mánudagur, september 03, 2007

Haustið er formlega komið



Já það má segja það að núna er haustið formlega komið til Siggu Báru Min. Hún er búin að fara víða í sumar og lenda í mörgum ævintýrum. Það síðasta var í Suðursveit þar sem afi Valur hélt upp á afmælið sitt - ungi maðurinn. Mikið var gert, farið í golf, skógarferð, berjatínslu og sund. Það var mikil umræða um tröllin sem búa í fjöllunum og þau vakna þegar börnin sofa. Sigga var hérumbil búin að vekja þau með gráti eina nóttina en viti menn "Hann pabbi minn er svo sterkur að tröllin eru hrædd við hann og svo komast þau ekki yfir grindverkið" - Hvað getur maður sagt við þessu - þetta var auðvitað allt rétt hjá snilla. Svo fékk hún að upplifa mikla sorg sem var svo ekki mikil sorg eftir allt. Lítill þrastarungi flaug á gluggan, rotaðist og dó. Sú stutta hlustaði á líkræðu Sigga Vals frænda og sagði að Guð (sem hún segir að sé stelpa) myndi taka fuglinn og hjálpa honum að fljúga aftur. Jebb það eru sko svör við öllu hjá Siggu Báru Min!!
Bless í bú
Posted by Picasa

2 ummæli:

Álfrún og Viktor Noregsfarar sagði...

Guð er stelpa... snilld!! Skellti uppúr þegar ég las þetta. Hugsa að ég komi þessu á framfæri í tíma á morgun sem dæmi hugsunarhátt ungu kynslóðarinnar !
Kvenréttindakonan strax komin fram hjá Sígríði Báru... gott uppeldi!!

Lopapeysugengið tekur sig vel út á myndinni!
Vild við hefðum getað verið með....!

Knúsar frá Lilleström

Nafnlaus sagði...

hæ hæ og hó,
hvernig er það ætlar mamman á þessum bæ ekkert að segja alheiminum frá sundafrekum Siggu Báru?????

Sigga Bára þú varst algjör snillingur í sundinu á þriðjudaginn - hlökkum til að vera á námsskeiðinu með þér.
bestu kveðjur Sigga Bára sundprinsessa með síða hárið,
Guðrún Edda og mamman.