laugardagur, september 29, 2007

Orðin STÓRA FRÆNKA




Já nú er hún Sigga Bára ekki Sigga Bára - nei, vinsamlegast ávarpið frökenina sem STÓRA FRÆNKA!! Hún hefur hreinlega fengið það stærsta hlutverk í lífi sínu til þessa. Olga litla móðursystir og Bjarkar eignuðust yndislega fallegan og stóran dreng á miðvikudag - Stóra frænka hefur fengið að hitta hann tvisvar og passar mikið upp á það að hún borði nú vel matinn sinn svo litli frændi verði ekki stærri en hún!!! Set hér inn myndir af litla frænda og svo fyrstu strætó ferð dömunnar með mömmu síðustu helgi - hún hreinlega brosti hringinn við að fá að sitja ein og ekki í neinu belti!!!!
Bless í bú

5 ummæli:

Audur sagði...

Elsku Sigga
Til hamingju með litla frænda þinn, ég er viss um að hann á eftir að líta upp til þín.
kv.
Auður Sig

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára stóra frænka

Innilegar hamingjuóskir með litla frænda þinn. Þú átt eftir að vera flottasta stóra frænka í heimi....og um að gera að æfa sig þangað til þú verður stóra systir ;-)

knús knús og kiss kiss
Matthildur og mamman

Nafnlaus sagði...

Til hamingju med litla fraenda. Mikid er hann nú heppinn ad eiga svona frábaera fraenku.
Kvedja frá Sverige
Sigrún og fam.

Nafnlaus sagði...

Halló Sigga Bára stóra frænka og foreldrar!
Innilegar hamingjuóskir með litla frændann! Æðislegt að fá svona nýtt hlutverk:)
Annars bara rétt að kvitta fyrir innlitið hjá ykkur:)
Knús og kossar,
Gígja og María Mist (sem ætlar einmitt í slökkviliðið þegar hún verður stór!).

Nafnlaus sagði...

Héddna..........það má alveg fara að detta inn ný og fersk færla svona þá og þegar;)

Vildi bara innheimta fregnir af ykkur fjölskyldunni og kvitta fyrir innlitið:)

besta kveðja

ragnheiður