þriðjudagur, maí 10, 2005
Hittingur hjá félögum í hópi 12
Í gær hittist hópur 12 á Hofteigi. Það var mjög góð mæting hjá hópnum sem endranær. Mikil spenna er byrjuð að myndast og allir voru að spekulera og spá í sama hlutinum þ.e. "Hvenær ætli upplýsingarnar berist"? Farið var að telja fram og til baka en loka niðurstaðan var eiginlega sú að það er ekkert og þá ekkert að gera annað en að bíða og bíða. Kristín okkar frábæri upplýsingafulltrúi hefur tekið það að sér að vera dugleg inn á bandarísku spjallsíðunum og fylgjast með hvenær þau fái sínar upplýsingar en reynslan hefur sannað það að við megum vonast til að fá upplýsingar um ungana okkar u.þ.b. 10 dögum eftir að Bandaríkjamenn hafa fengið sínar upplýsingar. Farið var að skoða barnaföt sem gestgjafarnir höfðu verslað og er það ljóst að það er búið að undirbúa komu lítillar prinsessu á heimilið. En það er mikið búið að vara okkur við því að gera ráð fyrir stelpu þar sem það liggur ljóst fyrir að bráðlega mun annar drengur bætast við þann hóp kínverskra barna sem hafa verið ættleidd hingað - en þangað til þá lítum við á tölfræðina sem segir 95% líkur á stúlku.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Upplýsingafulltrúinn reynir að standast undir væntingum ;-)
Hæ Gyða og Kalli,
og innilegar hamingjuóskir með dótturina. Stelpurnar eru allar svo innpakkaðar að það mætti halda að þær væru á leiðinni í Súmó-glímu :)
Sjáumst á mánudaginn.
Kristín og Reynir
Skrifa ummæli