mánudagur, september 24, 2012

Það í mörgu að snúast

Mikið líður tíminn hratt. Síðast var skrifað á þessa síðu í júní og allt í einu er kominn september, meira að segja lokin á september. Dömurnar dafna vel og hafa haft það gott og gaman í sumar. Pabbinn tók sér langt orlof í sumar og var í fríi mestan part sumars sem allir nutu í botn. Auður Edda var á leikskólanum í stuttan tíma og stundum bara ekkert í sumar og naut þess að láta pabba dekstra við sig. Hún Sigga Bára naut tímans líka, fór á sumarnámskeið, leiklistarnámskeið en það sem stóð upp úr líkt og menn gerðu ráð fyrir var hestanámskeiðið í Mosó með henni Matthildi vinkonu sinni að ógleymdu auka námskeiði í jazzballet.
Svo þegar mamman var loksins komin í sumarfrí var brunað um landið allt með móðursystrum og fjölskyldum. Gist var í fellihýsum og bústöðum. Ættingjar á Austfjörðum heimsóttir, kynni endurnýjuð við þann ættlegg og voru allir  mikið ríkari eftir þessa ferð.
Sumarið var samt ekki búið og fóru Sigga Bára og pabbi í hestaferð til Ævars og Kollý sem var mikil ævintýraferð á meðan Auður Edda og mamma dekruðu við sig, fóru í bíó og hjólaferðir.
Þegar skólinn byrjaði aftur voru bæði börn og fullorðnir full tilhlökkunar að hefja daglegt líf aftur. Auður Edda er núna komin á stóru deildina og nýtur hún þess vel að vera í kringum jafnaldra sem hlakka mikið til að hefja grunnskólagöngu að ári og ekki skemmir fyrir það stórkostlega starfsfólk sem nostra við hana og félaga alla daga. Þær systur eru líka að nema fiðluleik sem er gaman að fylgjast með, hún Sigga Bára var mjög glöð að núna þyrfti hún ekki að vera sú eina á heimlinu sem þarf að æfa á hverjum degi, semsagt komin með sálufélaga.
Annar stórviðburður var áttræðisafmæli afa og fögnuðum við þeim tímamótum í Suðursveit þeim dásemdarstað. Þar var mikið borðað, drukkið, hlegið og auðvitað týnd ber að ógleymdri veiðiferð þeirra systra með pabba og Hemma en þar var veitt í matinn og urðu allir saddir eftir þann afla.
Núna er loksins búið að skrásetja það helsta sem gerðist í sumar og fram á haustið. Lífið leikur við okkur og dömurnar verða bara skemmtilegri og skemmtilegri. Þær eru ótrúlega góðar vinkonur og vega hvor aðra upp á svo margan styðjandi hátt.
Bless í bú