sunnudagur, september 16, 2007

Ég ætla að verða lögreglukona og slökkviðliðskona



Já það er búið að vera viðburðarík helgi hjá Siggu Báru. Hápunktur helgarinnar var án efa forvarnardagur Íslenskrar Ættleiðingar sem haldinn var á skólalóð Hlíðarskóla rigningar laugardaginn mikla. Fólk klæddi sig eftir veðri og hlustaði á lögregluna kenna litlu ungunum okkar hvernig þau og foreldrarnir ættu að haga sér í umferðinni og svo lærðu allir að ganga rétt yfir götu með nýju endurskinsmerkin sín. Hópurinn gekk svo í Skógarhlíð þar sem slökkvuliðið beið hópsins og fengu allir að skoða slökkvibíla, sjúkrabíla, fara um borð og svo voru allir leystir út með þessu líka fína barmmerki með honum Loga. Já ég held að það hafi margur unginn ákveðið ævistarf sitt þennan dag - allaveganna gerði fröken Sigga Bára það :-D
Bless í bú




Posted by Picasa

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl kæra fjölskylda.

Takk fyrir síðast, frábært framtak. Nú eru sko allir með á hreinu hvernig fara á yfir götu og nauðsyn þess að nota endurskinsmerki.

Bestu kveðjur, Hildur Björg og mamman.

Nafnlaus sagði...

Halló Sigga Bára lögreglukona!
Hvað það er langt síðan ég skoðaði síðuna þína. Flottar myndir og sko ekki verra að vera búin að ákveða ævistarfið.Gangi þér vel áfram fallega stelpa.
Bestu kveðjur
Laufey og Ásgerður Jing (sem eru ekki ennþá búnar að fatta að þær eru nú stutt frá Reykjavík og einfaldlega gleymdum þessum flotta "lögregludegi")