



Á morgun er vika í þriggja ára afmæli dömunar. Hún hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig hlutirnir eiga að vera. Kakan á jú að vera bleik, það verður bleikur dúkur og bleikir diskar. Hún veit það líka og minnir stöðugt á það að afmælisbarnið fær fyrst af kökunni!!!!! Já hlutirnir eru á hreinu. Í morgun fékk mamma hana til að máta afmæliskjólinn, en auðvitað varð að setja bleiku vængina á líka og bleika töfrasprotann. Fjölskyldan fór líka í dag að skoða hjól sem unginn átti að fá í afmælisgjöf en við erum ör og keyptum hjólið í dag og daman fékk það afhent. Það má segja að hún hafi elst um a.m.k. tvö ár við það að hjóla á STÓRA hjólinu!!
Jæja nú er um að gera að finna allt það bleika sem mun prýða afmælið á sunnudaginn...... Sigga Bára þú klikkar ekki á smáatriðunum!!!!!
Bless í bú
9 ummæli:
Hall´ó elsku frænka, flott að vera búin að fá hjólið strax. En farðu varlega þótt þú sért þriggja þá getur verið erfitt að hjóla
Hvernig gengur að ulla á vegginn? Máttekki fara að ulla á fólk núna þegar þú ert orðin svona gömul?
Verst að geta ekki verið í afmælisveislunni þinni en þú geymir smá köku fyrir okkur Eddu og bróa.
"Ég vil líka svona stórustelpuhjól" sagði ein lítil á þessum bænum !!.....og hver veit nema það verði látið eftir henni ;-)
Sigga Bára mín....þú tekur þig ekkert smá vel út á nýja hjólinu þínu. Þú manst að það er mjög gott að æfa sig að hjóla í á nýja pallinum í sveitinni;-)
knús í krús
Blómvangsgengið
Bara snilli!
Bestu kveðjur frá Bínu frænku
Auðvitað er bleikur uppáhaldliturinn...!! hún er með sínar skoðanir á hreinu!!! Bara gaman að lesa alla snildina sem veltur uppúr henni!!
Afmæliskjólinn er geggjaður og fylgihlutirnir alghört must.. !!!
Knús
Á&V
Afmæli, ég ætla að óska mömmu þinni til hamingju með afmælið sitt í dag, og svo þér Sigga Bára með þitt afmæli. Vertu nú góð við mömmu gömlu í dag..
Halló litla krútt
Það styttist svo sannarlega í stóra daginn, ekkert smá sport að fá svona flott hjól. Það er víst búið að fjárfesta í einhverju slíku handa mér en ég veit víst ekki af því ennþá enda á ég víst ekki að fá það strax, hmmmm... veit ekki alveg eftir hverju er verið að bíða.
Þú verður sko öruggleg flottust og fínust á afmælisdaginn þinn, "Pretty in Pink" segir mamma alltaf þegar hún er búin að dressa mig upp í bleiku ;o)
Knús og kveðjur, Anna Bíbí og mamman
Til hamingju með afmælið þitt elsku Sigga Bára okkar. Hlökkum til að sjá myndir af bleiku afmælisveislunni. Hlökkum svo miklu meira til að knúsa þig afmælisknúsinu stóra stelpa.
ammmælisknús
Matthildur, mamman og pappinn
Kæra Sigga Bára.
Innilega til hamingju með þriggja ára afmælið.
Vonandi er dagurinn búinn að vera yndislega bleikur og þú búin að fá marga pakka, kossa og knús.
Bestu kveðjur, Hildur Björg og fjölskylda.
Elsku Sigga Bára
Hjartanlega til hamingju með þriggja ára afmælið, sannarlega stór dagur hjá þér og foreldrum þínum. Vonandi hefur þú notið dagsins með fullt af knúsi og kossum, gómsætum kræsingum og fallegum og góðum gjöfum.
Sjáumst, Anna Bíbí, Sigurbjörg og Axel
Skrifa ummæli