Grýla sagðist vilja fara með hana birtust tárin og var nóg var til af þeim á lager. En um leið og mamma tók við henni var allt komið í besta lag og hún skellti sér upp á svið með frænskystkinum sínum og söng af miklum krafti jólalög. Svo var farið til ömmu og afa í aðventukaffi sem gladdi þá stuttu mikið. Hún er mikið jólabarn hún Sigga Bára og stemmings stúlka - búin að baka eina sort - já hún bakar líka og búin að skreyta smá í herberginu sínu.
Bless í bú
Bless í bú
föstudagur, nóvember 16, 2007
Dagur íslenskrar tungu
Í dag tók Sigga Bára þátt í skemmtun á leikskólanum í tilefni af degi íslenskrar tungu. Litla daman var klædd eins og gömul kona (amma) og vinur hennar á deildinni sem gamall maður (afi) svo sungu þau hátt og snjallt "Afi minn og amma mín...." Hún stóð sig með prýði sú stutta og eigum við von á því að geta sett inn mynd af fyrsta performansinum (þetta orð sett inn af tilefni dagsins). Núna sitja þau feðginin saman og syngja lagið saman eða réttara sagt Sigga Bára er með einsöng og pabbi reynir í óþökk dömunnar að blanda sér í sönginn!
Nýjasta í málnotkun er Ota pota táfýla - veit ekki hvaðan það er svo er hún búin að fræða foreldrana um það að í gamladaga hétu buxur ekki buxur heldur BRÓK. Þar hafið þið það :-D
Bless í bú
Nýjasta í málnotkun er Ota pota táfýla - veit ekki hvaðan það er svo er hún búin að fræða foreldrana um það að í gamladaga hétu buxur ekki buxur heldur BRÓK. Þar hafið þið það :-D
Bless í bú
föstudagur, október 26, 2007
Já þetta gerist hratt......
Já hún Sigga Bára er í þessum orðum rotuð í sínu rúmi kl. 17:15 á staðartíma og í sínu herbergi. Móðirin var í sínu herbergi og var kallað á milli herbergja, svona góðlátlegt spjall þar til allt í einu er kallað "Þú ert KÚKALABBI" Jebb mamma kúkalabbi - bældi niður hláturinn og krafðist afsökunarbeiðni sem barst úr hinu herberginu um hæl. Hún var spurð hver kenndi henni þetta orð og jú hún sagðist hafa bara lært þetta sjálf - maður kemur auðvitað ekki upp um vini sína!!
Já snillingurinn hún Sigga Bára Min klikkar ekki frekar en fyrridaginn. Bless í bú
Já snillingurinn hún Sigga Bára Min klikkar ekki frekar en fyrridaginn. Bless í bú
laugardagur, september 29, 2007
Orðin STÓRA FRÆNKA



Já nú er hún Sigga Bára ekki Sigga Bára - nei, vinsamlegast ávarpið frökenina sem STÓRA FRÆNKA!! Hún hefur hreinlega fengið það stærsta hlutverk í lífi sínu til þessa. Olga litla móðursystir og Bjarkar eignuðust yndislega fallegan og stóran dreng á miðvikudag - Stóra frænka hefur fengið að hitta hann tvisvar og passar mikið upp á það að hún borði nú vel matinn sinn svo litli frændi verði ekki stærri en hún!!! Set hér inn myndir af litla frænda og svo fyrstu strætó ferð dömunnar með mömmu síðustu helgi - hún hreinlega brosti hringinn við að fá að sitja ein og ekki í neinu belti!!!!
Bless í bú
Bless í bú
sunnudagur, september 16, 2007
Ég ætla að verða lögreglukona og slökkviðliðskona

Já það er búið að vera viðburðarík helgi hjá Siggu Báru. Hápunktur helgarinnar var án efa forvarnardagur Íslenskrar Ættleiðingar sem haldinn var á skólalóð Hlíðarskóla rigningar laugardaginn mikla. Fólk klæddi sig eftir veðri og hlustaði á lögregluna kenna litlu ungunum okkar hvernig þau og foreldrarnir ættu að haga sér í umferðinni og svo lærðu allir að ganga rétt yfir götu með nýju endurskinsmerkin sín. Hópurinn gekk svo í Skógarhlíð þar sem slökkvuliðið beið hópsins og fengu allir að skoða slökkvibíla, sjúkrabíla, fara um borð og svo voru allir leystir út með þessu líka fína barmmerki með honum Loga. Já ég held að það hafi margur unginn ákveðið ævistarf sitt þennan dag - allaveganna gerði fröken Sigga Bára það :-D
Bless í bú
mánudagur, september 03, 2007
Haustið er formlega komið
Já það má segja það að núna er haustið formlega komið til Siggu Báru Min. Hún er búin að fara víða í sumar og lenda í mörgum ævintýrum. Það síðasta var í Suðursveit þar sem afi Valur hélt upp á afmælið sitt - ungi maðurinn. Mikið var gert, farið í golf, skógarferð, berjatínslu og sund. Það var mikil umræða um tröllin sem búa í fjöllunum og þau vakna þegar börnin sofa. Sigga var hérumbil búin að vekja þau með gráti eina nóttina en viti menn "Hann pabbi minn er svo sterkur að tröllin eru hrædd við hann og svo komast þau ekki yfir grindverkið" - Hvað getur maður sagt við þessu - þetta var auðvitað allt rétt hjá snilla. Svo fékk hún að upplifa mikla sorg sem var svo ekki mikil sorg eftir allt. Lítill þrastarungi flaug á gluggan, rotaðist og dó. Sú stutta hlustaði á líkræðu Sigga Vals frænda og sagði að Guð (sem hún segir að sé stelpa) myndi taka fuglinn og hjálpa honum að fljúga aftur. Jebb það eru sko svör við öllu hjá Siggu Báru Min!!
Bless í bú
Bless í bú
mánudagur, ágúst 13, 2007
Afmæli vinkvenna í Hraunborgum
Vildum þakka vinum okkar fyrir frábæran dag í Hraunborgum. Veðrið lék við okkur, farið var í sund, leikið, grillað, sunginn afmælissöngur, blásið á afmæliskerti, afmæliskaka borðuð og allir fengu afmælispakkapakka :-D Þessi mynd er sú eina hópmyndin með þeim öllum 7 sem okkur tókst að taka af þessum yndislegu vikonum sem smell passa svo við hvor aðra að það hálfa væri nóg. Takk, takk, takk kæru vinir fyrir frábæran dag!!
Bless í bú
föstudagur, ágúst 10, 2007
Berjatínsla og sumarbústaður
Jæja - núna erum við fjölskyldan búin að vera í sumarbústað í viku ásamt góðum gestum sem gerðu góða daga betri. Vinir og fjölskylda skemmtu sér saman í gönguferðum, golfi, heitapottsferðum og auðvitað BERJATÍNSLU. Því til sönnunar eru myndirnar hér fyrir neðan og fleiri myndir á leiðinni. Sigga Bára fór líka sinn fyrsta golfhring af mörgum en þar sýndi hún mikla hæfileika við að pútta!! Snillingurinn hún Sigga Bára er núna orðin 90 cm. skv. síðustu mælingum!!
Bless í bú
Bless í bú
þriðjudagur, júlí 24, 2007
Kanntu afrínsku?
Sumt verður maður bara að setja niður á "blað" - þvílíku gullkornin sem hrynja af vörum elsku Telmu frænku. Þær voru í kvöld að hafa það kósí, með snakk í skál, teppi, horfa á Pétur Pan og kúra í sófanum þegar Telma stóra frænka (5 ára) spyr Siggu Báru " Sigga kanntu afrínsku?" Hmmm Sigga Bára bara starði á frænku og skildi ekki boffs í þessu - mamman kom inn í þetta og benti Telmu á að Sigga kæmi frá Kína en ekki Afríku - næsta spurning var því "Sigga kanntu þá Kína?" Semsagt núna þurfa mamma og pabbi að fara í kúrsinn "Lærðu kínversku á einni nóttu", barnið þarf auðvitað að kunna pínu í "Kína"
Bless í bú
Bless í bú
mánudagur, júlí 23, 2007
Útilega á vegum ÍÆ
Fórum um helgina í útilegu á vegum ÍÆ. Vorum og erum svo heppin að Matthildur og fjölskylda voru með heljarinnar fellihýsi sem við fengum að deila. Það var svo gaman að sjá hvað þessar litlu snúllur eru góðar vinkonur og gaman að sjá og hitta alla vini okkar sem mættu í útileguna. Það voru samt nokkrar pæjur sem við söknuðum en vonandi koma þær bara næst. Sigga Bára hafði mikið gaman af nammikarlinum sem er auðvitað stórkostlegur maður og svo var auðvitað diskóið!!!!! Klædd í pils og viti menn Lína var spiluð tvisvar!!!! Sigga Bára hoppaði af kæti og hljóp beint fyrir framan hátalarana í trans!! Takk kæru vinir fyrir okkur - það er rétt hjá Krístínu Vald. sem hún sagði"Maður eignaðist ekki bara þetta fallega barn heldur heilan hóp af góðum vinum með"
Bless í bú
Bless í bú
þriðjudagur, júlí 10, 2007
Það eru tvö ár liðin frá kraftaverka ævintýradeginum mikla
Það eru liðin tvö ár í dag síðan við fengum Siggu Báru Min í fangið. Af því tilefni er búið að kíkja nokkrum sinnum á myndir frá þeim degi og upplifa þessa mögnuðu stund aftur í huganum. Hve erfitt þetta hefur verið fyrir lítinn unga að vera tekin úr umhverfi sínu og skellt inn í nýtt óþekkt umhverfi. Hve fljótt okkur fannst hún aðlagast okkur. Hve mikið okkur skjátlaðist þegar við vorum komin heim og sáum og fundum munin þegar hin sanna Sigga Bára kom í ljós. Hve yndisleg hún hefur verið frá fyrsta degi. Hve óendanlega okkur þykir vænt um hana.
sunnudagur, júní 24, 2007
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag...hún Sigga Bára





Já það var erfitt að sofna í gær því Sigga Bára vissi að þessa nótt myndi hún allt í einu verða 3. ára - allt í einu, sofna 2. ára og vakna 3. ára - hvernig gerist þetta eiginlega allt saman. Blessunin var vakin með söng foreldranna, bleik kaka og bleik kerti og pakki með bleikum dúkku stól til að setja á bleika hjólið!!!! Sú stutta setti á bleiku Barbapabbakökuna og svo komu gestirnir :-D Frænkur, frændur, vinir, amma og afi - hún er rík hún Sigga Bára og hún veit af því. Það var sunginn söngurinn sem við höfum þurft að bíða svooooo lengi eftir og það sem var mesta sportið "afmælisbarnið fær fyrst af kökunni" jebb, klikkar ekki á smáatriðunum!!! Allir fóru út að leika, búið var að setja upp tjald, sápukúlur fyrir alla og svo var hlaupið út á leikskóla. Sú stutta er sofnuð núna í nýju bleiku náttfötunum sem hún klæddi sig alveg sjálf í því hún er sko 3. ára í dag.
Takk allir fyrir frábæran dag og elsku Sigga Bára TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÞITT !!!!
Bless í bú
laugardagur, júní 16, 2007
Það er vika í afmælið og mikil spenna í gangi!!!!




Á morgun er vika í þriggja ára afmæli dömunar. Hún hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig hlutirnir eiga að vera. Kakan á jú að vera bleik, það verður bleikur dúkur og bleikir diskar. Hún veit það líka og minnir stöðugt á það að afmælisbarnið fær fyrst af kökunni!!!!! Já hlutirnir eru á hreinu. Í morgun fékk mamma hana til að máta afmæliskjólinn, en auðvitað varð að setja bleiku vængina á líka og bleika töfrasprotann. Fjölskyldan fór líka í dag að skoða hjól sem unginn átti að fá í afmælisgjöf en við erum ör og keyptum hjólið í dag og daman fékk það afhent. Það má segja að hún hafi elst um a.m.k. tvö ár við það að hjóla á STÓRA hjólinu!!
Jæja nú er um að gera að finna allt það bleika sem mun prýða afmælið á sunnudaginn...... Sigga Bára þú klikkar ekki á smáatriðunum!!!!!
Bless í bú
sunnudagur, júní 10, 2007
Heiðmörk og vinir


Í dag fórum við ásamt ömmu Ernu í Heiðmörk. Þar var sumargrill og fjör Íslenskrar ættleiðingar. Þar hittum við marga vini okkar og skemmtum okkur vel. Aðstaðan er hreint út sagt frábær, við bara skiljum ekkert í okkur að fara ekki oftar í Heiðmörkina - núna verður bætt úr því :-D Svo var farið heim, labbað til Kobba vinar, versluð sumarblóm og svo var dagurinn toppaður með matarboði hjá Einari Erni og fjölskyldu en vinkonur Siggu Báru Min, þær Júnía og Laufey voru á landinu.
Það er þreytt lítil stúlka sem sefur núna vært enda hver væri það ekki eftir svona erilsaman dag!!!
Bless í bú
laugardagur, júní 02, 2007
Það var fyrir tveimur árum síðan...

Það var fyrir tveimur árum síðan sem við hjónin sátum hér heima nýbúin að fá upplýsingar um litla stúlku sem beið okkar í Kína - það voru myndir af dóttur okkar henni Siggu Báru Min. Myndirnar sýndu lítinn unga sem stillt var upp í stól með gerviblómum og kanínumynd í bakgrunni - þetta voru fallegustu myndir sem við höfðum séð á ævi okkar. Núna tveimur árum síðar liggur þessi fallega stúlka uppi í rúmi sofandi búin að vaxa og dafna og gleðja líf okkar meira en okkur hefði nokkru sinni grunað. Takk, takk, takk Sigga Bára Min
miðvikudagur, maí 30, 2007
Hátíð í Heiðmörk

Í dag fór Sigga Bára og mamma með leikskólanum í Heiðmörk. Sólin ákvað að vera með okkur í dag enda segir Sigga Bára að sólin sé vinkona sín sem eltir hana út um allt!!! Sigga Bára lék sér mikið með vinkonum sínum þeim Emmu og Elísabetu - hreinir snillingar þessar þrjár. Mamma kom þeim upp á lagið með að naga strá en það varð uppi fótur og fit þegar Sigga Bára fór að hósta - mamma gleymdi að segja að maður ætti ekki að setja þetta í magann heldur spíta þessu út úr sér. Sigga Bára var fljót að læra það enda eru Kínverjar meistarar í að hrækja og ég get sagt ykkur að þetta liggur hreinlega í genunum á þeirri stuttu. Svo var farið í leikskólann og grillað. Þær Sigga Bára og Elísabet voru á tánum í sandinum og nutu lífsins. Matthildur og Kristín eru að koma í heimsókn á eftir þannig að þessi dagur virðist ætla að heppnast vel.
Bless í bú
fimmtudagur, maí 17, 2007
Jú jú hér er allt í fína frá Kína
Það eru foreldrarnir sem eru frekar óduglegir að setja inn á bloggið þrátt fyrir að prinsessan sé dugleg í að framkvæma nýja hluti á hverjum degi.. Hún er orðinn snillingur í dansi og hefur tekið miklum framförum á ótrúlega stuttum tíma. Setjið hljóðið á og njótið!! DANS
Jú jú hér er allt í fína frá Kína
Það eru foreldrarnir sem eru frekar óduglegir að setja inn á bloggið þrátt fyrir að prinsessan sé dugleg í að framkvæma nýja hluti á hverjum degi.. Hún er orðinn snillingur í dansi og hefur tekið miklum framförum á ótrúlega stuttum tíma. Setjið hljóðið á og njótið!! DANS
miðvikudagur, apríl 18, 2007
Komin heim eftir tveggja vikna stuð á Fuerteventura

Já núna er Sigga Bára Min komin heim eftir að hafa dvalist með frændsystkinum sínum á Fuerteventura (mamma og pabbi voru auðvitað líka með!!)!! Mikið var gert í ferðinni, farið í dýragarð, vatnsleikjagarð, ströndina, eðlusafn og auðvitað leikið sér við laugina við hótelið. Sú stutta ætlaði að vera heima í dag með mömmu en var hvött til að mæta á náttfataball í skólanum. Hún er þar núna og var ekki alveg sátt við að vera skilin eftir enda vantaði aðal stuðboltana hann Olla frænda og Telmu frænku!!!
Bless í bú
laugardagur, mars 24, 2007
Hei cool

Það eru sumir sem læra allt af þeim sem þeir bera virðingu fyrir. Foreldrarnir reyna að siða ungfrúna í mannasiðum og öðru sem tilheyrir þeirra hlutverki og misjafnt er hvað hún tileinkar sér og hve fljótt. Um leið og Olli frændi og Telma frænka koma í heimsókn eða næturgistingu þá einhvernvegin lærir ungfúin allt á augabragði hmmmm. Þau eru hér þrjú og ætla að sofa saman í nótt - mikil partý stemming. Emil var settur í tækið og um leið og myndin byrjaði heyrðist í Siggu Báru " Hei cool"......
Bless í bú
mánudagur, mars 05, 2007
Bréfið loksins farið
Í dag sendi Sigga Bára bréf til Kína sem ætlað er konunni sem sá um hana fyrstu mánuði lífs hennar. Kemur meira síðar...........
þriðjudagur, febrúar 20, 2007
Dýrin í hálsakoti

