laugardagur, desember 15, 2007

Jólasveinar, piparkökuhús og frí

Það eru nokkrir jólasveinar búnir að gefaSiggu Báru í skóinn og mikið var það áhyggjufull lítil stúlka sem átti að fara að sofa svo að Stekkjastaur gæti komið inn um gluggann þegar hún væri SOFNUÐ EIN í herberginu og sett í skóinn hennar!! Mamma reyndi að róa hana og sagði að jólasveinninn væri pínu galdrakarl sem kæmi aldrei inn um gluggann heldur galdraði í skóinn standandi fyrir utan!! Svo er Sigga Bára búin að skreyta sitt eigið piparkökuhús og farin að maula pínu af því líka en ..... það setur bara karakter á meistaraverkið eins og annað sem snillingurinn gerir. Mary Poppins er í uppáhaldi og Sigga Bára er stöðugt í víðum kjólum dansandi og hoppandi af borðum með regnhlífina upp spennta - sú kann að galdra
Já núna mega jólin bara fara að koma finnst henni Siggu Báru sem er komin í jólafrí með mömmu og það verður sko gaman!!!!!
Bless í bú

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið eruð þið mæðgur heppnar að vera komnar í frí saman!:) Þið hljótið þá að vera búnar að ÖLLU og ekki með bauga niður að hnjám eins og mamman á þessum bænum;D
Eru hvergi myndir af fallegu jólastelpunni?
Njótið daganna fram að jólum:) Við sendum ykkur okkar bestu óskir um GLEÐILEG JÓL og gæfuríkt komandi ár með þökkum fyrir ánægjuleg kynni í sumar:)
Jólaknús og kossar,
Gígja og María Mist.

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Vonandi hafið þið það gott yfir hátíðarnar.
Jólakveðja, Hildur Björg og fjölskylda.

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára og foreldrar
Við óskum ykkur gleðilegra jólahátíðar og hamingjuríks nýs árs með þakklæti fyrir góðar og skemmtilegar samverustundir á árinu.
Megi hamingjan fylgja ykkur áfram.
Jólakveðjur, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí

Nafnlaus sagði...

Kæru vinir !
Gleðilegt ár og takk fyrir skemmtilegar stundir á því síðasta.
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og fjölsk.