
Foreldrarnir eru glaðir þessa dagana þar sem búið er að aflína Siggu Báru í bili og Rebbi refur og Lilli klifurmús hafa tekið við af henni. Það er hlustað á Dýrin í Hálsakoti (eins og Sigga Bára segir það) eftir skóla og uppi í rúmi þegar farið er að sofa. Á morgun er merkisdagur hjá henni en búið er verið að byggja upp mikla spennu fyrir Öskudeginum. Mamman klippti út eitthvað sem á að vera Línu svunta og vonaðist hún til að dóttirin myndi taka viljan fyrir verkið en - NEI hún ætlaði sér ekki að fara í þessa Línu svuntu, bara ekki að ræða það. Mikið var nú mamman glöð í kvöld þegar við komum heim, kennararnir í skólanum búnir að vekja áhuga á þessum merkisdegi hjá Siggu Báru og hún tilbúin til að máta meistaraverk móður sinnar. Myndin sýnir general prufu fyrir morgundaginn.............
Bless í bú
4 ummæli:
Mikid er gaman ad fylgjast med skottinu henni Siggu Báru Min. Mikid hefur henni farid fram sídan ég sá hana sídast. Mamman kemur mér sífellt á óvart..vissi ad hún prjónadi sokka og lopapeysur en ad hún gaeti saumad svona fínu línusvuntu vissi ég ekki.
Puss og kram
Sigrún og fjölsk í sverige
Sæl sæta Lína
Hún mamma þín er sannarlega snillingur að redda sér, frábær svuntan og hreint ótrúlega flott. Mikið máttu vera montin af mömmu þinni sem bjargar sem alveg örugglega saman hvað á dynur ;o)
Sjáumst, Anna Bíbí og mamman
Hæ, Sigga Bára !
Það er svo langt síðan ég hef kíkt í heimsókn til þín flottasta Línuskott. En greinilega nóg að gera hjá þér og gaman.
Hittumst við ekki í Hreyfilandinu á laugardaginn,
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og mamma.
Vá hvað þú ert brilliant Lína Langsokkur!!!! ég held að ég hafi líka einhvertíman stigið fæti mínun í þetta sama gervi... enda er heillandi að vera Lína sem getur og gerir allt sem hún vill, rétt eins og þú sjálf grunar mér...;)
Gaman að geta fylgst svona aðeins með yfir hafið ....
Kramar
Uppáhalds Lopasokkarnir
Skrifa ummæli