Foreldrarnir eru glaðir þessa dagana þar sem búið er að aflína Siggu Báru í bili og Rebbi refur og Lilli klifurmús hafa tekið við af henni. Það er hlustað á Dýrin í Hálsakoti (eins og Sigga Bára segir það) eftir skóla og uppi í rúmi þegar farið er að sofa. Á morgun er merkisdagur hjá henni en búið er verið að byggja upp mikla spennu fyrir Öskudeginum. Mamman klippti út eitthvað sem á að vera Línu svunta og vonaðist hún til að dóttirin myndi taka viljan fyrir verkið en - NEI hún ætlaði sér ekki að fara í þessa Línu svuntu, bara ekki að ræða það. Mikið var nú mamman glöð í kvöld þegar við komum heim, kennararnir í skólanum búnir að vekja áhuga á þessum merkisdegi hjá Siggu Báru og hún tilbúin til að máta meistaraverk móður sinnar. Myndin sýnir general prufu fyrir morgundaginn.............
Bless í bú
þriðjudagur, febrúar 13, 2007
Sigga veik og mamman dugleg að setja á bloggið

Já þar sem hún Sigga Bára er fallegasti sjúklingur kjúklingur í heimi og heima þessa dagana langaði okkur að setja inn skemmtilega mynd af þeim vinkonunum Siggu Báru og Matthildi til að lýsa upp daginn. Sigga Bára er meira fyrir að leika dýr en Matthildur er meira svona prinsessutýpan. Þær eru bara líkar mæðrum sínum að þessu leiti (Kristín mamma Matthildar ekki alveg sammála mér hér veit ég!!) þar sem móðir hennar Siggu Báru hefur aldrei verið dúkku/prinsessu karakter. Amma hennar sér að vísu um að kenna henni dúkkuleiki og dömu tilburði. Læt myndina tala sínu máli.
Bless í bú
Leikhúsferð á Skoppu og Skrítlu


Mikið var gaman hjá Siggu Báru á laugardaginn 3. febrúar þegar sú stutta skellti sér í sína fyrstu leikhúsferð. Búið var að sjá Skoppu og Skrítlu í sjónvarpinu og núna var ákveðið að sjá þær með berum augum í leikhúsinu. Við hittum Matthildi vinkonu þar og deildu þær þessari stund saman og höfðu gaman af. Þar sem þetta gekk svona líka vel höfum við fjölskyldan ákveðið að reyna að ná miðum á Karíus og Baktus sem er ekki auðvelt þar sem uppselt er á allar sýningar til við vitum ekki hvað.........
sunnudagur, janúar 28, 2007
Fyrsta bíóferðin

Það var roggin stelpa sem labbaði inn í Smárabíó í dag - hún var nefnilega að fara í bíó litla stóra skottið hún Sigga Bára Min. Við foreldrarnir héldum að við værum að fara að sjá hálfa mynd og svo heim en nei, það var horft á alla myndina, maulað popp og drukkið vatn með röri, setið á upphækkuðum stalli svo lítill haus gæti séð á tjaldið myndina um Karlottu könguló og alla vini hennar í fjósinu. Hún leit út fyrir að hafa tökin á þessu öllu, vakti allan tíman en núna þegar þessi orð eru rituð er lítið skott sofandi inni í stofu alveg uppgefin að vera pínu stór en samt svo lítil.
Bless í bú
laugardagur, janúar 20, 2007
Ég má fá tvö því ég er með tvö eyru!!!!!

Já hún Sigga deyr ekki ráðalaus nú frekar en áður. Sigga er hreint dýrðleg þessa dagana – kemur sífellt á óvart með svörin á hreinu. Í kvöld kom hún með eitt gullkornið, var með fullan tyggjópakka og ætlaði að fá sér tvö sem foreldrarnir voru ekki alveg á að samþykkja – þá svaraði mín bara ÉG MÁ FÁ TVÖ ÞVÍ ÉG ER MEÐ TVÖ EYRU. Það er rétt hjá Siggu hún er með tvö eyru og auðvitað fékk hún tvö tyggjó – eitt fyrir hvort eyra.
Bless í bú
mánudagur, janúar 01, 2007
Gleðilegt nýtt ár

Kæru vinir og fjölskylda - GLEÐILEGT NÝTT ÁR og takk fyrir gamlar góðar stundir. Við vorum að lenda hér heima í Reykjavíkinni eftir að hafa dvalist yfir áramótin hjá Olgu og Bjarkari uppi í sveit. Það var svo gaman hjá henni Siggu Báru að leika sér með frændsystkinum sínum. Lærði nokkra nýja takta og notar núna orðið OKEI svolítið oft - takk Telma og Olli ;-D Á morgun byrjar hið hefðbundna líf aftur eftir tæpt tveggja vikna frí úr leikskólanum, vonandi verður hún glöð að fara aftur á leikskólann...................................
Bless í bú
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




