þriðjudagur, júlí 10, 2007

Það eru tvö ár liðin frá kraftaverka ævintýradeginum mikla

Það eru liðin tvö ár í dag síðan við fengum Siggu Báru Min í fangið. Af því tilefni er búið að kíkja nokkrum sinnum á myndir frá þeim degi og upplifa þessa mögnuðu stund aftur í huganum. Hve erfitt þetta hefur verið fyrir lítinn unga að vera tekin úr umhverfi sínu og skellt inn í nýtt óþekkt umhverfi. Hve fljótt okkur fannst hún aðlagast okkur. Hve mikið okkur skjátlaðist þegar við vorum komin heim og sáum og fundum munin þegar hin sanna Sigga Bára kom í ljós. Hve yndisleg hún hefur verið frá fyrsta degi. Hve óendanlega okkur þykir vænt um hana.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með tveggja ára samveruafmælið.
Það er frábært að hafa fengið að fylgjast með þessu ævintýri ykkar allra og horfa á Siggu Báru þroskast og dafna. Takk kærlega fyrir það.
Bestu kveðjur frá Hildi Björgu og fjölskyldu.

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda

Innilega til hamingju með þennan fallega dag. Ótrúlega fljótt að líða en samt svo langt síðan.

knús
Blómvangsfjölskyldan

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með samveruafmælið. Þetta er aldeilis stór áfangi.

Ósköp finnst mér samt eitthvað stutt síðan ég sá ykkur með hana í Laugardalslauginni fyrir rétt tæpum 2 árum.

Pálína hópi 16

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda

Hjartanlega til hamingju með árin tvö, ótrúlega stutt síðan við fylgdumst með ykkur úti, svo rétt á eftir okkur. Takk fyrir að leyfa okkur fylgast með Siggu Báru vaxa og dafna svo fallega.
Sannarlega mikill gleðidagur sem þið hafið án efa haldið vel upp á í góða veðrinu.

Bestu kveðjur, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí