
Það eru sumir sem læra allt af þeim sem þeir bera virðingu fyrir. Foreldrarnir reyna að siða ungfrúna í mannasiðum og öðru sem tilheyrir þeirra hlutverki og misjafnt er hvað hún tileinkar sér og hve fljótt. Um leið og Olli frændi og Telma frænka koma í heimsókn eða næturgistingu þá einhvernvegin lærir ungfúin allt á augabragði hmmmm. Þau eru hér þrjú og ætla að sofa saman í nótt - mikil partý stemming. Emil var settur í tækið og um leið og myndin byrjaði heyrðist í Siggu Báru " Hei cool"......
Bless í bú
1 ummæli:
Múhahahah... það er greinilega ekki auðvelt að sporna við enskuvæðingunni hjá börnum!! Hefði svo viljað heyra hana segja þetta...ávísun á hlátuskast!! Gaman að hitta hana þegar ég kom heim.. sú er að verða mikil skvísa og með ákveðnar skoðanir á lífinu og tilverunni ;) Hlakka til að hitta hana og auðvitað ykkur líka í sumar....
Góða skemmtun í sólinni
Álfrún
Skrifa ummæli