Þá er dagur að kvöldi kominn. Sigga Bára Min varð 7 ára í dag. Eins og alla aðra afmælisdaga gladdi sólin okkur og dreifði geislum sínum yfir afmælisbarnið, fjölskyldu og vini enda sólin að hitta sólina ekki satt! Hún vaknaði klukkan 4 í nótt tilbúin í daginn og varð frekar fúl yfir því að vera sagt að sofa lengur en hún hlýddi og vaknaði ekki fyrr en foreldrarnir og litla systir vöktu hana með söng. Búið var að setja sjö afmæliskerti hringinn í kringum karamellu kleinuhring og svo blés hún á þau öll uppi í rúmi, tók upp pakkann frá nöfnu sinni henni Báru og sveif fram í eldhús. Þar var pabbi búinn að gera uppáhalds morgunmatinn, beikon og amerískar pönnukökur. Svo kom amma í heimsókn beint úr bakaríinu og veislan hélt áfram. Hápunktur dagsins var þegar fjölskyldan og vinir komu í veisluna sjálfa, sunginn var tvisvar sinnum afmælissöngurinn þar sem Siggi Valur varð að syngja sönginn með loftgítar tilþrifum - hann klikkar ekki sá töffari.
Núna er litla ljós sofnað eftir góðan dag, stóra ljós vakir og horfir á dýralífsþátt með sínum besta vini honum pabba.
Takk kæru vinir og fjölskylda fyrir daginn.
Takk kæra dóttir fyrir gleðina sem skein út frá þér allri á deginum þínum.
Bless í bú
föstudagur, júní 24, 2011
fimmtudagur, júní 02, 2011
Það eru 6 ár síðan við fengum upplýsingarnar um Siggu Báru Min
Tíminn líður hratt - það eru liðin 6 ár frá því við foreldrarnir fengum símtalið þar sem okkur var tilkynnt að í Jiangxi héraði í Kína biði litla Fu Ling Min eftir að komast í okkar fang. Það er ljúft að hugsa til baka og tilfiningarnar streyma um mann allan, þessar tilfingingar eru dásemd ein.
Lífið hefur verið okkur gott og gjöfult frá þeim degi og erum við þakklát fyrir það. Dagurinn í dag var fallegur og góður. Við fórum dömurnar með ömmu á Selfoss þar sem Sigga Bára tók þátt í fiðlunámskeiði sem endaði í Eden í Hverargerði þar sem hópurinn hélt tónleika. Brói og Edda hittu okkur þar og svo var slegin upp heljarinnar ís veisla og að lokum farið og keyptar plöntur í matjurtargarðinn og Sigga Bára fékk þrjár jarðaberjaplöntur sem hún hefur óskað sér frá því vorið leit dagsins ljós hér í garðinum.
Takk Sigga Bára Min fyrir þig - þú ert frábær!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)