Á síðustu dögum hefur undirbúningur hjá okkur tekið á sig nýjar myndir. Gyða stýrir verklegum framkvæmdum sem núna felast í því að lakka barnarúm og snyrta þannig að til sóma verði. Svefnherbergi sem til þessa hefur verið fyrir "lítið" frændfólk sem hefur fengið næturgistingar fær nýjan og góðan tilgang og mun í framtíðinni verða fyrsta barnaherbergi okkar, ekki dónalegur tilgangur það! Gert er ráð fyrir að mála og snyrta til í herberginu með því að loksins verði gólflistar festir formlega en þá fengum við tilsnyrta frá fyrri eigendum íbúðarinnar fyrir ekki svo löngu. Kannski best að segja sannleikann það eru rúmlega tvö ár og við stilltum þeim bara upp og þar sem þeir stóðu á eigin "spýtum" þá var ekkert verið að vesenast í því að festa þá formlega. Jæja læt nægja um gólflistana en þeir verða semsagt festir upp þegar búið er að skella upp veggfóðri sem keypt var sérstaklega með það í huga að geta hentað vel hvort sem barnið verður stúlka eða piltur. Hvað frúin ákveður síðan að verði næstu skref veit ég ekki en það verða ábyggilega göfug og eitthvað sem er alveg bráðnauðsynlegt að gera strax.... Þeir sem til þekkja vita að verklegar framkvæmdir eru nú ekki sterkasta hliðin þannig að ekki fækkar gráu hárunum á næstu vikum :-)