
Já hún Sigga deyr ekki ráðalaus nú frekar en áður. Sigga er hreint dýrðleg þessa dagana – kemur sífellt á óvart með svörin á hreinu. Í kvöld kom hún með eitt gullkornið, var með fullan tyggjópakka og ætlaði að fá sér tvö sem foreldrarnir voru ekki alveg á að samþykkja – þá svaraði mín bara ÉG MÁ FÁ TVÖ ÞVÍ ÉG ER MEÐ TVÖ EYRU. Það er rétt hjá Siggu hún er með tvö eyru og auðvitað fékk hún tvö tyggjó – eitt fyrir hvort eyra.
Bless í bú
2 ummæli:
Ahahahah!! Það er gott að heyra að Sigga sæta er alveg með lífið á hreinu.. þetta á skoo eftir að fleyta henni langt fram í lífið..;) Sitjum hér í hláturskasti fyrir framan tölvuna... Sigga fynda!!!
Af okkur er allt gott að frétta, hótelvistin farin að dragast á langin en vonandi styttist í annan endan á þessu í bráð... Noregur er á kafi í snjó þessa dagana eins og Ísland....
Biðjum að heilsa ungfrúnni og foreldrum...
Venligst Hilsen
Elsku Sigga Báran okkar....
...þú ert alveg kostuleg, alveg einstök. Og það er þess vegna sem við elskum þig svo mikið...og söknum !! Verðum að fara að hittast og leika saman.
Tvö eyru = tvö tyggjó = segir sig alveg sjálft !!!
knús
Matthildur og gamla settið
Skrifa ummæli