föstudagur, nóvember 16, 2007

Dagur íslenskrar tungu

Í dag tók Sigga Bára þátt í skemmtun á leikskólanum í tilefni af degi íslenskrar tungu. Litla daman var klædd eins og gömul kona (amma) og vinur hennar á deildinni sem gamall maður (afi) svo sungu þau hátt og snjallt "Afi minn og amma mín...." Hún stóð sig með prýði sú stutta og eigum við von á því að geta sett inn mynd af fyrsta performansinum (þetta orð sett inn af tilefni dagsins). Núna sitja þau feðginin saman og syngja lagið saman eða réttara sagt Sigga Bára er með einsöng og pabbi reynir í óþökk dömunnar að blanda sér í sönginn!
Nýjasta í málnotkun er Ota pota táfýla - veit ekki hvaðan það er svo er hún búin að fræða foreldrana um það að í gamladaga hétu buxur ekki buxur heldur BRÓK. Þar hafið þið það :-D
Bless í bú

1 ummæli:

Álfrún og Viktor Noregsfarar sagði...

Get ekki annað séð en að Sigríður Bára sé með allt á hreinu þessa dagana og hafi góða stjórn á heimilishaldinu á Hofteig.
Allt eins og það á að vera.... (",)

Takk fyrir hlýjar kveðjur yfir hafið kæra fjölskylda og hafið það sem allra allra best...

Knús frá Noregi
Álfrún frænka