þriðjudagur, október 19, 2010

Það hafa liðið þrír mánuðir


Það eru liðnir þrír mánuðir í dag frá því við fengum Auði Eddu í fangið. Þessir þrír mánuðir hafa liðið hratt um leið og okkur hefur fundist hún hafa verið hér hjá okkur frá því hún dró andann fyrst í þessum heimi. Auður Edda Jin hefur haldið sínum karakter og ef eitthvað er bætt miklu kryddi í hann síðustu vikurnar. Hún er alltaf glöð, vaknar svo sæl og þyrstir í nýjan dag svo mikið að hún smitar alla hér heima þannig að ef einhver hafi einhverntímann verið þungur á morgnanna þá heyrir það sögunni til. Svo er hún farin að syngja nokkur lög og eitt þeirra hefur stóra systir kennt henni en það er HM lagið í fótbolta - tær snilld með kínverskum hreim.

Systurnar eru miklir vinir, Sigga Bára er mjög natin við hana og mikil hetja í okkar augum. Það getur ekki verið auðvelt að fá allt í einu þriggja ára skottu inn í lífið manns, eina sem veit hvað hún vill og sækir fast að því að ná sínu fram. Sem verðlaun hefur Sigga Bára fengið nokkuð oft að vaka lengur og þá er dekurstund fyrir prinsessuna stóru - í kvöld voru lakkaðar neglur á tám og fingrum auk þess sem smá lakkrís var maulaður á meðan herlegheitin þornuðu. Svona á lífið að vera.
Bless í bú

þriðjudagur, október 05, 2010

Nokkrar myndir fyrir þá sem hafa kvartað undan myndleysi á vefnum.



Posted by Picasa

Haustið komið en bara sumar í hjarta


Það er ótrúlegt hvað tíminn líður þegar það er gaman. Dagarnir hér ganga sinn vanagang að mestu en þó er enginn eins þegar dæturnar eru annarsvegar. Auður Edda Jin er kraftmikil stúlka sem er alltaf að vinna. Gengur hér um heima hjá sér með nokkra poka fulla af allskonar dóti, flytur það á milli staða, tekur það upp og endurraðar - þetta er ritual sem tekið getur klukkustund ef ekki meira. Hún er líka farin að tala alveg ótrúlega mikið og söngla lög á íslensku með sínum fallega kínverska hreim og takti.
Sigga Bára er dugleg í skólanum og líður vel þar, kemur glöð heim á hverjum degi, vill eiginlega sjaldan koma heim þegar hún er sótt því félagarnir eru svo skemmtilegir. Ein tönn í viðbót fauk þegar mamman var að tannbursta hana einn morguninn, þessi mjúka mamma!!
Setjum hér nokkrar myndir af þessum gersemum sem eru orðnar svo góðar vinkonur og hrein unun að fylgjast með þegar Auðru Edda skriðdreki vekur stóru systir á morgnanna - þær eru snilldin ein!!
Bless í bú 






Posted by Picasa