
Það var roggin stelpa sem labbaði inn í Smárabíó í dag - hún var nefnilega að fara í bíó litla stóra skottið hún Sigga Bára Min. Við foreldrarnir héldum að við værum að fara að sjá hálfa mynd og svo heim en nei, það var horft á alla myndina, maulað popp og drukkið vatn með röri, setið á upphækkuðum stalli svo lítill haus gæti séð á tjaldið myndina um Karlottu könguló og alla vini hennar í fjósinu. Hún leit út fyrir að hafa tökin á þessu öllu, vakti allan tíman en núna þegar þessi orð eru rituð er lítið skott sofandi inni í stofu alveg uppgefin að vera pínu stór en samt svo lítil.
Bless í bú
2 ummæli:
Fyrsta heila bíóferðin markar alltaf ákveðin tímamót í lífi hvers og eins... mikið er ég stolt !! ;)
Sé bara á þessum myndum að Sigríður stækkar alltof mikið með hverjum deginum ... og þroskast!!
Af okkur er allt fínt að frétta... ennþá á hóteli en eftir viku er ég að fara í Kaupmannahafnar og Viktor til Spánar... hefði ekki getað hist betur þar sem tískuvikan er í kaupamannahöfn akkúrat þá og ég býst við ég verði í essinu mínu hehe!! Biðjum að heilsa heim og þá sérstaklega frk. Sigríði, það má alveg minna hana á að heimboðið hingað (sem hún afþakkaði pent síðast...) stendur enn ...hehehe
Kv. Álfrún frænka
Hæ Sigga! Við erum báðar með ellefu þessa dagana ;) Mikið væri gaman að sjá þig örlítið oftar..ef þið sæjuð ykkur e-n tímann fært að slá tvær flugur í einu höggi þegar leiðin liggur um garðabæinn!!
Hafðu það gott sæta-mús,
Ragnheiður og co.
Skrifa ummæli