þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Sigga veik og mamman dugleg að setja á bloggið



Já þar sem hún Sigga Bára er fallegasti sjúklingur kjúklingur í heimi og heima þessa dagana langaði okkur að setja inn skemmtilega mynd af þeim vinkonunum Siggu Báru og Matthildi til að lýsa upp daginn. Sigga Bára er meira fyrir að leika dýr en Matthildur er meira svona prinsessutýpan. Þær eru bara líkar mæðrum sínum að þessu leiti (Kristín mamma Matthildar ekki alveg sammála mér hér veit ég!!) þar sem móðir hennar Siggu Báru hefur aldrei verið dúkku/prinsessu karakter. Amma hennar sér að vísu um að kenna henni dúkkuleiki og dömu tilburði. Læt myndina tala sínu máli.

Bless í bú

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég er farin að sakna litla dýrsins...hún er án efa fallegasta panda í heiminum:) kv írishuld frænka

Nafnlaus sagði...

ohhh....ef þetta eru ekki sætustu stelpur í heimi þá veit ég ekki hvað !!!

og já Gyða mín alveg rétt hjá þér, er ekki alveg sammála og ætla bara að rifja það aðeins upp með þér....hver vildi setja eyrnalokka í dóttur sína ;-)

knús
Prinsessumamman og prinsessan

Álfrún og Viktor Noregsfarar sagði...

Ohh sætasta sæta!! er farin að að sakna hennar mikið og vá hvað hún stækkar!!
Held þó að hún líkist ekki frænku sinni mikið því að þar var það prinsessuleikurinn sem átti yfirhöndina og ég er ekki frá því að svo sé enn ...hehehe

bestu kveðjur yfir hafið

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
alltaf gaman að sjá myndirnar af litlu fallegu stelpunni ykkar :) Svo er mjög flott vinkonumyndin - alveg yndisleg :)
Bestu kv. Kitta og Elísabet Xiang :)